Þyrluflug veldur titringi við ferðamannastaði

Vilborg Hall­dórs­dóttir, leik­kona og leið­sögu­maður, gagn­rýnir harð­lega óheft þyrlu­flug með ferða­menn við helstu ferða­manna­staði lands­ins. Vilborg var stödd ásamt hópi ferða­manna við Gullfoss á dög­unum, þegar þyrlu bar að garði, og skrifar um lífs­reynsl­una á Facebook.

„Í dag var ég uppi á Gull­fossi í feg­ursta vetr­ar­veðri sem hægt er að upp­lifa, skaf­heiður him­inn og skyggnið algert.... þar mátti ég sætta mig við það, að þyrla sveim­aði yfir mér í óra­tíma með til­heyr­andi hávaða­mengun. Kannski með 2-3 far­þega inn­an­borðs. Ætli þeim 250 manns sem voru að njóta fossa og nátt­úru hafi verið skemmt!? Ætli þeir séu komnir útí hina íslensku nátt­úru til að sitja undir slíku!?“

[caption id="attachment_24843" align="alignnone" width="575"] Facebook stöðu­færsla Vil­borgar.[/caption]

Vilborg veltir fyrir sér hversu lengi Ísland verði spenn­andi áfanga­staður fyrir áhuga­sama ferða­menn með þessu fram­haldi. „Þessi hávaða­mengun er eins og sígar­ettu­mengun.... fjöldi líður fyrir fáa. Eiga hund­ruðir að líða fyrir leti og ríki­dæmi fárra og sjálf­valdra? Hvenær ætlum við að fara að setja reglur um t.d. þyrlu­flug yfir þjóð­görðum?“

Engar flugtakmarkanir í þjóðgörðunum


Flug­vélar og þyrlur lúta sömu lögum um loft­ferðir. Samkvæmt reglu­gerð um flug­reglur er óheim­ilt að fljúga yfir þétt­býlum hlutum borga, bæja eða þorpa eða yfir úti­sam­komum í minni hæð en 1.000 fetum, eða 300 metrum. Annars staðar, það er utan þétt­býlis eða manna­móta, er bannað að fljúga loft­fari í minni hæð en 500 fetum, eða 150 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Þó er í gildi bann við lág­flugi yfir friðlandi Þjórs­ár­vera vegna gæsa­varps. Þar er flug undir 3000 feta hæð bannað á tíma­bil­inu 10. maí til 10. ágúst ár hvert.

Engar sér­stakar tak­mark­anir eru hins vegar í gildi er varða flug loft­fara í þjóð­görðum á Íslandi, en útsýn­is­flug með ferða­fólk hefur auk­ist gríð­ar­lega hér­lendis sam­hliða spreng­ingu í komu erlendra ferða­manna hingað til lands. Þá hefur kvört­unum til Sam­göngu­stofu vegna útsýn­is­flugs á ferða­manna­stöðum fjölgað sömu­leiðis.

Á síð­asta ári lagði bæj­ar­ráð Ísa­fjarð­ar­bæjar fram til­lögu um að banna lág­flug yfir friðland­inu á Horn­ströndum, eftir að fram kom hyg­myndir um þyrlu­flug á svæð­inu, en til­lagan tók mið af áður­nefndu flug­banni yfir Þjórs­ár­verum.

Þing­valla­nefnd hefur fjallað um þyrlu­flug, og hefur rætt hvort ástæða sé til að setja skýr­ari reglur um útsýn­is­flug í þjóð­garð­inum. Ólafur Örn Har­alds­son, þjóð­garðs­vörður á Þing­völlum, segir í sam­tali við Kjarnann að færst hafi í vöxt að gestir þjóð­garðs­ins kvarti undan ónæði vegna þyrlna og flug­véla. Hann segir að víða erlendis séu í gildi tak­mark­anir um útsýn­is­flug í þjóð­görðum, á frið­lýstum svæðum eða á vin­sælum ferða­manna­stöðum, eða það háð sér­stöku leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár