Gummi Páls lenti í ránstilraun í Barcelona

Baggalút­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Guð­mundur Pálsson lenti í miður skemmti­legri lífs­reynslu í Barcelona á sunnu­dags­kvöldið, þegar gerð var til­raun til að ræna hann.

„Ég var nýbú­inn að skutla tengda­fjöl­skyld­unni og stráknum okkar, sem voru hjá okkur um pásk­ana, út á flug­völl og var kom­inn inn í borg­ina aftur, þegar leigu­bíl­stjóri sem var stopp við hlið­ina á mér á umferð­ar­ljósum fór að senda mér skila­boð með alls­konar handapati. Benda á augun á sér og gefa mér allskyns merki. Ég skildi ekki upp eða niður. Hélt ég hefði svínað fyrir hann eða farið yfir á rauðu og hann væri að segja mér að fara var­lega. Svo upp­götv­aði ég að það var sprungið á bílnum. Það var ekki hægt að stöðva bíl­inn þar sem ég var, þannig að ég neydd­ist til að keyra hann lengra en ég hefði viljað, en náði svo loks að stoppa við umferð­ar­ljós í hverf­inu okkar,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann.

Til­raunir til að skipta um dekk í myrkr­inu gengu illa og því neydd­ist Guð­mundur til að þræla bílnum á sprungnu dekki í bíla­kjall­ara, þar sem þau leigja stæði fyrir bíl­inn.

Guð­mundur hefur á und­an­förnum mán­uðum ferð­ast um þjóð­vegi Evrópu ásamt eig­in­konu sinni og tveimur ungum börnum á fjöl­skyldu­bílnum sem þau fluttu með úr Vest­ur­bænum í Reykja­vík yfir á meg­in­landið. Guð­mundur hefur fært við­burða­ríka ferða­sögu fjöl­skyld­unnar til heim­ilda í hlað­varps­þátt­unum Pabbi þarf að keyra, sem aðgengi­legir eru í Hlað­varpi Kjarnans.

[caption id="attachment_25389" align="alignnone" width="613"] Mynd af Fés­bók­ar­síðu Gumma Páls.[/caption]

Eftir raunir sunnu­dags­kvölds­ins setti Guð­mundur vara­dekkið undir fjöl­skyldu­bíl­inn og hélt á verk­stæði með sprungna dekkið. „Þegar ég mætti á verk­stæðið spurðu þeir mig hvort dekkið hefði verið far­þega­megin að aftan. Þegar ég jánk­aði því, báðu þeir um að fá að sjá dekkið og sýndu mér hvar stungið hafði verið gat á það með hnífi. Þetta væri svona dæmi­gert trix. Líklega hefðu tveir bandítar á vespu verið að verki. Það átti sem sagt að ræna kall­inn við vega­kant­inn. Senni­lega hefur leigu­bíl­stjór­inn séð til þeirra og verið að vara mig við.“

Guð­mundur segir að útlenskar núm­era­plötur hafi vafa­laust dregið athygli þjóf­anna að bílnum, og sömu­leiðis það að hann hafi verið einn á ferð. „Þeir hafa senni­lega kíkt í bíl­inn á meðan ég lá undir honum þarna í myrkr­inu við umferð­ar­ljósin og ekki séð neitt þar til að hafa með sér,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann aðspurður um manna­ferðir við bíl­inn þar sem hann stóð út í vega­kanti. „Það var ein­hver umferð þarna, bílar og vespur sem stopp­uðu við hlið­ina á mér. Ég skildi hurð­ina meira að segja eftir opna, þannig að ég hef verið auð­veld bráð.“

Aðspurður um hvort sér hafi verið brugðið, svar­aði Guð­mundur: „Nei, ekki baun. Flestir sem eru rændir hérna eru rændir af því að þeir pössuðu sig ekki og það er sjaldan ofbeldi í spil­inu.“

Reikna má með að ránstil­raun­inni verði gerð frek­ari skil í kom­andi hlað­varps­þáttum af Pabbi þarf að keyra, en næsti þáttur fer í loftið á laug­ar­dag­inn klukkan 11:30.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár