Stjörnustríðsmyndirnar fara á netið um helgina

Senn verður bið fjöl­margra aðdá­enda Stjörnu­stríðs­mynd­anna eftir að þær verði aðgengi­legar á net­inu á enda, því allar sex Star Wars kvik­mynd­irnar verða í boði til nið­ur­hals á net­inu frá og með föstu­deg­inum. Frétta­mið­ill­inn Business Insider greinir frá tíð­ind­unum.

Star Wars bíó­mynd­irnar, frá „The Phantom Menace“ til „Return of the Jedi“ verða aðgengi­legar til nið­ur­hals á nokkrum staf­rænum afþrey­inga­veitum, þeirra á meðal eru iTu­nes, Google Play, Amazon, Vudu og PlayStation Store.

Samkvæmt heim­ildum USA Today mun hver mynd kosta 20 Banda­ríkja­dali, en svo er hægt að kaupa alla ser­í­una á 100 dali, eða um 13.600 íslenskar krónur. Með hverri mynd fylgir mikið auka­efni, áður óbirtar senur, mis­heppn­aðar tökur og sögur af töku­stað.

Disney, sem keypti kvik­mynda­fyr­ir­tækið Lucasfilm af George Lucas árið 2012 fyrir rúma fjóra millj­arða Banda­ríkja­dala og þar með rétt­inn að Star Wars og Indiana Jones vöru­merkj­unum, ákvað að halda kvik­mynda­bálknum frá streymi­veitum á borð við Netflix og bjóða þess í stað upp á nið­ur­hal í bestu mögu­legum gæðum með fjöl­breyttu auka­efni.

Til að hita upp fyrir staf­ræna útgáfu Stjörnu­stríðs­mynd­anna var útbúin stikla. Hana má berja augum hér að neðan.

Eins og flestir aðdá­endur Star Wars mynd­anna vita mæta­vel, er von á að sjö­unda kvik­myndin í vin­sæl­ustu kvik­mynda­röð sög­unnar þann 18. des­em­ber næst­kom­andi. Myndin hefur hlotið nafnið „The Force Awakens“ og ger­ist eftir „Return of the Jedi,“ sem frum­sýnd var árið 1983. Á þessu ári verða liðin tíu ár frá því að síð­asta Star Wars mynd var frum­sýnd, „Revenge of the Sith,“ sem fékk afar mis­jafnar mót­tökur gagn­rýnenda sem og tvær Stjörnu­stríðs­mynd­irnar á undan henni, það er „The Phantom Menace“ og „Attack of the Clones.“

Sjá stiklu úr fyrstu Star Wars mynd­inni úr smiðju Disney hér að neðan, en hún lofar góðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár