Gallerí: Loftárásir, kjarnavopn og Harry Potter

Sögulegt sam­komu­lag Banda­ríkj­anna og Íran kann að vera í hættu ef repúblikanar á Banda­ríkja­þingi sam­þykkja ekki til­lögur Obama banda­ríkja­for­seta. Íranir munu draga úr kjarn­orku­á­ætl­unum sínum veru­lega gegn því að Banda­ríkin létta á við­skipta­þving­unum. Þetta er meðal þess sem er að ger­ast í heim­inum í dag.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Meðal kaþ­ólskra Fil­ipsey­inga eru páskar mik­il­væg hátíð. Ár hvert flykkj­ast inn­lendir og erlendir ferða­menn til San Pedro Cutud til að fylgj­ast með trú­ræknum ein­stak­lingum ganga í gegnum sömu þján­ingar og Jesús er sagður hafa upp­lifað í Bibl­í­unni. Bak þeirra er blóðgað með svipu­höggum, þeir bera krossa sína og láta síðan kross­festa sig af mönnum klæddir eins og róm­verskir her­menn. Kaþólska kirkjan fellst ekki á þessar venjur og minnir á að svona aðferðir grafi undan raun­veru­legri merk­ingu páska­há­tíð­ar­innar.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Sádí-Arabar hafa und­an­farna viku leitt loft­árásir banda­manna gegn upp­reisn­ar­mönnum í Jemen. Hútí-fylk­ing síta og stuðn­ings­menn Ali Abdulla Saleh, fyrr­ver­andi for­seta Jemen, hafa gert harðar atlögur gegn stjórn­ar­hernum í Jemen und­an­farnar vikur. Loft­árás­irnar bein­ast helst að mönn­uðum búðum Hútí-manna í aust­ur­hluta Sana‘a, stærstu borg­ar­innar í Jemen. Stjórn­völd í Sádí-Arabíu telja hugs­an­legt að Saleh búi yfir kjarn­orku­vopnum og hann sé lík­legur til alls.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Harry Potter-sýn­ing hefur verið opnuð í Cite du Cinema í París. Á sýn­ing­unni fá gestir að upp­lifa myrkan heim galdra­drengs­ins úr bókum J.K. Rowling og sjá áróður galdra­mála­ráðu­neyt­is­ins gegn ást­vinum Harrys. Hér sést breski leik­ar­inn Gary Oldman í gervi Siriusar Black, sem ráðu­neytið ellti eftir að hann slapp úr hinu alræmda fang­elsi í Azkaban.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Barack Obama, Banda­ríkja­for­seta, bíður erfitt verk­efni á næstu dögum við að sann­færa Banda­ríkja­þing um að sam­þykkja nýund­ir­ritað kjarn­orku­sam­komu­lag við Íran. Gegn því að Íranir tak­marki kjarn­orku­á­ætl­anir sínar gríð­ar­lega hafa Banda­ríkin sam­þykkt að slaka á við­skipta­þving­unum. Repúblikanar í þing­inu, og ein­hverjir demókratar, krefj­ast þess hins vegar að geta haft áhrif á sam­komu­lagið sem und­ir­ritað hefur verið.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Leið­togar stærstu fram­boð­anna í bresku þing­kosn­ing­unum sem fram fara í vor mætt­ust í kapp­ræðum á ITV-sjón­varps­stöð­inni á fimmtu­dag. Auk stærstu fram­boð­anna á lands­vísu var full­trúum skoska þjóð­ar­flokks­ins og velska sjálf­stæð­is­flokks­ins boðið að taka þátt. Enginn þótti hafa skarað sér­stak­lega framúr í kapp­ræð­unum eins og sást vel í þeim könn­unum sem gerðar voru um frammi­stöðu full­trú­anna. Stjórn­mála­skýrendur voru þó flestir á einu máli um að hin skoska Nicola Sturgeon hafi staðið sig best. Kosn­ingar fara fram 9. maí í Bret­landi.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár