Baráttan gegn dansi og diskó í Svíþjóð

Þótt Svíum finn­ist fátt skemmti­legra en að syngja saman í góðra vina hópi þarf heldur meira til að gleðin nái alla leið niður í tær. Enda er dans ekk­ert gam­an­mál og þá sér­stak­lega þegar áfengi er haft um hönd. Þrátt fyrir að mörgum finn­ist reglur um helgi­hald helst til of strangar á Íslandi má finna sam­bæri­legar reglur í Svíþjóð sem gilda allan árs­ins hring. Ein þeirra snýst um sér­stakt leyfi sem eig­endur veit­inga- og skemmti­staða þurfa að ná sér í til að fólk megi dansa á staðnum. Á Íslandi er kannski bannað að spila bingó á föstu­dag­inn langa, en í Svíþjóð er bannað að dansa allan árs­ins hring nema hið opin­bera hafi leyft það.

Þessar reglur eru ekki bara úreltar leifar fyrri tíma – heldur má enn finna dæmi þess að þær séu not­aðar til að svipta staði vín­veit­ing­ar­leyfi. Dag­blaðið Dagens Nyheter birti meðal ann­ars umsögn eft­ir­lits­manns í borg­inni Gävle sem hafði skoðað veit­inga­stað þar sem regl­urnar virt­ust brotnar. „Á gólf­inu voru milli 50-80 manns sem hreyfðu sig í takt við tón­list­ina með því sem aðeins er hægt að lýsa sem dans­legum hreyf­ingum.“ Þessi form­lega lýs­ing emb­ætt­is­manns­ins dregur upp skýra mynd af lög­broti sem von­andi tókst að kæfa í fæð­ingu.

Nú kunna ein­hverjir að halda að stjórn­mála­menn átti sig á hversu úreltar þessar reglur eru. Reyndar voru þær einmitt ræddar á sænska þing­inu fyrir páska og þurftu þing­menn að greiða atkvæði um það hvort ætti að fella þær úr gildi. Tillagan hlaut ekki hljóm­grunn þrátt fyrir ýmsir segð­ust í raun styðja hana. Talað var um að leggja nýja til­lögu fyrir ein­hvern tím­ann síðar, en þangað til það ger­ist er enn bannað að dansa í Svíþjóð – nema með þar til gerðu leyfi.

[caption id="attachment_25065" align="alignnone" width="800"] Hér gefur að líta fólk sem hreyfir sig í takt við tón­list með því sem aðeins er hægt að lýsa sem dans­legum hreyf­ingum.[/caption]

Dansinn og diskóið


Segja má að dans­bannið hafi tengst diskó­inu sem margir ótt­uð­ust. Orðið diskó­tek á reyndar upp­runa sinn að rekja til Frakk­lands og var notað til að lýsa stöðum þar sem tón­list var spiluð af hljóm­plötum en ekki af hljóm­sveit. Við lok sjö­unda ára­tug­ar­ins urðu slíkir klúbbar sífellt vin­sælli og spruttu upp eins og gorkúlur í Svíþjóð. Þótti mörgum nóg um og árið 1968 ákvað sveita­stjórnin í Örebro að mynda diskó­teks­nefnd til að fylgj­ast með þess­ari nýj­ung. Ári seinna, eða í mars árið 1969, opn­aði svo Don Kíkóte sem var fyrsta diskó­tekið í opin­berri eigu í Svíþjóð. Hug­myndin var sú að opna ódýran dans­stað til þess að efna­m­inna fólk hefði sömu tæki­færi til að dansa eins og þeir sem rík­ari væru.

Þessi ákvörðun féll hins vegar mis­vel í kramið hjá fólki og á næstu árum jókst gagn­rýnin á diskó­tekin. Árið 1971 var í fyrsta sinn rætt um diskó­tek í sænska þing­inu. Jafn­að­ar­mað­ur­inn Åke Gustavs­son benti á að ung­dómur lands­ins eyddi um tveimur millj­örðum sænskra króna á ári á diskó­tekum sem væri skýrt merki um arð­rán og mis­notkun á ungu fólki. Í grein í DN frá 1976 bendir svo þing­maður Vinstri flokks­ins á að diskó­tekin vinni gegn sænskri menn­ing­ar­stefnu og að nauð­syn­legt sé að berj­ast gegn áhrifum auð­valds­stefn­unnar innan menn­ing­ar­geirans. Árið1979 kröfð­ust sam­tök tón­list­ar­manna þess að sér­stakur skattur yrði lagður á staði sem spil­uðu tón­list af hljóm­plötum en biðu ekki upp á lif­andi tón­list. Jafn­framt var þess kraf­ist að bannað yrði að selja áfengi á slíkum stöðum. Fólk þurfti sem sagt að velja á milli þess að dansa og að drekka.

Menn­ing­ar­el­ítan virt­ist mót­fall­inn diskó­stöð­unum sem buðu upp á hraðsoðna menn­ingu frá útlöndum en þó voru und­an­tekn­ingar. Ungur rit­höf­undur og blaða­maður, Stig Larsson, skrif­aði árið 1979 að diskó­tek væru mik­il­væg því að ef hægt væri að tala um heim­speki diskó­teka væri hún sú að fólk þyrfti ekki að hugsa, bara að vera. Og þannig hefur diskó­tekum og reyndar diskói verið lýst í gegnum tíð­ina, sem popptón­list sem gerir það að verkum að fætur hreyfast og axlir hrist­ast, jafn­vel án þess að fólk ætli sér að dansa.

Dansinn leiðir til slagsmála og óþrifnaðar


Þessar ósjálf­ráðu hreyf­ingar geta sem sagt kostað eig­endur skemmti­staða bæði rekstrar- og vín­veit­ing­ar­leyfið. Regl­urnar sem nú gilda voru settar 1993 en byggja á eldri reglum frá 1956 og þrátt fyrir ýmsar til­raunir hefur þeim ekki verið breytt. Fyrir þremur árum skipu­lagði hópur dans­á­huga­fólks mót­mæli í Stokk­hólmi þar sem ætl­unin var að dansa eftir götum mið­borg­ar­innar. Reyndar var sér­stak­lega tekið fram að hóp­ur­inn hefði aðeins leyfi til að ganga um göt­urnar – ekki hefði verið veitt leyfi til að dansa um göt­urnar. Tals­maður lög­regl­unnar sagði í sam­tali við sænska rík­is­út­varpið árið 2012 að hann von­að­ist til að regl­unum yrði ekki breytt. Hann hefði að sjálf­sögðu heilsu veit­inga­húsa­gesta í huga því eins og allir vissu snérist þetta fyrst og fremst um öryggi. „Við vitum að á dans­gólfum er oftar sleg­ist en á venju­legum veit­inga­stöðum, þar er meira drasl og fleiri upp­á­komur sem krefj­ast afskipta lög­reglu.“

Nú skal tekið fram að í Svíþjóð er afskap­lega auð­velt að finna staði sem bæði bjóða upp á dans og áfengi og ekki þarf að leita lengi um helgar til að finna slags­mál eða drasl í kringum skemmti­staði. En kannski er stað­reyndin sú að fátt ógni öryggi almenn­ings meir en fólk sem brestur á með dansi í tíma og ótíma? Lög­reglan hefur vísað til skelfi­legra atburða á borð við bruna á diskó­teki í Gauta­borg árið 1998 þar sem 63 lét­ust. Stað­reyndin er hins vegar sú að staðir sem bjóða upp á skemmt­anir þurfa að sjálf­sögðu að upp­fylla ákveðnra kröfur um til dæmis bruna­varnir og flótta­leiðir. Atburð­ur­inn í Gauta­borg varð vegna þess að slíkum kröfum var ekki full­nægt, ekki vegna þess að skipu­leggj­endur voru ekki með dans­leyfi.

Miðað við hvernig stjórn­mála­menn tala opin­ber­lega mætti ætla að mót­mælin beri árangur því eng­inn virð­ist vilja verja regl­urnar opin­ber­lega. Í það minnsta tókst P3 stöð sænska rík­is­út­varps­ins ekki að fá nokkurn stjórn­mála­mann í við­tal til að tala gegn því að þær yrðu felldar úr gildi. Þar til það ger­ist – og það hlýtur bara að ger­ast – verða Svíar því að gæta sín á öllum kækjum og kippum því það er aldrei að vita nema lög­reglan mæti á svæðið. Nema auð­vitað að Kevin Bacon komi á undan henni.

https://www.youtube.com/watch?v=3T2FpCDlyNg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár