Í Svíþjóð mega gul hús bara vera í einum gulum lit og hana nú!

Stundum koma upp mál sem fá okkur til að hugsa um þjóð­arsál­ina – svona að því gefnu að eitt­hvað sé til sem heiti þjóð­ar­sál. Við heyrum fréttir og fáum stað­fest að Bretar drekki bara te á milli þess sem þeir horfi á fót­bolta, Danir skoli smör­rebröd niður með einum köldum og að Þjóð­verjar hafi neitað að vera á þessum lista því umsókn var ekki skilað í þrí­riti. Og svo eru það Svíarnir.

Stundum verðum við Íslend­ingar pirraðir á því að útlend­ingar spyrji okkur hvort við þekkjum Björk og trúum á álfa. Ætli Svíum líði ekki eins þegar sagt er að þeir séu hávaxnir og ljós­hærðir og hafi skráðar og óskráðar reglur um allt. Síðustu viku hafa Svíar einmitt velt því fyrir sér hvort þjóð­fé­lagið hafi gengið of langt þegar kemur að reglum. Að þessu sinni er ekki spurt hvenær maður drepi mann – heldur hvenær gult hús sé gult.

Ekki hættulaust að mála hús


Bærinn Mjölby liggur nokkurn veg­inn miðja vegu milli Linköp­ing og Jönk­öp­ing í Gaut­landi eystra. Á íslensku mætti kalla hann Myllubæ enda nafnið dregið af gömlu sænsku orði yfir myllur. Íbúarnir eru um tólf þús­und í þessu frekar frið­sama bæj­ar­fé­lagi við Svartána, en flestir Svíar þekkja hann eflaust bara vegna lest­ar­stöðv­ar­innar sem tengir saman fjöl­farnar leiðir, meðal ann­ars milli Stokk­hólms og Gauta­borgar. Í raun er ekki margt um Myllubæ að segja. Listinn yfir þekkta Myllu­bæ­inga er stuttur og ekki hafa íþróttaliðin gert neinar rósir. Þó ber að nefna að bæj­ar­kirkjan þykir nokkuð snotur en við hana má meðal ann­ars finna klaust­ur­rústir frá tólftu öld. Og hér hefst kannski loks­ins hin eig­in­lega saga.

[quote font="0" align="right"]Nú skal tekið fram að húsin í kring eru hvorki gul né græn og lík­lega er hægt að halda því fram að það breyti heild­ar­mynd hverf­is­ins.[/quote]

Fyrir nokkru síðan ákvað mynd­list­ar­mað­ur­inn Bernth Uhno að flytja í Myllubæ. Hann keypti hús sem hafði staðið autt frá árinu 1981 og gerði það upp. Nú skal tekið fram að í Svíþjóð leggur fólk mikið upp úr því að hús séu fal­lega máluð. Stundum eru heilu hverfin í sama lit en oft­ast er blandað saman gulum, grænum, rauðum og jafn­vel bleikum húsum.

Fátt gefur líf­inu jafn mik­inn lit og vel máluð hús. Bæj­ar­yf­ir­völdum í Myllubæ fannst húsið hans Bernth hins vegar aðeins of mikið af því góða. Mynd­list­ar­mað­ur­inn ákvað nefni­lega að beita kunn­áttu sinni til að ná fram lit­brigðum á hús­inu, veggirnir eru því eilítið ljós­gul­ari neðst en renna út í app­el­sínugult eftir því sem ofar dregur. Nú skal tekið fram að húsin í kring eru hvorki gul né græn og lík­lega er hægt að halda því fram að það breyti heild­ar­mynd hverf­is­ins. En rökin sem stjórn­mála­menn­irnir not­uðu þykja heldur hlægi­leg.

[caption id="attachment_24552" align="alignnone" width="702"] Lista­mað­ur­inn Bernth Uhno og umdeilda gula húsið hans í Myllubæ.[/caption]

Svona litasamsetning er ekki sænsk


Anders Steen er bæj­ar­full­trúi fyrir Mið­flokk­inn og for­maður í bygg­ing­ar­nefnd bæj­ar­ins. Hann sendi Bernth bréf þar sem þess var kraf­ist að húsið yrði málað upp á nýtt. Í við­tölum við fjöl­miðla var hann spurður hvers vegna þessi ákvörðun hafði verið tekin og svarið vakti óneit­an­lega athygli. „Svona lita­sam­setn­ing er ekki sænsk“, sagði hann í við­tali við sænska rík­is­sjón­varpið. Þegar hann var beð­inn um að útskýra nánar hvað hann ætti við sagði hann að í Svíþjóð héldi fólk sig við einn lit. Það væri nefni­lega þannig, sagði Steen, að sænski guli lit­ur­inn væri ein­fald­lega sami guli litur yfir allan flöt­inn.

[quote font="0" align="right"]Samtök hús­eig­enda í Svíþjóð mót­mæla ákvörð­un­inni harð­lega og telja að í fyrsta lagi sé sektin allt of há og að í öðru lagi hafi bæj­ar­yf­ir­völd tekið sér allt of mikil völd.[/quote]

Þrátt fyrir nót­mæli heldur bæj­ar­stjórnin sig við fyrri ákvörðun og krefst þess að Bernth máli húsið aftur. Hann hefur fram á haustið til að bregð­ast við en frá og með sept­em­ber þarf hann að borga sekt ef húsið er enn í sama lit. Já, eða öllu heldur – ekki í einum lit. Sektin er engin smá­upp­hæð eða 22.500 sænskar á mán­uði sem eru um 350 þús­und íslenskar. Samtök hús­eig­enda í Svíþjóð mót­mæla ákvörð­un­inni harð­lega og telja að í fyrsta lagi sé sektin allt of há og að í öðru lagi hafi bæj­ar­yf­ir­völd tekið sér allt of mikil völd.

Almenningur virðist styðja Bernth


Frá því á mánu­dag þegar SVT birti fyrstu frétt­ina um málið hefur stuðn­ingur við Bernth vaxið dag frá degi. Ríflega tíu þús­und hafa líkað við stuðn­ings­síðu á Facebook og tæp­lega 5000 hafa skrifað undir áskorun til bæj­ar­yf­ir­valda. Þá var fyrstu frétt SVT um málið deilt tæp­lega 40 þús­und sinnum á Facebook. Í kjöl­farið hafa bæj­ar­yf­ir­völd reyndar breytt rök­stuðn­ingi sínum og halda því nú fram að gula húsið hafi nei­kvæð áhrif á menn­ing­arminjar í bænum. Standi maður við klaust­ur­rúst­irnar umræddu frá 12. öld sé guli lit­ur­inn á hús­inu nefni­lega allt of áber­andi. En eins og frétta­kona SVT benti á í þess­ari frétt er nóg að snúa sér í hina átt­ina við rúst­irnar til að sjá bens­ín­stöð í gulum lit og því ekki kýr­skýrt hvað það er við hús Bernths sem truflar svo mikið.

Þetta er reyndar langt í frá fyrsta mál sinnar teg­undar í Svíþjóð. Dæmi eru um blá, fjólu­blá, gul og bleik hús sem stjórn­mála­menn og bygg­ing­ar­full­trúar gera athuga­semdir við. Og við­brögðin eru nán­ast alltaf þau sömu – nefni­lega hvort þetta fólk hafi ekk­ert betra við tím­ann að gera.

Þegar þetta er ritað er alls óvíst hvernig sög­unni lýkur. Hvort Bernth láti undan og end­ur­máli húsið, eða hvort stuðn­ingur almenn­ings fái bæj­ar­yf­ir­völd til að skipta um skoðun. Leið­ara­höf­undur Afton­bla­det bendir á að besta leiðin til að leysa málið sé að muna eftir því í næstu kosn­ingum. Þangað til hlæjum við hin að ljós­hærðu og hávöxnu Svíunum sem hafa skráðar og óskráðar reglur um allt. Það er nefni­lega alveg ótrú­legt hvað Svíar eru dug­legir að fara eftir reglum – nema auð­vitað þegar þeir gera það ekki.

[caption id="attachment_24554" align="alignnone" width="721"] Hér má sjá hvernig hægt væri að leysa málið með því að mála húsið í erkisænskum litum.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár