„Við erum í klassa fyrir ofan Kasakana og vinnum þá 2-0“

Töluverð eft­ir­vænt­ing ríkir fyrir viður­eign íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta við lands­lið Kasakstan í for­keppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu sem fram fer í dag. Leik­ur­inn verður háður í Astana, höf­uð­borg Kasakstan, og hefst klukkan 15:00 og verður í beinni sjón­varps­út­send­ingu á RÚV. Upphitun fyrir viður­eign­ina hefst hálf­tíma fyrir leik.

Lands­liðið hefur aldrei byrjað for­keppni fyrir stór­mót í fót­bolta jafn vel og nú. Liðið situr í öðru sæti A-rið­ils með níu stig eftir fjóra leiki, þremur stigum á eftir topp­liðið Tékka og þremur stigum betur en stjörnu­prýtt lands­lið Hol­lend­inga, sem situr í þriðja sæt­inu með sex stig. Þar að auki er íslenska lands­liðið með bestu marka­töl­una í riðl­inum, með sjö mörk í plús, hefur skorað níu mörk og fengið á sig tvö. Sjálft Evr­ópu­meist­ara­mótið fer fram í Frakk­landi næsta sumar.

Mikil spenna í stuðningssveit landsliðsins


Tólfan, stuðn­ings­sveit íslenska lands­liðs­ins í fót­bolta, ætlar að hitt­ast á Ölver klukkan eitt til að hita upp fyrir leik­inn. Styrmir Gíslason, fyrr­ver­andi for­maður Tólf­unnar, annar stofn­enda og and­legur leið­togi stuðn­ings­sveit­ar­innar, á von á fjöl­menni á Ölver í dag. „Ég er viss um að við smekk­fyllum stað­inn. Menn eru orðnir þyrstir eftir vet­ur­inn að hitt­ast og gera eitt­hvað skemmti­legt, þannig að ég á von á hörku mæt­ingu,“ segir Styrmir í sam­tali við Kjarnann.

Mikil spenna ríkir fyrir leiknum á meðal stuðn­ings­manna íslenska karla­lands­liðs­ins, eins og áður segir, en kom aldrei til greina að hluti þeirra færi með til Kasakstan? „Það kom vel til greina og nokkrir grjót­harðir voru með alla anga úti að reyna að koma sér og sínum út til Kasakstan. Þeir gáfust hins vegar upp á því á end­anum, þegar þeir sáu hvað ferða­lagið yrði langt og kostn­að­ar­samt. Þannig að menn ákváðu bara að spara sig í stað­inn fyrir næsta úti­leik gegn Hol­lend­ingum, og ég get alveg lofað því að það verður eitt­hvað svaka­legt.

Skyldusigur, ekki spurning


Leik­ur­inn í dag er gríð­ar­lega mik­il­vægur fyrir lands­liðið, ætli það að vera áfram með í bar­átt­unni um að kom­ast á stór­mót í fót­bolta í fyrsta skipti í sögu karla­lands­liðs­ins. „Leik­ur­inn leggst mjög vel í mig og ég hef hörku trú á þessu,“ segir Styrmir aðspurður um hvort ekki sé um að ræða skyldu­sigur hjá íslenska lands­lið­inu. „Þjálf­ar­inn hefur sjálfur gefið út að þetta sé skyldu­sigur, og ég er sam­mála honum. Þegar maður lítur á liðin þá finnst manni að við eigum að vinna þá. Ég veit alveg að það er erfitt að fara á svona úti­völl, en ég held bara að við séum klassa fyrir ofan Kasakana. Við eigum, ef allt er eðli­legt, að vinna þennan leik. Auðvitað getur alltaf komið eitt­hvað óvænt upp á, en ég er þægi­lega bjart­sýnn fyrir þennan leik,“ segir Styrmir og spáir Íslandi 0-2 sigri gegn Kasakstan.




Leik­dagur í Astana. Létt hreyf­ing í hàdeg­inu. Allir klàrir.

Posted by KSÍ - Knatt­spyrnu­sam­band Íslands on 27. mars 2015

„Eigum heima á stóra sviðinu“

Ef Ísland sigrar leik­inn í dag, verður lands­liðið komið í ansi væn­lega stöðu. „Ef við vinnum þá erum við auð­vitað komnir í fárán­lega góða stöðu. Ég við­ur­kenni fús­lega að mér leist ekki á blik­una þegar ég sá riðil­inn okkar fyrst, og það var sér­stak­lega svekkj­andi í ljósi þess hvað við vorum nálægt því að kom­ast á síð­asta stór­mót að fá svona riðil. En strák­arnir hafa bara verið ótrú­legir, sem og þjálf­ar­arnir og allt teymið í kringum liðið, og við ætlum bara samt að rúlla þessum riðli upp.

Í við­tali við Kjarnann í aðdrag­anda viður­eignar Íslands og Hollands, sem fram fór á Laug­ar­dals­velli þann 13. októ­ber síð­ast­lið­inn, full­yrti Styrmir að íslenska karla­lands­liðið væri á leið­inni á stór­mót í fyrsta skiptið í sög­unni. „Ég er enn gall­harður á því. Ég bara veit að við erum að fara á stór­mót í fyrsta skiptið núna. Við erum bara með það gott lið að það á heima á stóra svið­inu,“ segir Styrmir víg­reifur í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár