"Við erum að fara á stórmót í fyrsta skipti, það er klárt"

Mikil eft­ir­vænt­ing ríkir fyrir viður­eign íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta við það hol­lenska, sem fram fer á Laug­ar­dals­vell­inum í kvöld. Um er að ræða þriðja leik lið­anna í A-riðli for­keppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu, sem fram fer í Frakk­landi árið 2016. Ísland trónir á toppi rið­ils­ins með fullt hús stiga eftir frækna sigra á Tyrkjum og Lettum, sem báðir lykt­uðu 3-0.

Tólfan, stuðn­ings­sveit íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, hyggst fjöl­menna í N-hólf "nýju" stúkunnar í kvöld sem endranær. "Maður er við það að fríka út," segir Styrmir Gíslason for­maður og annar stofn­enda Tólf­unnar í sam­tali við Kjarnann.

Vildu breyta stemmningunni í stúkunni


Tólfan var stofnuð árið 2007 af Styrmi og Grétari Erni Eiríks­syni. "Við fórum á leik gegn Lettum, minnir að það hafi verið árið 2006 eða 2007. Við töp­uðum leiknum og það voru svona fjórir eða fimm Lettar í stúkunni sem hrein­lega eign­uðu sér Laug­ar­dals­völl­inn. Við Grétar hertum okkur upp og görg­uðum eitt­hvað á móti Lettunum, en fengum þá óþægi­legt augna­ráð frá öðrum vall­ar­gestum fyrir að vera að æpa eitt­hvað á þjóð­ar­leik­vang­inum. Þá hugs­uðum við með okkur að þetta gengi auð­vitað ekki."

[quote font="0" align="right"]"Við töp­uðum leiknum og það voru svona fjórir eða fimm Lettar í stúkunni sem hrein­lega eign­uðu sér Laug­ar­dals­völl­inn. Við Grétar hertum okkur upp og görg­uðum eitt­hvað á móti Lettunum, en fengum þá óþægi­legt augna­ráð frá öðrum vall­ar­gestum fyrir að vera að æpa eitt­hvað á þjóð­ar­leik­vang­inum. Þá hugs­uðum við með okkur að þetta gengi auð­vitað ekki."[/quote]

Styrmir og Grétar hófu þá leit að fólki til að stofna stuðn­ings­sveit fyrir íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta. "Það gekk ótrú­lega vel, og Tólfan setti mæt­ing­ar­met í leik á móti Spán­verjum, þegar Eyjólfur Sverr­is­son var með liðið. Það gekk kannski ekk­ert voða­lega vel hjá lands­lið­inu á þessum tíma, en það var alltaf gleði hjá Tólfunni."

"Lars og Heimir vildu fá Tólfuna sína aftur"


Dapurt gengi lands­liðs­ins undir stjórn Eyjólfs og svo Ólafs Jóhann­es­sonar dró kraft­inn úr Tólfunni, auk þess sem Styrmir flutti út á land og gat því ekki sinnt stuðn­ings­sveit­inni sem skyldi. Tólfan gekk svo í end­ur­nýjun líf­daga eftir að Lars Lagerbäck og Heimir Hall­gríms tóku við íslenska lands­lið­inu. "Heimir hringdi í mig og boð­aði mig á fund með sér og Lars. Ég átti frá­bæran fund með þeim, en þeir vildu fá Tólfuna sína aftur," segir Styrmir. "Þeir gerðu sér grein fyrir hversu vel þetta helst í hendi, góður stuðn­ingur og vel­gengni. Hversu mik­il­vægt það er að hafa ein­hverja með sér í liði á pöll­unum. Þeir báðu okkur um að keyra þetta aftur í gang, sem og við gerðum."

Síðan þá hefur Tólfan verið áber­andi í stúkunni, og vel­gengni lands­liðs­ins hefur vissu­lega haft sitt að segja með áhuga fólks á að ganga til liðs við stuðn­ings­veit­ina. "Maður finnur hvað það er auð­velt núna að peppa menn upp í þetta. Lands­liðs­menn­irnir þurfa ekki annað en að minn­ast á okkur í við­tölum, sem þeir hafa gert, og að stuðn­ingur okkar skipti þá máli. Það eru verð­launin okkar," segir Styrmir.

Selja treyjur til að eiga fyrir gjallarhornum og trommuskinni


Tólfan heldur ekki félaga­tal en selur sér­stakar stuðn­ings­manna­treyjur, en seldar treyjur í dag eru hátt í þrjú hund­ruð tals­ins. Styrkt­ar­að­ilar Tólf­unnar nið­ur­greiða treyj­urnar, en lítil hluti and­virð­is­ins rennur til stuðn­ings­sveit­ar­innar. "Þetta er bara smá pen­ingur sem við þurfum til að halda utan um batt­er­íið, kaupa gjall­ar­horn og ný trommu­skinn. Við fáum ekk­ert per­sónu­lega í okkar hlut, við sem erum að halda utan um þetta," segir Styrmir.

Þegar Tólfan var í fæð­ingu, fór Styrmir á fund for­ráða­manna KSÍ til að kynna þeim hug­mynd­ina og leita eftir stuðn­ingi. "Þeir höfðu miklar efa­semdir um að þetta myndi virka, þetta hefði verið reynt áður og aldrei gengið almenni­lega. Þeir voru hins vegar til­búnir að gefa okkur afslátt á miðum. Í dag hafa þeir séð ljósið og við njótum vel­vildar þeirra varð­andi miða­sölu og svo­leiðis."

Handviss um að íslenska landsliðið sé á leið á stórmót í fyrsta skipti


Íslenska karla­lands­liðið hefur tvisvar att kappi við það hol­lenska á und­an­förnum árum. Í hrun­leiknum svo­kall­aða, sem fram fór 11. októ­ber 2008 í Rott­er­dam, tap­aði íslenska lands­liðið fyrir Hol­lend­ingum 2-0 í und­ankeppni HM 2010. Óánægðir við­skipta­vinir Lands­bank­ans voru áber­andi á pöll­unum í þeim leik, og kröfð­ust þess að Íslend­ingar stæðu við skuld­bind­ingar sínar vegna Icesave. Síðari leikur þjóð­anna í und­ankeppni HM fór fram á Laug­ar­dals­velli 6. júní 2009, en sá leikur lyktaði með 2-1 sigri Hol­lend­inga. Til marks um end­ur­nýj­un­ina sem hefur átt sér stað í íslenska karla­lands­lið­inu á síð­ustu árum, er útlit fyrir að engin leik­maður sem byrj­aði leik­inn gegn Hol­lend­ingum árið 2009, verði í byrj­un­ar­liði Íslands í kvöld.

[caption id="attachment_9350" align="alignnone" width="640"] Stuðn­ings­menn hol­lenska lands­liðs­ins hafa verið áber­andi í miðbæ Reykja­víkur í dag.[/caption]

"Ég er búinn að spá því að leik­ur­inn í kvöld fari 2-2. Ég held að við gerum jafn­tefli við Hol­lend­inga í báðum leikj­unum okkar við þá í riðl­inum, og við förum upp úr riðl­inum. Við erum að fara á stór­mót í fyrsta skipti, það er klárt. Ég er hand­viss um það," segir Styrmir Gíslason for­maður Tólf­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár