Sigríður Björk: Ekki hægt að kanna í hvert sinn heimild ráðuneytis til að kalla eftir gögnum

„Að mínu mati er ekki hægt að gera þá kröfu til stjórn­enda und­ir­stofn­unar ráðu­neytis að þeir gangi úr skugga um það hverju sinni sem ráðu­neyti kallar eftir upp­lýs­ingum eða gögnum að við­kom­andi hafi heim­ild eða umboð til að óska eftir gögn­unum.“

Þetta má lesa í bréfi Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæðs­ins, sem hún sendi Per­sónu­vernd þann 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Bréfið var sent í tengslum við rann­sókn stofn­un­ar­innar á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar, þegar hún var lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, og Gísla Freys Val­dórs­sonar, þáver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, við upp­haf Leka­máls­ins svo­kall­aða. Kjarninn hefur umrætt bréf undir höndum, en það er hægt að nálg­ast hér.

Í bréf­inu kemur fram afstaða Sigríðar Bjarkar, um að hún hafi sent Gísla Frey grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos í góðri trú og ráðu­neytið hafi átt rétt á að óska eftir gögn­unum frá und­ir­stofnun meðal ann­ars með vísan til laga um Stjórn­ar­ráðið.

Mikilvægt að hægt sé að bregðast skjótt við


„Þá er rétt að árétta að enda þótt gagna­öflun af hálfu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sé að jafn­aði með form­legum hætti, þá ger­ist það alloft að upp­lýs­inga sé beiðst í gegnum síma, eða með tölvu­bréfi, krefj­ist mál skjótrar úrlausnar, eins og hér var um að ræða. Krafa um skil­virka stjórn­sýslu útheimtir að brugð­ist sé við slíku svo fljótt sem unnt er - vissu­lega er rétt að gæta að eðli­legum forms­at­riðum í slíkum til­vikum, en ein­hvers staðar liggja þó tak­mörk í þeim efnum eins og öðrum,“ skrifar Sigríður Björk í áður­nefndu bréfi til Per­sónu­verndar frá 3. des­em­ber síð­ast­liðnum.

Lög­reglu­stjór­inn sendi Per­sónu­vernd annað bréf 30. jan­úar síð­ast­lið­inn vegna rann­sóknar stofn­un­ar­innar á Leka­mál­inu. Kjarninn birti sömu­leiðis það bréf þann 18. mars.

Eins og Kjarninn greindi fyrstur frá komst Per­sónu­vernd að þeirri nið­ur­stöðu í byrjun mars að Sigríður Björk hafi brotið gegn lögum um per­sónu­vernd og miðlun per­sónu­upp­lýs­inga með því að skrá ekki miðlun upp­lýs­ing­anna í mála­skrá lög­regl­unnar, að miðlun þeirra hafi ekki stuðst við við­hlít­andi heim­ild og að ekki hafi verið gætt við­un­andi öryggis við miðlun upp­lýs­ing­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár