Sænsku Píratarnir sitja kyrfilega fastir á skeri

Þegar hver könn­unin á fætur annarri sýnir gríð­ar­legan stuðn­ing við íslensku Píratana er ekki úr vegi að líta til Sví­þjóðar þar sem hreyf­ingin varð til árið 2006. Flokk­arnir eru ekki að fullu sam­bæri­legir þótt þar megi auð­vitað finna ákveðin hug­mynda­fræði­leg lík­indi. Ber þar helst að nefna áhersl­una á borg­ar­leg rétt­indi og rétt ein­stak­linga til að taka þátt í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi auk tæki­færa sem fel­ast í nýju upp­lýs­inga­sam­fé­lagi. Grunn­stefnu Pírata á Íslandi má lesa hér en henni svipar mjög til stefnu sænska syst­ur­flokks­ins. Hins vegar er saga sænsku Píratanna ágætis áminn­ing um þau vanda­mál sem fylgja tíma­bund­inni vel­gengni og bar­áttu flokks­manna um stöður og stefnu.

Skrautlegur stofnandi vakti umtal


Þann 1. jan­úar árið 2006 til­kynnti Rickard Fal­kvinge á spjall­borði að hann hefði stofnað nýja síðu á lén­inu www.piratpartiet.se. Inn­leggið var nafn­laust og hann hefur sjálfur lýst því hversu sáttur hann var eftir fyrstu heim­sókn­ina á síð­una. Hann grun­aði aldrei að nokkrum dögum síðar yrði hann kom­inn í heims­frétt­irnar, hvað þá að millj­ónir manna myndu skoða síð­una á nokkrum dögum. Þann 15. febr­úar hafði flokk­ur­inn verið form­lega skráður sem stjórn­mála­flokkur og í kjöl­far aðgerða gegn deilisíð­unni Pirate Bay fjölg­aði flokks­mönnum ört. Í kosn­ing­unum í sept­em­ber árið 2006 fékk flokk­ur­inn um 35 þús­und atkvæði, 0,63 pró­sent af heild­inni.

Flokk­ur­inn hélt hins vegar áfram að vaxa og bar­átta gegn auknu eft­ir­liti og frelsi á net­inu fékk mik­inn hljóm­grunn. Í Skóla­kosn­ing­unum árið 2009 fékk flokk­ur­inn 19,1 pró­sent atkvæða í Evr­ópu­þings­kosn­ingum og var því orð­inn stærsti flokkur Sví­þjóðar hjá þessum ald­urs­hópi. Skóla­kosn­ingar fara fram í efri bekkjum grunn­skóla og mennta­skólum og hafa engin raun­veru­leg áhrif, en eiga að kynna börn og ung­linga fyrir stjórn­málum og rök­ræðum um mál­efni líð­andi stundar. Eins og á Íslandi virð­ist mál­flutn­ingur Pírata ná sér­stak­lega vel til þessa hóps. Það sýndi sig svo í kosn­ingum til Evr­ópu­þings­ins sama ár að með­byr­inn var mik­ill. Píratar fengu 7,1 pró­sent atkvæða og einn þing­mann á Evr­ópu­þing­inu. Við breyt­ingar í kjöl­far Lissabon-sátt­mál­ans bætt­ist svo einn Pírati við í des­em­ber 2009.

[caption id="attachment_23848" align="alignnone" width="843"] Hinn umdeildi stofn­andi Pírata-hreyf­ing­ar­innar, Rickard Fal­kvinge.[/caption]

Vonbrigðin mikil í þingkosningum 2010


Píratar fóru með gríð­ar­legar vænt­ingar inn í kosn­inga­bar­átt­una árið 2010. Nið­ur­staðan olli þó miklum von­brigðum því flokk­ur­inn hlaut aðeins 0,65 pró­sent atkvæða, litlu fleiri en fjórum árum áður. Þetta þýddi meðal ann­ars að flokk­ur­inn fékk ekki opin­beran fjár­stuðn­ing. Reyndar voru kosn­ing­arnar árið 2010 minn­is­stæðar að öðru leyti því það ár náðu Sví­þjóð­ar­demókratar inn á þing í fyrsta sinn. Enda lit­að­ist kosn­inga­bar­áttan af umræðu um inn­flytj­endur og örygg­is­mál á meðan að áherslur Pírata fengu ekki mikla athygli fjöl­miðla. Erfitt er að segja nákvæm­lega hvers vegna Pírötum gekk ekki betur í þing­kosn­ing­unum. Að ein­hverju leyti má rekja það til tak­mark­aðrar fjöl­miðlaum­fjöll­unar, en í Svíþjóð er venjan að flokkar sem ekki eru taldir eiga mögu­leika á þing­sætum fá tak­mark­aðan tíma í sjón­varpi og eru ekki með í umræðu­þáttum. Einnig hefur verið bent á að fólk kjósi öðru vísi í Evr­ópu­þing­kosn­ingum en þing­kosn­ingum, að þar leyfi fólk sér að taka ákvörðun á öðrum for­sendum en þegar kosið er um skatta, menntun og heil­brigð­is­mál.

[quote font="0" align="right"]Pírötum var legið á hálsi fyrir að hafa óraun­hæfar skoð­anir á ýmsum málum, sagt var að þeir lifðu í sýnd­ar­heimi nets­ins og hefðu engin svör við hefð­bundnum póli­tískum spurn­ingum. [/quote]

Hins vegar verður ekki litið fram­hjá því að Fal­kvinge hafði vakið athygli fyrir væg­ast sagt óhefð­bundna fram­komu. Í des­em­ber árið 2008 skrif­aði hann á blogg­síð­una sína að hann væri nán­ast gjald­þrota og gæti ekki starfað áfram fyrir flokk­inn nema hann fengi stuðn­ing. Píra­ta­flokk­ur­inn hafði ekki efni á því að hafa starfs­mann í vinnu og því lifði for­mað­ur­inn á fram­lögum frá almenn­ingi næstu mán­uði sem yfir­leitt námu á milli 20 og 100 krónum sænskum frá hverjum og einum. Í maí árið 2009 skrif­aði hann svo á Facebook síð­una sína að hann væri að leita að konum til að sofa hjá á kosn­inga­ferða­lagi um Svíþjóð. Líklega er óhætt að segja að þetta sé ekki hefð­bundið inn­legg frá flokks­for­manni, en í raun er ekk­ert við það að athuga að ein­hleypt fólk segi opin­ber­lega að það sé að leita sér að félags­skap. Hvort það sé klókt er svo annað mál.

Barnaklámsumræða skaðaði flokkinn


í kosn­inga­bar­átt­unni 2010 sagði Fal­kvinge í við­tali að end­ur­skoða þyrfti lög sem meðal ann­ars fjöll­uðu um vörslu barnakláms. Í við­tali við sænska útvarpið sagði hann að tján­ingar- og upp­lýs­inga­frelsið þyrfti að verja og þess vegna ætti ekki að refsa fólki fyrir að vera með myndir eða texta í tölv­unni sem skil­greina mætti sem barnaklám. Við­brögðin við yfir­lýs­ing­unni voru gríð­ar­leg og kom gagn­rýnin meðal ann­ars innan úr flokki Pírata. Enda dró for­mað­ur­inn í land degi síðar og lýsti því yfir að hann hefði haft rangt fyrir sér, banna þyrfti fólki að skoða myndir þar sem brotið væri á börnum. Ástæðan fyrir því að hann vakti athygli á lög­unum var hins vegar Manga­málið svo kallað en í því var sænsku þýð­andi ákærður fyrir vörslu barnakláms vegna jap­anskra teikni­mynda­sagna sem hann þýddi yfir á sænsku. Málið vakti gríð­ar­lega athygli og sænsku blaða­manna­sam­tökin gagn­rýndu ákæruna harð­lega. Í kjöl­far yfir­lýs­inga Fal­kvinge kom for­maður sam­tak­anna meðal ann­ars fram og tók undir að end­ur­skoða þyrfti barnaklám­slögin.

Skaðinn var hins vegar orð­inn. Pírötum var legið á hálsi fyrir að hafa óraun­hæfar skoð­anir á ýmsum málum, sagt var að þeir lifðu í sýnd­ar­heimi nets­ins og hefðu engin svör við hefð­bundnum póli­tískum spurn­ingum. Þann 1. jan­úar 2011, nákvæm­lega 5 árum eftir að hann stofn­aði flokk­inn, hætti Fal­kvinge sem for­maður og við honum tók Anna Troberg. Henni hefur hins vegar hvorki tek­ist að ná sömu hæðum og for­veri sinn né að sam­eina flokks­menn í bar­átt­unni.

Biðu afhroð í kosningum árið 2014


Píratar stóðu sig vel á Evr­ópu­þing­inu þótt starf þeirra hafi lík­lega farið fram­hjá flestum. Þeir hafa barist mjög ötul­lega gegn öllum til­raunum til að tak­marka upp­lýs­inga­frelsi almenn­ings og heim­ildum stór­fyr­ir­tækja til að stýra net­um­ferð. Þrátt fyrir þetta fengu þeir lít­inn hljóm­grunn þegar kosið var 2014. Píratar fengu aðeins 2,2 pró­sent af atkvæð­unum og misstu bæði sæti sín á Evr­ópu­þing­inu.

Í kjöl­farið birti Amelia And­ers­dotter blogg­færslu þar sem hún gagn­rýndi flokks­for­ust­una harð­lega. Amelia hafði setið á Evr­ópu­þing­inu fyrir Pírata en sagði að flokk­ur­inn hefði villst af leið og að póli­tísk stefna flokks­ins væri óljós. Hún spáði kosn­inga­ó­sigri í þing­kosn­ingum um haustið enda kom það á dag­inn. Flokk­ur­inn hlaut aðeins 0,43 pró­sent atkvæða, en það sem meira er þá var nán­ast engin umræða um flokk­inn eða stefnu­mál hans fyrir kosn­ing­arnar. For­mað­ur­inn sagði af sér og ný stjórn tók við í byrjun árs 2015.

[caption id="attachment_23852" align="alignnone" width="844"] Amelia And­ers­dotter, sem átti sæti á Evr­ópu­þing­inu fyri hönd sænskra Pírata.[/caption]

Geta íslenskir Píratar búist við sömu þróun?


Í dag er ekk­ert sem bendir til þess að Píratar í Svíþjóð nái við­líka árangri og íslenskir félagar þeirra. Um leið og stofn­and­inn hvarf á braut virð­ist sem illa hafi gengið að sam­ein­ast um áherslur og ein­stak­linga með til­hlýð­andi innri átökum og deilum. Líklega er Skóla­kosn­ing­inn árið 2014 ágætis vís­bend­ing en þar fengu Píratar 8,39 pró­sent í Evr­ópu­þing­kosn­ingum en aðeins 1,98 pró­sent í þing­kosn­ingum. Unga fólkið virð­ist því ekki lengur líta á Pírata sem raun­veru­legan val­kost.

Þar sem höf­undur þessa pistils er stjórn­mála­fræð­ingur er lík­lega rétt að bjóða upp á grein­ingu á stöðu íslenskra Pírata. Stóra spurn­ingin er auð­vitað hvort fylgi þeirra í skoð­ana­könn­unum sé dæmi­gert óánægju­fylgi sem aldrei skili sér í kosn­ingum? Eina rétta svarið er auð­vitað: Kannski, það fer eftir ýmsu. Í því ljósi er rétt að minn­ast Besta flokks­ins, en ákaf­lega fáir trúðu því að fylgi í skoð­ana­könn­unum myndi skila sér í kosn­ingum. Annað kom þó á dag­inn og því er full ástæða fyrir flokk­ana að taka nýlegar kann­anir alvar­lega. Fylgið dreif­ist ekki á stjórn­ar­and­stöð­una heldur leitar á einn flokk – flokk sem leggur höf­uð­á­herslu á að almenn­ingur eigi að ráða meiru en hann gerir í dag. Það er varla til­viljun.

[caption id="attachment_22786" align="alignnone" width="642"] Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, þykir hafa staðið sig vel að und­an­förnu og margir þakka vask­legri fram­göngu hans fylg­is­aukn­ingu Pírata hér á landi.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár