Árna Páli brugðið eftir formannskjörið: „Maður er enginn sólkonungur í þessum flokki“

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hafði betur gegn Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur, þing­manni flokks­ins, í kjöri til for­manns á lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í kvöld. Sigur Árna Páls var hins vegar tæpur, því hann sigr­aði með minnsta mögu­lega mun, eða einu atkvæði, með 241 atkvæði gegn 240.

Sigríður Ingi­björg til­kynnti um fram­boð sitt síð­degis í gær, eða tæpum sól­ar­hring fyrir for­manns­kjörið. Vegna þess hversu seint fram­boð Sigríðar kom fram, var ekki hægt að boða til alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu, heldur réð­ust úrslit for­manns­kjörs­ins á atkvæðum lands­fund­ar­full­trúa.

„Þetta eru auð­vitað ekki óska­úr­slit. Við erum að greiða atkvæði eftir þess­ari nýju reglu í fyrsta sinn og maður vissi svo sem ekki við hverju var að búast. En þetta er nið­ur­staðan, en hún er auð­vitað með þeim hætti að hún leggur mér mjög ríkar skyldur á herðar að halda áfram því verki að sækja fram fyrir flokk­inn og tryggja að við náum að snúa bökum saman.“

Æskilegast að formaður sé kosinn með öðrum hætti


Aðspurður um hvort útspil Sigríðar Ingi­bjargar hafi mögu­lega laskað flokk­inn, taldi Árni Páll svo ekki vera. Í gildi séu ákveðnar leik­reglur sem litlu skili að kvarta yfir.

„Ég hef hins vegar aldrei farið í laun­kofa með þá skoðun mína að mér þykir mjög vænt um þá lýð­ræð­is­hefð Sam­fylk­ing­ar­innar, sem birt­ist í því að við höfum alltaf kosið for­mann í almennri atkvæða­greiðslu allra flokks­manna. Ég hef tekið eftir því að aðrir for­ystu­menn í íslenskum stjórn­málum hafa öfundað mig af því beina umboði sem ég fékk í for­manns­kjör­inu fyrir tveimur árum og ég fer ekk­ert ofan af því að það er lang besta leiðin til að kjósa for­mann í stjórn­mála­flokki. Það er mjög mik­il­vægt að allir fái færi á að koma að atkvæða­greiðslu um for­yst­una.“

Engin málefnalegur ágreiningur við Sigríði


Þunga­vigt­ar­menn innan Sam­fylk­ing­ar­innar, með reynslu af þing­störfum, hafa líkt útspili Sigríðar Ingi­bjargar, að til­kynna fram­boð sitt með slíkum hætti, við aðför að sitj­andi for­manni flokks­ins úr laun­sátri.

„Leik­regl­urnar bjóða upp á slíkan fram­gangs­máta. En til að ég geti brugð­ist við gagn­rýn­is­at­riðum þarf ég að vita hver gagn­rýn­is­at­riðin eru. Það hefur ekki verið um mál­efna­legan ágrein­ing að ræða og við höfum bara verið að vinna saman að úrvinnslu mála, Sigríður Ingi­björg var til að mynda að vinna með mér í þessarri viku að útfærslu á þeirri til­lögu sem nú er til með­ferðar á lands­fund­inum um bráða­að­gerðir og lang­tíma­að­gerðir í hús­næð­is­málum. Það hefur ekki verið neinn mál­efna­á­grein­ingur, heldur bara dag­legt brauð í flokki sem vill brúa fjöl­breytt við­horf. Þess vegna segi ég; ég er fús til að bregð­ast við öllum athuga­semdum, en þær verða að koma fram með skýrum hætti svo ég geti brugð­ist við þeim.“

„Engin draumaniðurstaða“


Það væri ofsögum sagt að halda því fram að Árni Páll standi sterkum fótum sem leið­togi Sam­fylk­ing­ar­innar eftir að hafa sigrað með einu atkvæði í for­manns­kjör­inu í kvöld. Hvernig metur hann stöðu sína í ljósi úrslit­anna?

„Ég gat enga kosn­inga­bar­áttu háð, ég gat ekki talað við nokkurn mann. Jafnvel mínir nán­ustu ætt­ingjar og vinir voru ekki skráðir lands­funda­full­trúar því að engin bjóst við ein­hverjum átökum á þessum fundi. En ég þarf auð­vitað að taka til­lit til þess­arar nið­ur­stöðu og hún er naum. Ég hef í sjálfu sér ekki heyrt nein bein efn­is­leg gagn­rýn­is­at­riði á mína fram­göngu eða mál­flutn­ing, sem ég get brugð­ist við, en nú er óhjá­kvæmi­legt að ég leggi sér­stak­lega eftir því að hlusta eftir slíkum gagn­rýn­is­röddum og spyrja. Því þó gagn­rýnin hafi ekki verið sett fram, þá hlýtur hún að vera fyrir hendi.“

Aðspurður um hvort hin nauma nið­ur­staða hafi komið sér á óvart, játti Árni Páll því. „Þetta er auð­vitað engin drauma­n­ið­ur­staða. Þetta er naum nið­ur­staða og hún þýðir auð­vitað líka að maður verður að fara var­lega. Maður er eng­inn sól­kon­ungur í þessum flokki og maður verður að taka mið af þeim skila­boðum sem maður fær með þess­ari nið­ur­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár