Árni Páll Árnason endurkjörinn formaður Samfylkingarinnar með einu atkvæði

Árni Páll Árnason var end­ur­kjör­inn for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á lands­fundi flokks­ins í kvöld. Þar með sigr­aði hann slag­inn um for­manns­stól­inn við Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar og for­mann vel­ferð­ar­nefndar Alþingis. Tölu­verður dráttur varð á til­kynn­ingu úrslit­anna vegna tækni­legra vanda­mála, en kosn­ingin var raf­ræn.

Sigurinn stóð tæpt því Árni Páll hlaut 241 atkvæði í for­manns­kjör­inu og Sigríður Ingi­björg 240. Alls voru 503 lands­fund­ar­full­trúar á kjör­skrá, 487 þeirra greiddu atkvæði, eða 97 pró­sent. Anna Pála Sverr­is­dóttir hlaut eitt atkvæði og fimm voru auð. Drátt­ur­inn á til­kynn­ingu úrslit­anna má rekja til þess hversu mjótt var á mun­unum. „Þetta er sér­kenni­leg nið­ur­staða,“ sagði Árni Páll þegar hann ávarp­aði lands­fund­inn eftir að til­kynnt hafði verið um úrslitin.

Sigríður Ingi­björg til­kynnti, flestum að óvörum, um fram­boð sitt síð­degis í gær, tæpum sól­ar­hringi fyrir for­manns­kjörið. Framboð hennar kom fram eftir að frestur rann út svo hægt væri að boða til alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu, þannig að kjör á nýjum for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar var ein­ungis í höndum lands­fund­ar­full­trúa.

Árni Páll tók við af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2013. Árni Páll var kjör­inn í alls­herj­ar­kosn­ingu og hlaut afger­andi kosn­ingu í bar­átt­unni um for­manns­stól­inn við Guðbjart Hann­es­son. Sam­fylk­ingin beið afhroð í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum, undir stjórn Árna Páls, þegar flokk­ur­inn hlaut 12,9 pró­sent atkvæða og tap­aði ell­efu þing­mönnum.

Sam­fylk­ing­unni hefur gengið illa að und­an­förnu að ná vopnum sínum að nýju undir for­ystu Árna Páls. Í síð­asta Þjóð­ar­púlsi Gallup mæld­ist flokk­ur­inn með 17,1 pró­sents fylgi, og tap­aði 1,4 pró­sentum á milli kann­anna. Í nýj­ustu könnun MMR mæld­ist flokk­ur­inn með 15,5 pró­senta fylgi og bætti við sig pró­sentu­stigi á milli kann­anna.

Árni Páll Árnason er fjórði þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis, og hefur átt sæti á Alþingi frá árinu 2007 fyrir hönd Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann var félags- og trygg­inga­mála­ráð­herra 2009 til 2010 og efna­hags- og við­skipta­ráð­herra 2010 til 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár