Gunnar Scheving sýknaður í LÖKE máli

Lög­reglu­mað­ur­inn Gunnar Scheving Thor­steins­son var sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í eft­ir­stöðvum LÖKE-máls­ins svo­kall­aða. Ákæru­lið­ur­inn sem Gunnar var sýkn­aður af snérist um meinta miðlun hans á per­sónu­upp­lýs­ingum til þriðja aðila. Þá dæmdi Hér­aðs­dómur að máls­kostn­aður upp á rúmar fjórar millj­ónir króna yrði greiddur úr rík­is­sjóði.

Eins og Kjarninn greindi fyrstur frá á dög­unum ákvað Rík­is­sak­sókn­ari að fella niður veiga­meista ákæru­lið máls­ins, þar sem Gunnari var gefið að sök að hafa flett upp 45 konum í mála­skrá lög­reglu, svoköll­uðu LÖKE-kerfi, án þess að það tengd­ist störfum hans sem lög­reglu­maður. Rík­is­sak­sókn­ari tók ákvörðun um að fella niður ákæru­lið­inn vegna ágalla á rann­sókn máls­ins.

Málið var tölu­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum á sínum tíma, en þar var meðal ann­ars greint frá því hvernig Gunnar Scheving var hand­tek­inn fyrir framan vinnu­fé­laga sína. Í fjöl­miðlum var einnig látið að því liggja að hann hafi not­fært sér aðgang sinn að upp­lýs­inga­kerfi lög­regl­unnar til að graf­ast fyrir um fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­of­beldis.

Gunnar hefur ávallt neitað sök í mál­inu og lög­maður hans Garðar Steinn Ólafsson hefur haldið uppi harðri gagn­rýni á lög­reglu­rann­sókn máls­ins, sem var á for­ræði Rík­is­sak­sókn­ara en unnin á vegum lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár