Ríkissaksóknari fellur frá ákærulið í LÖKE-málinu svokallaða

Rík­is­sak­sókn­ari hefur ákveðið að falla frá veiga­mesta ákæru­lið í LÖKE-máls­ins svo­kall­aða, þar sem lög­reglu­mann­inum Gunnari Scheving Thor­steins­syni var gefið að sök að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í mála­skrá lög­regl­unnar (LÖKE) og skoðað þar upp­lýs­ingar um kon­urnar, án þess að upp­flett­ing­arnar tengd­ust starfi hans sem lög­reglu­manns. Í ákæru máls­ins var Gunnar Scheving sak­aður um að hafa þannig mis­notað stöðu sína í því skyni að afla sér upp­lýs­ingar um kon­urnar.

Aðal­með­ferð í mál­inu er fyr­ir­huguð á morgun fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, en eftir stendur ákæru­liður þar sem Gunnar er sak­aður um að hafa miðlað per­sónu­upp­lýs­ingum sem leynt áttu að fara til þriðja aðila.

Tekinn af lífi í fjölmiðlum


Málið var tölu­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum á sínum tíma, en þar var meðal ann­ars greint frá því hvernig Gunnar Scheving var hand­tek­inn fyrir framan vinnu­fé­laga sína. Í fjöl­miðlum var einnig látið að því liggja að hann hafi not­fært sér aðgang sinn að upp­lýs­inga­kerfi lög­regl­unnar til að graf­ast fyrir um fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­of­beldis.

Gunnar hefur ávallt neitað sök í mál­inu og lög­maður hans Garðar Steinn Ólafsson hefur haldið uppi harðri gagn­rýni á lög­reglu­rann­sókn máls­ins. Þess má geta að rann­sókn máls­ins var á for­ræði lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum undir stjórn Öldu Hrannar Jóhanns­dóttur, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra hjá emb­ætt­inu, og núver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra hjá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Alda Hrönn var ráðin án aug­lýs­ingar og starfar nú við hlið Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem var áður yfir­maður Öldu Hrannar á Suð­ur­nesjum.

Sakar lögreglu um að hafa ekki rannsakað málið


Garðar Steinn Ólafsson, lög­maður Gunnars Scheving, sakar lög­regl­una á Suð­ur­nesjum um að hafa van­rækt að rann­saka málið til hlítar og segir að það hafi tekið tækni­mann Rík­is­lög­reglu­stjóra einn dag að kom­ast að því að ásak­anir í mál­inu ættu ekki við rök að styðj­ast.

„Fjöl­miðlar virð­ast hafa notið þess að kross­festa sak­lausan mann byggt á leka rann­sak­enda um meinta rann­sókn sína. Nú hefur komið í ljós að það fór aldrei fram rann­sókn. Skjól­stæð­ingur minn var ein­fald­lega bor­inn sökum af aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra og sak­sókn­ari trúði orðum hans um að ásak­an­irnar hefðu verið rann­sak­aðar og að gögn máls­ins styddu þær,“ segir Garðar Steinn í sam­tali við Kjarnann.

„Við höfum ítrekað kraf­ist þess að fram­kvæmd yrði rann­sókn á fjar­stæðu­kenndum sam­sær­is­kenn­ingum aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra. Alltaf var við­kvæðið að það hafi verið gert. Svo þegar sak­sókn­ari sett­ist niður til að und­ir­búa aðal­með­ferð í mál­inu hefur hún lesið gögn máls­ins í fyrsta skipti. Þá hefur hún upp­götvað að ákæra hafi verið gefin út á fölskum for­sendum,“ segir Garðar Steinn.

Þá gagn­rýnir hann sak­sókn­ara fyrir að falla ekki líka frá síð­ari ákæru­lið máls­ins, enda hefði slíkt í för með sér veru­lega álits­hnekki fyrir lög­regl­una á Suð­ur­nesjum.

Kolbrún Bene­dikts­dóttir, sak­sókn­ari hjá Rík­is­sak­sókn­ara, hafði ekki svarað fyr­ir­spurn Kjarnans um ástæður þess að fallið var frá fyrri ákæru­lið máls­ins, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár