Þingmaður Pírata vill frekari skýringar á fjölmiðlaráðgjöf innanríkisráðuneytisins

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, hefur óskað eftir frek­ari upp­lýs­ingum varð­andi fjöl­miðla- og lög­fræði­ráð­gjöf inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna Leka­máls­ins svo­kall­aða. Þetta kemur fram í skrif­legri fyr­ir­spurn þing­manns­ins til Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra.

Eins og Kjarninn greindi fyrstur fjöl­miðla frá á dög­unum, greiddi inn­an­rík­is­ráðu­neytið ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Argus tæpar 2,4 millj­ónir króna vegna fjöl­miðla­ráð­gjafar í tengslum við Leka­málið á síð­asta ári. Þetta kom fram í svari ráðu­neyt­is­ins við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans. Kjarninn hefur óskað eftir frek­ari upp­lýs­ingum varð­andi umrædda ráð­gjöf, og bíður enn svara frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Þá kom fram í upp­haf­legu svari inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að ráðu­neytið hafi greitt lög­manns­stof­unni LEX rúma milljón króna vegna lög­fræði­ráð­gjafar vegna Leka­máls­ins.

Áður­nefnd fyr­ir­spurn þing­manns Pírata er í sex liðum, og er eft­ir­far­andi:

1. Hvenær var ráðu­neyt­inu veitt fjöl­miðla­ráð­gjöf af hálfu Argus mark­aðs­stofu árið 2014, sund­ur­liðað eftir dag­setn­ingum?

2. Hvað fólst í þeirri fjöl­miðla­ráð­gjöf, sund­ur­liðað eftir efni og formi ráð­gjafar?

3. Hver var heild­ar­kostn­aður ráðu­neyt­is­ins við fjöl­miðla­ráð­gjöf Argus mark­aðs­stofu, sund­ur­liðað eftir útgefnum reikn­ingum?

4. Hvenær var ráðu­neyt­inu veitt lög­fræði­leg ráð­gjöf af hálfu LEX lög­manns­stofu árið 2014, sund­ur­liðað eftir dag­setn­ingum?

5. Hvað fólst í þeirri lög­fræði­legu ráð­gjöf, sund­ur­liðað eftir efni og formi ráð­gjafar?

6. Hver var heild­ar­kostn­aður ráðu­neyt­is­ins við lög­fræði­lega ráð­gjöf LEX lög­manns­stofu, sund­ur­liðað eftir útgefnum reikn­ingum?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár