Mannréttindaáhersla Svía kostar þá peninga og mögulega völd

Síðasta vika var róst­ur­söm í sænskri utan­rík­is­póli­tík. Heimsókn Stefan Löfvens for­sæt­is­ráð­herra til Úkraínu vakti hörð við­brögð Rússa og gagn­rýni Svía á stöðu mann­rétt­inda í Sádi Arabíu dró einnig dilk á eftir sér. Svíar berj­ast nú um sæti í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna en sér­fræð­ingar telja ólík­legt að fram­boðið beri árangur vegna atburða síð­ustu vikna. Í hörðum heimi alþjóða­stjórn­mála hefur það kostnað í för með sér að gagn­rýna aðrar þjóðir fyrir stöðu lýð­ræðis og mann­rétt­inda eða styðja rétt þeirra til að ráða sér sjálfar.

Samband Rússa og Svía versnar stöðugt


Á þriðju­dag fór Löfven for­sæt­is­ráð­herra í opin­bera heim­sókn til Úkraínu þar sem hann lof­aði auknum stuðn­ingi við rík­is­stjórn lands­ins. Fyrir utan póli­tískan stuðn­ing lof­aði Löfven að Svíþjóð myndi veita Úkraínu lán upp á 850 millj­ónir sænskra króna til að styrkja inn­viði lands­ins. Um leið hvatti hann aðrar þjóðir til að gera það sama. Sama dag birti sendi­ráð Rúss­lands í Svíþjóð nokkuð und­ar­lega stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem Svíum var kennt um stöð­una í Úkraínu. Þar var sagt að stefna vest­ur­landa, og þá ekki hvað síst Sví­þjóðar, gagn­vart Úkraínu hefði orsakað valda­rán sem leitt hefði til blóð­ugrar styrj­aldar.



Þessi harða afstaða land­anna tveggja í garð hvors ann­ars kemur í kjöl­far stig­vax­andi deilna vegna hern­að­ar­um­svifa Rússa í Eystra­salt­inu. Skemmst er að minn­ast kaf­báta­leitar sænska hers­ins þar sem talið var að rúss­neskur kaf­bátur hefði siglt inn í sænska skerja­garð­inn án heim­ildar. Leitin bar ekki árangur en í kjöl­farið hafa sænsk stjórn­völd heitið auknu fé til að efla kaf­báta­leit í Eystra­salt­inu og til að koma fyrir var­an­legri her­sveit á Gotlandi. Fyrir nokkrum árum voru hryðju­verk og netárásir talin helsta ógn sem steðj­aði að Svíþjóð. Aukinn umsvif Rússa hafa breytt þeirri mynd og svo virð­ist vera sem sænsk stjórn­völd telji nú að helsta öryggisógnin sé mögu­leg átök við Rússa.

Frá hetju til skúrks í Mið-Austurlöndum


Eitt af fyrstu verkum nýrrar rík­is­stjórnar síð­asta haust var að við­ur­kenna sjálf­stæði Palest­ínu. Íslend­ingar ættu hugs­an­lega að taka því sem móðgun að flestir virt­ust telja að Svíþjóð væri fyrsta vest­ræna landið til að taka slíka ákvörðun. Í kjöl­farið versnuðu sam­skipti Svía og Ísraela, sendi­herra Ísraels í Svíþjóð var kall­aður heim og Margot Wallström utan­rík­is­ráð­herra sagt að hún væri ekki vel­komin í fyr­ir­hug­aða heim­sókn. Í við­tali skömmu síðar sagði Wallström að Ísraelar færu yfir öll mörk í mál­flutn­ingi sínum og að aðgerðir þeirra gagn­vart Palest­ínu­mönnum væru ekk­ert nema ofbeldi. Svíum var ákaft fagnað í Arabalönd­unum eftir stuðn­ing­inn við Palest­ínu og á tíma­bili leit út fyrir að þar hefði Svíþjóð náð sér í mik­il­væga banda­menn. Wallström var til að mynda boðið að halda ræðu á fundi utan­rík­is­ráð­herra Arababanda­lags­ins síð­asta mánu­dag en deg­inum áður var fram­lag hennar afþakkað.

Wallström hefur gagn­rýnt Sádi Arabíu harð­lega fyrir mann­rétt­inda­brot en nýleg ummæli hennar um sharia lög voru sem olía á eld­inn. Hún lýsti þeim sem arf­leið frá mið­öldum þar sem jafn­rétti og mann­rétt­indi væru fótum troðin. Sendi­herra Sádi Arabíu var kall­aður heim á mið­viku­dag, dag­inn eftir að Svíar til­kynntu að sam­starfi land­anna um vopna­fram­leiðslu yrði ekki haldið áfram. Sér­fræð­ingar telja að deil­urnar geti ekki aðeins haft nei­kvæð áhrif á sam­skipti land­anna tveggja heldur einnig á við­skipti þeirra á milli og stöðu Sví­þjóðar á svæð­inu öllu. Ein ástæðan er að nýr kon­ungur Sádi Arabíu þykir mun íhaldsam­ari en for­veri hans og virð­ist alls óhræddur við að slíta sam­starfi við þá sem hann telur að séu of gagn­rýnir á kon­ungs­ríkið. Einn helsti sér­fræð­ingur Svía um Mið-Aust­ur­lönd segir að verði ríkin á svæð­inu neydd til að velja á milli Sví­þjóðar og Sádi Arabíu sé engin spurn­ing hver nið­ur­staðan verði.

[caption id="attachment_22985" align="alignnone" width="838"] Opinber gagn­rýni Margot Wallström, utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, á Sádi Arabíu hefur vakið athygli og við­brögð.[/caption]

Sætið í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í hættu


Rík­is­stjórn Fredrik Rein­feldts lagði höf­uð­á­herslu á Evr­ópu­sam­bandið í utan­rík­is­stefnu sinni og sá það vera bestu leið­ina til að auka vægi Sví­þjóðar á alþjóða­vett­vangi. Þegar ný stjórn tók við lýsti hún því yfir að færa ætti fók­us­inn til baka á Sam­ein­uðu þjóð­irnar, meðal ann­ars með því að sækj­ast eftir kjöri í Örygg­is­ráð­inu 2017-2018. Sér­fræð­ingar telja nú litlar líkur á að Svíar nái kjöri enda hafa þeir á stuttum tíma gagn­rýnt Ísrael, Sádi Arabíu og Rússland harð­lega á opin­berum vett­vangi. Einn leið­ara­höf­unda Dagens Nyheter benti á að í raun­inni væri ákveð­inn heiður fólg­inn í því fá gagn­rýni á sig frá þessum löndum sem öll hefðu gerst sek um vafa­sama hegðun. Það væri hins vegar kostn­að­ar­samt að reka utan­rík­is­póli­tík þar sem afger­andi staða væri tekin með mann­rétt­indum og lýð­ræði.

Margot Wallström hefur hlotið mikla gagn­rýni fyrir óvar­kárt orða­lag og í fjöl­miðlum má oft sjá því haldið fram að með því skaði hún orð­spor Svía. Ekki er þar þó um mikla stefnu­breyt­ingu að ræða því hún tók við af Carl Bildt sem hefur aldrei verið hræddur við opin­berar deilur við önnur ríki. Í þeim hefur hann einkum nýtt sér Twitter og í gegnum tíð­ina hafa mörg ummæli hans þar vakið furðu. Í fyrra var Bildt til dæmis harð­lega gagn­rýndur fyrir að líkja fyrr­ver­andi for­seta Úkraínu við norska föð­ur­lands­svik­ar­ann Vidkun Quisling.

Eiga þjóðir að fórna hagsmunum fyrir hugsjónir?


Á tylli­dögum er auð­velt að tala um mann­rétt­indi og lýð­ræði en gildum er gjarnan fórnað á alt­ari hags­muna. Staðan sem upp er komin í Svíþjóð er áhuga­verð því for­svars­menn við­skipta­lífs­ins höfðu hvatt til þess að samn­ing­ur­inn við Sádi Arabíu yrði fram­lengdur, með þeim rökum að sam­ræður og sam­starf væru besta leiðin til að bæta stöð­una í land­inu. Í raun má segja að málið snú­ist því um grund­vall­ar­at­riði í alþjóð­legum stjórn­málum – nefni­lega hvaða leiðir eru farnar að settu marki. Hvenær er ástæða til að gagn­rýna opin­ber­lega og eiga það á hættu að við­skipti og póli­tískt sam­band skað­ist? Þessi umræða hefur verið hávær á alþjóða­vett­vangi að und­an­förnu, ekki hvað síst í tengslum við íþrótta­mót í löndum á borð við Rússland og Katar.

Rit­höf­und­ur­inn og blaða­mað­ur­inn Ola Larsmo heldur því fram að hér sé ef til vill komin í ljós hug­mynda­fræði­leg gjá í sænskri póli­tík. Hann bendir á að hægri kant­inum komi nú ber­lega í ljós að þar hugsi margir um mann­rétt­indi eins og sós­una á ísnum. Hún sé auð­vitað ljóm­andi góð en það sé líka allt í lagi að sleppa henni. Og hann spyr hvort nokkur haldi að Svíar muni minn­ast ummæla ráð­herr­ans með hneykslan eftir fjöru­tíu ár þegar sagan verði gerð upp. Ef marka má arf­leið Olof Palme er svarið lík­lega að rifr­ildið standi enn yfir árið 2055.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár