Hanna Birna eyddi meiru í fjölmiðlaráðgjöf en sérstakur saksóknari

Embætti sér­staks sak­sókn­ara varði minna fé í aðkeypta fjöl­miðla­ráð­gjöf á tæpum sex árum vegna allra mála emb­ætt­is­ins en inn­an­rík­is­ráðu­neytið gerði í fyrra vegna Leka­máls­ins. Þetta kom fram í hádeg­is­fréttum RÚV.

Eins og Kjarninn greindi fyrstur fjöl­miðla frá í gær, greiddi inn­an­rík­is­ráðu­neytið ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Argus tæpar 2,4 millj­ónir króna fyrir sér­tæka fjöl­miðla­ráð­gjöf á síð­asta ári vegna Leka­máls­ins svo­kall­aða.

Samkvæmt frétt RÚV er ekki algengt að ráðu­neytin greiði fyrir aðkeypta fjömiðla­ráð­gjöf, með und­an­tekn­ingum þó. Sóst hefur verið eftir aðkeyptri þjón­ustu til kynn­ingar á stórum málum, eins og í til­felli utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og Icesave, for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna Leið­rétt­ing­ar­innar og atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins vegna nátt­úrupass­ans og kvóta­frum­varps­ins.

Á síð­asta ári, þegar inn­an­rík­is­ráðu­neytið greiddi tæpar tvær og hálfa milljón króna fyrir fjöl­miðla­ráð­gjöf, var Hanna Birna Krist­jáns­dóttir þáver­andi ráð­herra með tvo aðstoð­ar­menn og aðgang að meira en 20 lög­fræð­ingum í ráðu­neyt­inu.

Til sam­an­burðar greiddi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara 1,7 millj­ónir króna fyrir aðkeypta fjöl­miðla­ráð­gjöf á tæpum sex árum, frá 2009 til árs­loka 2014, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár