Sigurður Einarsson hefur óskað formlega eftir því að hefja afplánun

Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, hefur form­lega óskað eftir því við fang­els­is­mála­yf­ir­völd að hefja afplánun á fjög­urra ára fang­els­is­dómi sem hann hlaut nýverið í Hæsta­rétti Íslands fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu svo­kall­aða. Þetta herma heim­ildir Kjarnans.

Vísir greindi frá því í dag að Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sé kom­inn í afplánun á fimm og hálfs árs fang­els­is­dómi sem hann hlaut fyrir Al-Thani flétt­una, og sé nú vistaður í hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans bað hann um að kom­ast í afplánun áður en hann var boð­aður til afplán­unar.

Þá greindi DV frá því 25. febr­úar síð­ast­lið­inn að Ólafur Ólafsson hafi hafið aplánun á Kvía­bryggju, en hann hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti vegna Al-Thani máls­ins. En Ólafur óskaði sömu­leiðis sjálfur eftir að kom­ast í afplánun.

Þá hlaut Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm fyrir aðild sína að mál­inu, en Kjarn­anum er ekki kunn­ugt um hvort hann hafi sömu­leiðis óskað eftir að hefja aplánun.

Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, sagði af því til­efni í sam­tali við Kjarnann að mjög sjald­gæft sé að ein­stak­lingar leiti eftir því að hefja afplánun fang­els­is­dóma áður en þeir eru boð­aðir til afplán­unar. Þegar slíkar óskir ber­ist sé allt reynt til að koma til móts við þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár