Friðelskandi Svíar græða milljarða á viðskiptum með vopn

Svíar eru hlut­laus þjóð. Þessi hugsun var grund­völlur utan­rík­is­stefnu þeirra frá lokum seinni heims­styrj­aldar þótt heldur hafi hrikt í stoðum hlut­leys­is­ins síð­ustu ár. Olof Palme gagn­rýndi Banda­ríkin harð­lega vegna Víetnam-stríðs­ins en ris­inn í austri var engu að síður talin helsta öryggisógn lands­ins.

Svíþjóð hefur aukið sam­starf sitt við NATO að und­an­förnu og fylgir þar ekki hvað síst for­dæmi Finna. Finnski for­set­inn sagði meðal ann­ars nýlega að ræða ætti um inn­göngu í NATO, en lengi vel þótti það óhugs­andi vegna mögu­legra við­bragða Rússa. Svíar og Finnar hafa ákveðið að auka varn­ar­sam­starf þjóð­anna með það að marki að þær geti sam­eina krafta sína ef stríð brjót­ist út. Þetta er í sam­ræmi við Stol­ten­berg-skýrsl­una sem kom út fyrir nokkrum árum og hvetur til auk­ins varn­ar­sam­starfs Norð­ur­landa­þjóð­anna.

Hlut­leysi Svía hefur vakið mikla athygli á heims­vísu og gjarnan talað um þá sem frið­elsk­andi þjóð. Hins vegar gleym­ist oft að Svíar þurfa að reka öfl­ugan her sem býr yfir nýj­ustu tækni til að bæta upp fyrir hlut­falls­lega fámennar sveitir. Svíar eru þess vegna meðal öfl­ug­ustu vopna­fram­leið­anda og útflytj­enda í heimi. Þótt stærstur hluti útflutn­ings­ins fari til þjóða innan Evr­ópu­sam­bands­ins ratar hluti vopn­anna alltaf til ein­ræð­is­herra.

Óviðeigandi markaðssetning


Íslend­ingar tengja Saab verk­smiðj­una lík­lega einna helst við bíla en stað­reyndin er sú að fyr­ir­tækið er langstærsti vopna­fram­leið­andi Sví­þjóðar með um 60% mark­aðs­hlut­deild. Fyrir nokkrum árum birtu sænskir fjöl­miðlar fréttir af því hvernig Saab mark­aðs­setti vopn. Til þess var leitað í smiðju kvik­mynda­iðn­að­ar­ins og fram­leidd aug­lýs­ing sem vakti blendin við­brögð. Fyr­ir­tækið þótti hafa gengið heldur of langt og sér­stak­lega með notkun á slag­orð­inu „Sjáðu fyrst – dreptu fyrst“.

Það vakti athygli í mynd­inni að orystuflug­mað­ur­inn var leik­inn af konu sem átti að sýna að þrátt fyrir allt væru Saab verk­smiðj­urnar með­vit­aðar um jafn­rétti, líka þegar kæmi að dráps­vopnum. Annað sem þótti óvið­eig­andi var aug­lýs­ing fyrir vopn sem einkum er notað til að skjóta á bryn­varin öku­tæki. Þar var sér­stak­lega tekið fram að vopnið væri með still­ingu fyrir „mjúk skot­mörk“ – eins og til dæmis mann­eskjur.

Deilt um vopnaútflutning til Saudi-Arabíu


Svíar fluttu út vopn fyrir um 8 millj­arða sænskra króna (um 130 millj­arðar ISK) árið 2014 sem var um þriðj­ungi minna en árið áður. Af því fóru um 78 pró­sent til Evr­ópu­sam­bands­landa auk Banda­ríkj­anna, Ástralíu og Kanada. Þegar tíma­bilið 2003-2013 er skoðað kemur í ljós að Svíþjóð er í tólfta sæti yfir helstu vopna­út­flytj­endur í heimi með um 2 pró­sent af heild­inni. Svíþjóð er hins vegar í þriðja sæti þegar miðað er við útflutn­ing sem hlut­fall af fólks­fjölda, á eftir Ísrael og Rúss­landi. Sum árin hefur Svíþjóð verið í efsta sæti list­ans.

Útflutn­ingur til Saudi-Arabíu er aðeins lít­ill hluti af vopna­við­skiptum lands­ins en hefur hins vegar vakið hörð við­brögð í Svíþjóð. Árið 2005 gerði rík­is­stjórn Jafn­að­ar­manna leyni­legan samn­ing um vopna­verk­smiðju í Saudi-Arabíu við stjórn­völd þar í landi. Rík­is­stjórn Rein­feldt’s end­ur­nýj­aði samn­ing­inn árið 2010 en það var ekki fyrr en árið 2012 þegar sænska rík­is­út­varpið birti fréttir af sam­komu­lag­inu sem það komst upp. Í kjöl­farið vökn­uðu spurn­ingar um það hvernig rétt­læta mætti slíkan samn­ing við land sem ítrekað hefur verið staðið að grófum mann­rétt­inda­brotum. Í skýrslu sænska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er mann­rétt­inda­brot­unum lýst nákvæm­lega og þau sögð vera þess eðlis að alþjóða­sam­fé­lagið ætti að bregð­ast við þeim.

Snýst vopnasala um frjáls viðskipti?


Á föstu­dag birt­ist grein í Dagens Nyheter þar sem 31 for­svars­maður í sænsku við­skipta­lífi hvatti til þess að vopna­við­skiptum við Saudi-Arabíu yrði fram­haldið. Á list­anum mátti meðal ann­ars sjá stjórn­endur í bönkum en einnig for­svars­menn fyr­ir­tækja á borð við Volvo, H&M, Ericsson og Scania. Í grein­inni er fjallað um hversu háðir Svíar eru útflutn­ingi og að trú­verð­ug­leiki Sví­þjóðar sem við­skipta­lands sé í húfi. Mik­il­vægt sé að standa við gerða samn­inga.

Saudi-Arabía er í átj­ánda sæti yfir helstu útflutn­ings­lönd Sví­þjóðar en í fjórða sæti þegar lönd utan Evrópu eru skoðuð. Þrátt fyrir mann­rétt­inda­brot segja stjórn­end­urnir að við­skipti og sam­ræður séu besta leiðin til að auka lýð­ræði og bæta mann­rétt­indi. Verði vopna­við­skiptum við landið hætt, segja for­svars­menn­irnir, megi gera ráð fyrir að önnur við­skipti skað­ist einnig.

[caption id="attachment_13819" align="alignnone" width="1024"] Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar ræðir við frétta­menn.[/caption]

Þessi rök halda þó ekki að mati hag­fræði­pró­fess­ors­ins Olof Johans­son-Stenman. Hann segir að útflutn­ingur til Saudi-Arabíu sé aðeins tæpt pró­sent af útflutn­ingi Sví­þjóðar og því ekki um gríð­ar­legan skell að ræða ef hann minnki. Þess utan sé ekki gert ráð fyrir nei­kvæðum við­brögðum frá mik­il­væg­ari útflutn­ings­löndum eins og Þýska­landi, sem þegar hafi ákveðið að selja ekki vopn til Saudi-Arabíu.

Deilt um málið innan stjórnarinnar


Rík­is­stjórn Jafn­að­ar­mann og Umhverf­is­flokks­ins þarf fljót­lega að ákveða hvort sam­komu­lagið við Saudi-Arabíu verði fram­lengt. Nokkuð öruggt mál telja að for­sæt­is­ráð­herran Stefan Löfven vilji fram­lengja enda hefur hann sterk tengsl við við­skipta­lífið og fram­leiðslu­iðn­að­inn í gegnum fyrra starf sitt sem for­maður verka­lýðs­fé­lags.

Stuðn­ingur meðal flokks­manna fyrir til­lög­unni er hins vegar minni og þá hefur Umhverf­is­flokk­ur­inn lýst því yfir að hann sé henni mót­fall­inn. Spurn­ingin sem Svíar standa frammi fyrir snýst að lokum ekki bara um vopna­sölu­samn­ing við Saudi-Arabíu. Hún snýst um utan­rík­is­stefnu lands­ins og hvort áhersla á bar­áttu fyrir mann­rétt­indum fari alltaf saman við frjáls við­skipti og hlut­leys­is­stefn­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár