Helgi Magnús: „Eðlilegt að Sigríður hefði upplýst lögreglu um samskiptin“

„Ég tel að það hefði verið eðli­legt að Sigríður (Björk) upp­lýsti rann­sókn­ar­að­ila um sam­skiptin, enda mátti ljóst vera að áhugi Gísla Freys var í ljósi lek­ans mjög sér­kenni­legur og gaf ástæðu til að ætla að hann ætti þar hlut að máli.“

Þetta segir Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Eins og Kjarninn greindi frá í gær, fór Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, með ósann­indi í opnu­við­tali sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í gær. Þar full­yrti hún að upp­lýs­ingar um sam­skipti hennar við Gísla Frey Val­dórs­son, þáver­andi aðstoð­ar­mann Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, hafi legið fyrir hjá lög­regl­unni.

Helgi Magnús hrakti þessa full­yrð­ingu í skrif­legu svari við fyr­is­p­urn Kjarnans. Lögreglu hafi hvorki verið kunn­ugt um tölvu­póst­send­ingu Sigríðar Bjarkar til Gísla Freys með grein­ar­gerð um Tony Omos né að hún hefði notað síma sonar síns til að hringja í Gísla morg­un­inn þegar fyrstu frétt­irnar birt­ust í fjöl­miðlum sem byggðar voru á skjal­inu sem Gísli lak til fjöl­miðla.

„Hvert mannsbarn vissi af rannsókninni, og hún líka“


Aðspurður um hvort ekki hafi verið eðli­legt af Sigríði Björk, sem þá gengdi stöðu lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, að upp­lýsa um sam­skiptin við aðstoð­ar­mann inn­an­rík­is­ráð­herra, svarar Helgi Magnús: „Við hefðum gjarnan viljað fá upp­lýs­ingar um að Gísli Freyr hefði verið að óska eftir og fá sendar upp­lýs­ingar um málið, grein­ar­gerð. Verðum að hafa það í huga að þetta var alger­lega án tengsla við stjórn­sýslu­lega með­ferð máls Tony Omos sem þá var lokið í ráðu­neyt­inu og Gísli Freyr hafði enga aðkomu að þeirri afgreiðslu heldur emb­ætt­is­menn ráðu­neyt­is­ins.

Þessi ósk um gögn og sam­skipti gáfu því sterk­lega til kynna með öðru hver hefði staðið að lek­anum eins og síðar kom í ljós. En við vorum ekki upp­lýst um þetta. Hvert manns­barn á Íslandi vissi af þeirri rann­sókn sem síðar fór í gang og hún að sjálf­sögðu einnig. Það verður að hafa í huga að lög­regla fór fram á við dóm­stóla að blað­menn upp­lýstu um heim­ild­ar­menn sína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár