Lögreglustjórinn fór með ósannindi í opnuviðtali við Morgunblaðið

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fer með ósann­indi í opin­skáu opnu­við­tali við Agnesi Braga­dóttur blaða­mann Morg­un­blaðs­ins, sem birt­ist í dag, að því er fram kemur í skrif­legu svari Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í umræddu við­tali er haft eftir Sigríði Björk: „Þeirri spurn­ingu hefur verið varpað fram hvort ég hefði ekki átt að gera lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kunn­ugt um sam­skipti mín við Gísla Frey, aðstoð­ar­mann ráð­herra, þegar hún vann að rann­sókn sinni á leka­mál­inu. Því er til að svara að sam­skipti mín við aðstoð­ar­mann­inn fóru fram eftir að hann hafði lekið upp­lýs­ingum til fjömiðla. Jafn­framt að öll sam­skipti aðstoð­ar­manna og tölvu­póst­send­ingar voru skoðuð af lög­regl­unni og allar upp­lýs­ingar um mín sam­skipti lágu þar fyrir.“

Sigríður Björk, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, hefur sjálf sagt í fjöl­miðlum að hún hafi sent Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos, í tölvu­pósti þann 20. nóv­em­ber 2013, eða sama dag og fyrstu frétt­irnar birt­ust í fjöl­miðlum í hinu svo­kall­aða leka­máli sem byggðu á minn­is­blaði sem Gísli Freyr lak til fjöl­miðla og fékk síðar dóm fyrir. Per­sónu­vernd úrskurð­aði á dög­unum að Sigríður Björk hafi brotið lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga með því að senda Gísla Frey umbeðna grein­ar­gerð.

Lögregla hafði ekki vitneskju um tölvupóstsendinguna


Kjarninn bar ofan­greind ummæli Sigríðar Bjarkar undir Helga Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ara. Í skrif­legu svari hans til Kjarnans segir: „Umræddur tölvu­póstur og grein­ar­gerð sem fylgdi honum og var sendur frá Sigríði til Gísla Frey var lög­reglu ekki kunn­ugt um. Að sjálf­sögðu var póst­hólf Sigríðar ekki rann­sakað, en mér er ekki kunn­ugt um að merki um þessa póst­send­ingu hafi fund­ist í póst­hólfi Gísla Freys og var hún ekki hluti af máls­gögnum. Ákæru­valdið fékk fyrst upp­lýs­ingar um að grein­ar­gerðin hefði verið send þegar Sigríður greindi frá því í fjöl­miðlum eftir að umfjöllun um síma­sam­skipti hennar við Gísla Frey komu til umræðu eftir að dómur gekk.“

Umfjöll­unin sem Helgi Magnús vísar til má rekja til yfir­lýs­ingar Sigríðar Bjarkar sem hún sendi fjöl­miðlum 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn í kjöl­far fréttar DV þar sem greint var frá því að hún og Gísli Freyr hefðu þrí­vegis ræðst við í síma dag­inn sem fyrstu frétt­irnar í leka­mál­inu litu dags­ins ljós.

Þá segir í áður­nefndu svari Helga Magnúsar vara­rík­is­sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Kjarnans: „Lögreglu var kunn­ugt um sím­töl milli Sigríðar og Gísla Freys eftir að lek­inn átti sér stað. Lágu fyrir upp­lýs­ingar í rann­sóknar gögnum um sím­tal þeirra á milli. Í fjöl­miðlum eftir að mál­inu lauk komu síðan fram upp­lýs­ingar um sím­töl þeirra á milli sem ekki var veitt athygli í rann­sókn­inni, lík­lega vegna þess að þau fóru um síma sonar Sigríðar, eins og hún hefur greint frá að hafi verið vegna þess að hennar sími var bil­aður.“

Heim­ilda­maður Kjarnans innan lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur stað­fest lýs­ingar Helga Magnúsar á máls­at­vikum.

Ummæli Sigríðar Bjarkar í áður­nefndu opnu­við­tali við Morg­un­blaðið, um að lög­reglu hafi verið kunn­ugt um tölvu­póst­sam­skipti hennar við Gísla Frey Val­dórs­son, eiga því ekki við rök að styðj­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár