Ríkissaksóknari: „Málið ekki líklegt til sakfellis eftir nánari skoðun“

„Frekari gagna­öflun ákæru­valds­ins eftir útgáfu ákærunnar leiddi til þess að ekki er unnt að úti­loka að í meiri hluta til­vika hafi upp­flett­ing­arnar tengst starfi ákærða. Ákæru­valdið taldi málið því ekki lengur lík­legt til sak­fellis hvað þennan ákæru­lið varðar.“

Svo hljóðar yfir­lýs­ing frá Rík­is­sak­sókn­ara vegna ákvörð­unar emb­ætt­is­ins um að falla frá veiga­mesta ákæru­liðnum í máli á hendur lög­reglu­mann­inum Gunnari Scheving Thor­steins­syni sem sak­aður var um að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í mála­skrá lög­regl­unnar í heim­ilda­leysi. Um er að ræða LÖKE-málið svo­kall­aða sem var tölu­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum á sínum tíma. Kjarninn greindi fyrstur frá ákvörðun Rík­is­sak­sókn­ara í dag.

Gunnar hefur ávallt haldið fram sak­leysi sínu og lög­maður hans Garðar Steinn Ólafsson hefur gagn­rýnt lög­regl­una á Suð­ur­nesjum harð­lega fyrir með­ferð máls­ins og sakað emb­ættið um að hafa van­rækt rann­sókn þess. Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir var þá lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum en for­ræði rann­sókn­ar­innar var í höndum Öldu Hrannar Jóhanns­dóttur, þáver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum. Alda Hrönn starfar nú við hlið Sigríðar Bjarkar sem aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri hjá emb­ætti lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Í yfir­lýs­ingu Rík­is­sak­sókn­ara segir enn­fremur: „Þau gögn sem lágu fyrir við útgáfu ákærunnar, að lok­inni umfangs­mik­illi rann­sókn, bentu ein­dregið til þess að lög­reglu­mað­ur­inn sem um ræðir hefði flett upp nöfnum 41 konu í mála­skrár­kerfi lög­regl­unnar og skoðað þar upp­lýs­ingar um þær án þess að upp­flett­ing­arnar tengd­ust starfi hans sem lög­reglu­manns, og þannig hefði hann mis­notað stöðu sína í því skyni að afla sér upp­lýs­inga um kon­urnar. Var þessi hátt­semi talin varða við 139. gr. almennra hegn­ing­ar­laga.“

Nú hefur sem sagt komið í ljós við nán­ari skoðun að ákæra máls­ins var byggð á veikum grunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár