Bjóða út greiningu á kostum og göllum lagningar sæstrengs

Rík­is­kaup, fyrir hönd atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, óska eftir til­boðum í kaup á ítar­legri þjóð­hags­legri kostn­aðar- og ábata­grein­ingu á áhrifum raf­orku­sæ­strengs á íslenskt sam­fé­lag. Frá útboð­inu er greint á vef­síðu Rík­is­kaupa.

Í grein­ing­unni skal draga saman þann þjóða­hags­lega ábata og kostnað sem verður til vegna verk­efn­is­ins, og setja upp sviðs­myndir af þróun raf­orku­mála á Íslandi með og án sæstrengs og bera þær saman.

Dæmi um atriði sem taka skal til­lit til við grein­ingu á áhrifum með og án sæstrengs eru; verð­mæta­sköpun af raf­orku­vinnslu, áhrif á nýt­ingu orku­auð­linda, raf­orku­ör­yggi allra not­enda á Íslandi, nýt­ing raf­orku­flutn­ings­kerfis, áhættu­dreif­ing í raf­orku­sölu, sam­keppn­is­staða inn­lends atvinnu­lífs, áhrif á fjár­hag heim­ila og umhverf­is­leg áhrif.

Í morgun var blásið til kynn­ing­ar­fundar til að kynna útboðið áhuga­sömum, en hægt er að nálg­ast útboðs­gögn vegna verk­efn­is­ins á vef­síðu Rík­is­kaupa.

Útboðið er liður í hag­kvæmn­is­at­hugun íslenskra stjórn­valda á lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Evrópu, sem Kjarninn sagði frá í októ­ber.

Þverpóli­tískur ráð­gjafa­hópur um raf­orku­streng til til Evrópu, sem skip­aður var í júní 2012 af Katrínu Júl­í­us­dóttur þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, var falið að kanna hag­kvæmni þess að leggja sæstreng milli Íslands og Evrópu. Í nið­ur­stöðum og til­ögum hóps­ins, sem kynntar voru í lok júní í fyrra, var hóp­ur­inn sam­dóma um að frek­ari upp­lýs­ingar þurfi að liggja fyrir áður en unnt sé að full­yrða um þjóð­hags­lega hag­kvæmni verk­efn­is­ins. Hópurinn tók því ekki afstöðu til fram­kvæmd­ar­innar, en lagði til að ráð­ist yrði í frek­ari rann­sóknir á arð­semi strengs, sem og umhverf­is­á­hrifum og hafnar yrðu við­ræður við Breta um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár