Ofbeldi í sænskum grunnskóla tengist sparnaði í skólakerfinu

Lítill hópur nem­enda í grunn­skóla í Malmö hefur und­an­farna mán­uði gengið svo hart fram að skól­anum var lokað á föstu­dag. Kennsla hófst aftur í dag en ákveðið hefur verið að grípa til ýmissa aðgerða til að koma í veg fyrir hót­anir og ofbeldi sem kenn­arar og nem­endur segja að hafi fyrir löngu gengið allt of langt. Þessi frétt hefur verið áber­andi í sænskum miðlum síð­ustu daga en hún ætti ekki að snú­ast ein­göngu um lít­inn hóp sem þrífst ekki innan ramma skóla­kerf­is­ins. Saga Värner Rydénskolan fjallar ekki hvað síst um sparnað í skóla­kerf­inu og skelfi­legar ákvarð­anir skóla­yf­ir­valda þrátt fyrir ítrekuð var­úð­ar­merki.

Värner Rydénskolan er grunn­skóli í Ros­engård hverf­inu í Malmö þar sem inn­flytj­endur eru í miklum meiri­hluta. Hverfinu er stundum lýst sem gettói í fjöl­miðlum en sú lýs­ing á varla við rök að styðj­ast. Blaða­maður Guardian sagði í grein árið 2010 að hann vissi ekki um neitt annað gettó með breiðum og vel merktum hjóla­stígum þar sem mið­aldra konur hjóla heim til sín með inn­kaupa­poka. Hins vegar má ekki gera lítið úr því að félags­leg vanda­mál eru algeng í hverf­inu, atvinnu­leysi mikið og mennt­un­ar­stig lágt, enda er þetta oft fyrsta stopp inn­flytj­enda við kom­una til Sví­þjóðar.

Frá því að vera bestur yfir í að vera verstur


Skólinn umræddi var í mörg ár besti grunn­skóli hverf­is­ins og í kringum með­al­tal þegar allir grunn­skólar í Malmö voru skoð­aðir. Ástæðan var sú að upp­töku­svæði skól­ans var stórt og nem­endur komu gjarnan úr fjöl­skyldum sem höfðu skapað sér líf í Svíþjóð, hlotið menntun og voru með vinnu. Ef til vill var það þess vegna sem skóla­yf­ir­völd ákváðu að fella aðra grunn­skóla inn í þann sem tal­inn var bestur.

Frá árinu 2011 hefur verið stöðug krafa um nið­ur­skurð hjá grunn­skól­unum í Ros­engård, þrátt fyrir að þar væru nem­endur sem einna lík­leg­astir væru til að lenda utan­garðs vegna lít­ils félags­legs stuðn­ings. Í des­em­ber árið 2012 var nokkrum kenn­urum sagt upp í Värner Rydénskolan og þremur níundu bekkjum slegið saman í tvo. Í jan­úar árið 2013 er lögð sparn­að­ar­krafa upp á 2,5 millj­ónir sænskar á skól­ann og í heild eiga grunn­skólar í Ros­engård að spara átta millj­ónir sænskar.

[caption id="attachment_21796" align="alignnone" width="844"] Sænska knatt­spyrnu­goð­sögnin Zlatan Ibrahimovic ólst upp í Ros­engård hverf­inu í Malmö. Hér leikur hann fót­bolta við börn úr hverf­inu, við form­lega vígslu á fót­bolta­velli í hverf­inu sem Zlatan lék sér á þegar hann var barn.[/caption]

Á sama tíma kemur í ljós að ein­kunnir nem­enda hafa versnað mikið og innan við 40 pró­sent ná lág­marks­ein­kunn til að kom­ast í mennta­skóla. Í ágúst sama ár eru þrír grunn­skólar sam­ein­aðir og í kjöl­farið ber­ast fréttir af auknu ofbeldi, verri hegðun og aðstæðum sem ekki er hægt að bjóða nem­endum eða kenn­urum upp á. Vorið 2014 birt­ast fréttir í sænskum miðlum þar sem rektor skól­ans lýsir erf­ið­leikum í kjöl­farið á sam­ein­ing­unni og þar kemur jafn­framt fram að skól­inn er orð­inn versti skóli Malmö þegar litið er á ein­kunnir. Á tíma­bili í fyrra hringdu átján kenn­arar sig inn veika og það ger­ist margoft að ekki er hægt að fá afleys­ing­ar­kenn­ara.

Lítill hópur sem skemmir fyrir öllum


Hópurinn sem hefur haft sig mest frammi í skól­anum er ekki stór. Þarna er um að ræða um það bil tíu drengi sem virð­ast ekki þríf­ast innan ramma hins hefð­bundna skóla­kerfis og svo kannski tíu fylgj­endur. Fréttir hafa borist af eit­u­lyfja­sölu á skóla­lóð­inni og í febr­úar var fjallað um tvo menn sem hefðu farið inn í grunn­skóla í Malmö og sagst tengj­ast Isis sam­tök­unum. Ekki var tekið fram hvaða skóli þetta hefði verið en að öllum líkum var þetta Värner Rydénskolan.

Eftir fund­ar­höld gær­dags­ins hefur verið ákveðið að grípa til ýmissa ráð­staf­anna til að ná utan um ástandið í skól­anum. Í grunn­inn snú­ast þær um fjölgun starfs­fólks og stjórn­enda til þess að ná betur utan um starf­sem­ina. Rætt hefur verið að flytja nokkra nem­endur í aðra skóla til að brjóta upp hóp­inn auk þess sem rætt verður við nem­endur og for­eldra og þeir beðnir um til­lögur að úrbótum.

Breyta þarf grunnskólakerfinu í Svíþjóð


Stóra spurn­ingin er hins vegar hvers vegna þetta hafi ekki gerst fyrir löngu. Eða öllu heldur, miðað við sög­una og varn­að­ar­orð mátti alltaf gera ráð fyrir að sparn­aður kæmi einna harð­ast niður á þessum skólum. Gustav Fridolin, mennta­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, segir að ástandið sé að hluta til vegna þess kerfis sem Svíar hafa byggt upp. For­eldrar hafa val um það í hvaða skóla þeir senda barnið sitt, en á móti kemur að skól­arnir geta einnig valið nem­endur inn í skól­ana ef umsóknir eru of margar. Þetta hefur þýtt að sumir skólar drag­ast aftur úr sem aftur skapar víta­hring þar sem nem­endur sem eru betur staddir félags­lega geta ekki hugsað sér að stunda nám í þeim. Samkvæmt OECD er Svíþjóð eina landið í heim­inum sem er með fullt frelsi þegar kemur að því að velja skóla, án þess að grípa til sér­stakra ráð­staf­ana til að koma í veg fyrir að sumir skólar drag­ist aftur úr.

[caption id="attachment_21798" align="alignnone" width="848"] Gustav Fridolin, mennta­mála­ráð­herra Sví­þjóðar (til vinstri), ásamt Stefan Lofven for­sæt­is­ráð­herra Svía.[/caption]

Umræðan um Värner Rydénskolan hefur því hraðað umræð­unni um breyt­ingar á skóla­kerf­inu í Svíþjóð og aukna aðkomu rík­is­ins á kostnað sjálf­stæðis sveit­ar­fé­laga. Skoða á þær aðferðir sem not­aðar eru í skólum sem taldir eru standa sig best og freista þess að yfir­færa þær á þá skóla sem standa sig verst. Til­hn­eyg­ing­ing hefur verið sú að fram­lag til nem­enda og skóla eigi að vera jöfn. Stað­reyndin er hins vegar sú að ákveðnir skólar þurfa fleiri kenn­ara og jafn­vel hærri laun þar sem að meiri­hluti nem­enda kemur úr erf­iðum félags­legum aðstæðum og talar ekki tungu­málið við upp­haf náms. Skipulag grunn­skóla­kerf­is­ins kemur því beint að umræðum um inn­flytj­endur í Svíþjóð, mót­töku þeirra og þá aðstoð sem þeir fá við að aðlag­ast sam­fé­lag­inu.

Fridolin, åk till Wärner Ryden skolan i Malmö. du skulle ju fixa skolan. Denna stäng­des idag på grund av osäkert för lärare o elever

— Drev­haren (@DrevHaren) March 1, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár