Mikil andstaða við náttúrupassann birtist í umsögnum við frumvarpið

Frumvarp Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, ráð­herra ferða­mála, um nátt­úrupassa mætir mik­illi and­stöðu í umsögnum við frum­varpið sem sendar hafa verið atvinnu­vega­nefnd Alþingis. Svo harð­lega er nátt­úrupassi ráð­herra gagn­rýndur í umsögn­unum að jafn útbreidd and­staða við fram­komið frum­varp ráð­herra á sér vart hlið­stæðu.

Á vef Alþingis kemur fram að atvinnu­vega­nefnd þings­ins hafi borist 37 umsagnir vegna frum­varps­ins um nátt­úrupassa, en þar vantar inn í umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins sem leggj­ast alfarið gegn nátt­úrupass­anum. Fleiri veiga­miklir umsagn­ar­að­ilar eru mót­fallnir nátt­úrupass­anum, eða styðja hann ekki í óbreyttri mynd, og má þar nefna Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ), BSRB, fjögur sveit­ar­fé­lög að Reykja­vík­ur­borg með­taldri, Neyt­enda­sam­tökin og Umhverf­is­stofnun. Þá er gagn­rýni á útfærslu frum­varps­ins og fram­kvæmd nátt­úrupass­ans fyr­ir­ferða­mikil í umsögn­unum sem hafa borist atvinnu­vega­nefnd Alþingis.

Versta leiðin af öllum


Að mati ASÍ er nátt­úrupass­inn síst af þeim leiðum sem færar eru til að afla tekna í rík­is­sjóð til upp­bygg­ingar og vernd­unar ferða­manna­staða á Íslandi. Þá sé hann við­snún­ingur frá almanna­rétt­inum og flæki núver­andi gjald­töku ferða­manna. Auk þess þarfn­ist hann fjár­fest­inga í yfir­bygg­ingu, kynn­ingu og mark­aðs­setn­ingu og ekki síður til rekst­urs þess eft­ir­lits sem nauð­syn­legt sé til að ferða­menn fram­fylgi lögum. Þá gæti slíkt eft­ir­lit reynst flókið og kostn­að­ar­samt, og mögu­lega skerða upp­lifun ferða­manna af land­inu.

ASÍ telur að gistin­átt­ar­skattur, komu­gjöld eða blönduð leið beggja sé heppi­legri til að afla rík­is­sjóði tekna til upp­bygg­ingar á innviðum ferða­þjón­ust­unnar. Þá segir í umsögn ASÍ: „Sú hætta er fyrir hendi að án víð­tækrar sáttar um gjald­heimtu verði til brota­kennt, tvö­falt kerfi þar sem hluti fellur undir nátt­úrupassa og hluti inn­heimtir sjálf­stætt gjald. Í slíku kerfi er hætta á því að gjald­heimtan rýri upp­lifun ferða­manna sem hefði nei­kvæð áhrif á atvinnu­grein­inna til lengri tíma litið.“

Sveitarfélög og stofnanir ekki hlynnt náttúrupassanum


BSRB segir ýmsa ágalla á frum­varpi ráð­herra um nátt­úrupassa, sem feli í sér að greiða þurfi sér­stak­lega fyrir aðgang að ferða­manna­stöðum hér á landi. „BSRB telur að um rétt almenn­ings til þess að heim­sækja ferða­manna­staði og íslenska nátt­úru skuli almanna­réttur lagður til grund­vallar svo sem verið hefur yfír lengri tíma. BSRB telur að stjórn­völd hafí úr öðrum leiðum að velja, til að fjár­magna nauð­syn­lega upp­bygg­ingu til að vernda megi nátt­úru íslands, en þá að óska sér­stakrar greiðslu a f hálfu ferða­manna fyrir aðgang að nátt­úru íslands ella sæti þeir stjórn­valds­sektum,“ segir í umsögn BSRB.

Þá leggj­ast sveit­ar­fé­lögin Dala­byggð, Grímsnes- og Grafn­ings­hreppur alfarið gegn frum­varpi ráð­herra ferða­mála um nátt­úrupassa. Í umsögn síð­ar­nefnda sveit­ar­fé­lags­ins segir: „Sveit­ar­stjórn Grímsnes- og Grcifningshrepps lýsir yfir miklum von­brigðum að á því tœpa ári sem liðið er síðan málið var síð­ast til efn­is­legrar með­ferðar hafi ekki meira áunn­ist og að ekki hafi tiííit verið tekið þeirra sjón­ar­miða sem þá komu fram. Sveit­ar­stjórn hefir sann­fœrst enn­frekar um að hafna beri nátt­úrupass­anum enda verður það fyr­ir­komu­lag erfitt og flókið í fram­kvœmd.“

Ísa­fjarð­ar­bær hefur, í umsögn sinni, miklar efa­semdir um ágæti nátt­úrupass­ans. „Bæj­ar­stjórn Ísa­fjarð­arbæ hefur efa­semdir um að lög um nátt­úrupassa sam­ræm­ist lögum um almanna­rétt sem lýtur að frjálsri för um landið, en sá réttur á sér djúpar rætur í lögum og menn­ingu Íslands, en þetta ákvæði má finna í Jónsbók. Náttúra lands­ins er sam­eign þjóð­ar­innar en almanna­rétt­ur­inn er trygg­ing lands­manna fyrir að fá að njóta þess­arar sam­eignar,“ segir meðal ann­ars í umsögn bæj­ar­stjórnar Ísa­fjarð­ar­bæjar.

Land­vernd lýsir sig mót­fallna nátt­úrupass­anum í umsögn sinni, sem og Mennta­vís­inda­svið og Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands. Þá er Neyt­enda­sam­tökin á móti frum­varpi ráð­herra ferða­mála, og Rann­sókn­ar­mið­stöð ferða­mála hefur uppi efa­semdir um nátt­úrupass­ann og Reykja­vík­ur­borg sömu­leiðis. „Reykja­vík­ur­borg hefur hins vegar marg­vís­legar athuga­semdir við það hvernig helstu leiðir að þessum mark­miðum eru útfærðar í frum­varp­inu og skýr­ingum sem því fylgja og telur Reykja­vík­ur­borg að nátt­úrupass­inn sé ekki heppi­leg­asta leiðin til að ná því mark­miði að vernda nátt­úru Íslands,“ segir í umsögn borg­ar­innar.

Þá telur Umhverf­is­stofnun sér ekki fært að styðja frum­varp um nátt­úrupass­ann að óbreyttu „Umhverf­is­stofnun telur mik­il­vægt að tryggja aukið fjár­magn til frið­lýstra svæða sem og ferða­manna­svæða en telur nauð­syn­legt að end­ur­skoða fram­an­greint frum­varp með heild­ar­sýn á verndun íslenskrar nátt­úru og þarfir ferða­þjón­ust­unnar í huga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár