Samtök atvinnulífsins eru á móti náttúrupassanum

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) leggj­ast gegn frum­varpi Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, ráð­herra ferða­mála, um nátt­úrupassa. Þetta kemur fram í umsögn SA um frum­varpið og frétt inn á heima­síðu sam­tak­anna.

Samtökin segja nátt­úrupassan vera nýjan skatt og að alls óvíst sé hvort tekjur af honum muni skila sér til upp­bygg­ingar á innviðum ferða­þjón­ust­unnar. Þá er bent á kostn­að­inn við að koma skatt­inum á og eft­ir­lit með honum sé að öllum lík­indum van­met­inn. Auk þess sé óljóst hvernig stjórn­valds­sektir á erlenda ferða­menn muni skila sér í rík­is­sjóð.

Samtökin hafa miklar áhyggjur af nýjum sköttum sem rík­is­stjórnin und­ir­býr að leggja á atvinnu­líf og almenn­ing í land­inu, sam­kvæmt frétt á heima­síðu sam­tak­anna.

Í umsögn sam­tak­anna er bent á að ríkið og stofn­anir þess hafi heim­ildir til að leggja á alls kyns þjón­ustu­gjöld og að unnt sé að inn­heimta gjald fyrir bíla­stæði, heim­reiðir, sal­erni, gesta­stofur og fleira í rík­ari mæli en nú er gert.

Þá segir SA í umsögn sinni að lokum:

„Almenn upp­bygg­ing inn­viða og styrk­ing almenns öryggis verði enn um sinn fjár­mögnuð með beinum fram­lögum úr rík­is­sjóði og þá munu sívax­andi tekjur af enn fleiri ferða­mönnum koma að góðum notum án þess að gripið sé til enn einnar skatt­lagn­ingar eins og nátt­úrupassa. Við frek­ari vinnslu þessa máls er mik­il­vægt að hafa sem nán­ast sam­ráð við ferða­þjón­ust­una og tryggja sem víð­tæk­asta sam­stöðu um þá leið sem valin verður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár