Forsvarsmenn Eplis báðu forsætisráðherra um aðstoð við að koma á fundi með Apple

Full­yrð­ingar Bjarna Ákasonar, fram­kvæmda­stjóra Eplis, um að for­sæt­is­ráðu­neytið hafi mis­skilið erindi fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi mögu­legt gagna­ver Apple á Íslandi, í frétt sem birt­ist á vef Kjarnans fyrir skömmu, virð­ast ekki eiga við rök að styðj­ast. Þar full­yrti hann að fyr­ir­tækið hafi ein­ungis viljað kanna áhuga íslenskra stjórn­valda á að hitta Apple með mögu­leg gagna­ver á Íslandi í huga.

Frétta­stofa RÚV birti í sjón­varps­fréttum klukkan tíu í gær­kvöldi það sem að því er virt­ist vera erindið sem for­svars­menn Eplis sendu á for­sæt­is­ráð­herra í mars. Kjarninn skrif­aði upp úr því og birti í áður­nefndri frétt.

Bjarni Ákason vildi ekki afhenda Kjarn­anum umrætt erindi þegar eftir því var leitað, en for­sæt­is­ráðu­neytið varð við ósk Kjarnans og hefur afhent erindið. Í því er að finna máls­grein sem ekki kom fyrir í bréf­inu sem frétta­stofa RÚV birti í gær­kvöldi, og yfir­lýs­ing for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í dag snérist um.

Hér fyrir neðan má lesa erindi Eplis til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, sem sent var í mars mán­uði síð­ast­lið­inn, en undir það ritar Ólafur Sólimann á fyr­ir­tækja­sviði Eplis. (Máls­greinin sem ekki var að finna í frétt RÚV er feit­letruð).

Góðan dag.

Núna vinnur fyr­ir­tækið Emerald Networks að lagn­ingu sæstrengs sem mun sjá um gagna­flutn­ing á milli Banda­ríkj­anna við Evrópu með við­komu hér á landi. Sæstreng­ur­inn sem ber heitið Emerald Express mun verða afkasta­mesta og hrað­asta teng­ingin á milli N- Ameríku og Evrópu fyrir gagna­flutn­ing.

Þar með öðl­ast Ísland algjöra sér­stöðu varð­andi stað­setn­ingum fyrir gagna­ver og ekki síst vegna þeirrar grænu orku og fram­boði hennar sem er í boði hér­lendis.

Stór­fyr­ir­tæki í tölvu- og tækni­geir­anum eru að horfa hingað til lands í auknum mæli í leit að væn­legum kostum fyrir stækk­andi gagna­þörf.

Apple Inc. er annt um að vera fyr­ir­tæki sem setur umhverfið í for­gang og leggur sig fram við að finna umhverf­is­væn­ari leiðir í rekstri. Ísland er því full­komin sam­starfs­að­illi fyrir stofnun á gagna­verum með umhverf­is­væna orku­gjafa.

Um nokk­urt skeið höfum við verið að benda for­svars­mönnum Apple á kosti þess að skoða Ísland sem væn­legan kost fyrir gagna­ver en einn helsti ókost­ur­inn hefur alltaf verið skortur á sæstreng til N-Ameríku. Nú er orðið ljóst að sú hindrun verður ekki til staðar mikið lengur og höfum við því kom­ist lengra með þessar við­ræður.

Okkur langar að leita til for­sæt­is­ráð­herra eftir aðstoð við að koma á fundi við ráða­menn Apple í Banda­ríkj­unum til að vekja áhuga þeirra á að reisa gagna­ver á Íslandi. Við erum í sam­bandi við fólk í höf­uð­stöðvum Apple sem er reiðu­búið til að koma á fundi ef hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra hugn­ast að heim­sækja höf­uð­stöðv­arnar í Cupertino í Kali­forníu.

Það er aug­ljóst að stóru tæknirisarnir munu koma til með að reisa gagna­ver á Íslandi og þar með auka það for­skot sem Ísland hefur nú þegar öðl­ast með fram­úr­skar­andi mannauð og þekk­ingu á þessu sviði.

Hugs­an­lega getur þessi fundur átt sam­leið með öðrum erindum for­sæt­is­ráð­herra til Banda­ríkj­anna. Einnig væri upp­lagt að taka til umræðu á slíkum fundi mik­il­vægi þjóð­tung­unnar í tækni­ver­öld­inni fyrir smá­þjóðir á borð við Ísland, sér­stöðu lands­ins sem til­rauna­mark­aðs sem og gríð­ar­lega grósku í hug­bún­að­ar­þróun.

Með von um góðar við­tökur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár