„Forsætisráðuneytið er eitthvað að misskilja“

„Við ákváðum að hafa sam­band við æðstu menn Íslands eftir að við heyrðum af áformum um að lagn­ingu sæstrengs til Íslands frá Ameríku, og svo var líka ein­hver stemmn­ing í kringum Apple varð­andi þessi gagna­ver, þannig að við sendum erindi þar sem við buðum fram aðstoð ykkar til að koma á fundi milli íslenskra stjórn­valda og Apple ef áhugi væri fyrir hendi í þessum efnum.“ Þetta segir Bjarni Ákason fram­kvæmda­stjóri Epli, sem er umboðs­að­ili tækniris­ans Apple á Íslandi, í sam­tali við Kjarnann.

Í yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna frétta um að for­svars­menn Eplis hafi haft sam­band við ráðu­neytið og emb­ætti for­seta Íslands í mars­mán­uði síð­ast­liðnum vegna hugs­an­legra gagna­vera Apple á Íslandi segir: „ Í mars 2014 sendi fyr­ir­tækið Skakki­turn ehf. tölvu­póst til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem óskað var eftir aðstoð for­sæt­is­ráð­herra við að koma á fundi milli Skakkaturns ehf. og Apple Inc. í Banda­ríkj­unum. Skakki­turn ehf. er við­ur­kenndur sölu­að­ili hér á landi á tölvu­bún­aði frá Apple og rekur versl­anir undir heit­inu Epli.

Þá segir í yfir­lýs­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins að starfs­maður Skakkaturns ehf. hafi óskað eftir aðstoð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar við að koma á fundi milli ráða­manna Apple og Skakkaturns. „Í tölvu­póst­inum kom fram að for­svars­menn Skakkaturns ehf. hefðu verið í sam­bandi við fólk í höf­uð­stöðvum Apple, sem væri reiðu­búið að koma á fundi ef for­sæt­is­ráð­herra hugn­að­ist að heim­sækja höf­uð­stöðvar Apple í Kali­forníu.

For­sæt­is­ráð­herra sinnir árlega fjölda erinda frá inn­lendum og erlendum aðilum til að liðka fyrir fjár­fest­ingum og atvinnu­upp­bygg­ingu hér á landi. Ekki hefur hins vegar tíðkast að for­sæt­is­ráð­herra ferð­ist sér­stak­lega milli landa til að koma á fundum milli ein­stakra fyr­ir­tækja og því taldi ráðu­neytið að ekki væri hægt að verða við ósk starfs­manns Skakkaturns ehf.

Ráðu­neytið harmar að tölvu­póst­inum frá Skakkaturni ehf. hafi ekki verið svarað og kannar nú ástæður þess.“

Tilkynning ráðuneytisins byggð á misskilningi


„For­sæt­is­ráðu­neytið hefur eitt­hvað mis­skilið erindið okkar miðað við yfir­lýs­ingu þess í dag. Við áttum engra hags­muna að gæta í þessu máli. Við erum ekk­ert í þessum bransa heldur seljum bara tölvur, en við erum óneit­an­lega með sam­bönd við Apple. Við vildum bara kanna hvort það væri áhugi fyrir hendi hjá íslenskum stjórn­völdum að kom­ast í sam­band við Apple í tengslum við gagna­ver. Apple var hvorki þá né nokkurn tím­ann síðar inn í þessu máli. Við sendum bara þetta bréf, og svo þegar við fengum ekk­ert svar, þá vorum við ekk­ert að pæla í þessu meira. Svo sáum við bara um dag­inn að Danmörk hefði unnið lottóið,“ segir fram­kvæmda­stjóri Epli.

Bjarni segir að Epli hafi hvorki sent Íslands­stofu sam­hljóða erindi né ítrek­anir á for­sæt­is­ráðu­neytið og emb­ætti for­seta Íslands til að ýta á eftir svörum. „Sko, það verður hver að velja sér það sem hann hefur áhuga á. En mér hefði fund­ist allt í lagi ef menn hefðu send okkur tölvu­póst og þakkað okkur fyrir frum­kvæðið, jafn­vel bara til að segja sama og þegið.“

Bjarni vildi ekki afhenda Kjarn­anum umrætt erindi þegar eftir því var leitað.

Erindið sem forsvarsmenn Skakkaturns sendu á forsætisráðuneytið í mars (Samkvæmt frétt í tíufréttum RÚV í gærkvöldi).


Uppfært klukkan 16:34. Í erindið sem frétta­stofa RÚV birti í gær­kvöldi vant­aði eina máls­grein, sem hefur nú verið sett á sinn stað. Kjarninn fékk sent erindi Eplis frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Umrædd máls­grein er feit­letruð í text­anum.

Góðan dag,

Núna vinnur fyr­ir­tækið Emerald Networks að lagn­ingu sæstrengs sem mun sjá um gagna­flutn­ing á milli Banda­ríkj­anna við Evrópu með við­komu hér á landi. Sæstreng­ur­inn sem ber heitið Emerald Express mun verða afkasta­mesta og hrað­asta teng­ingin á milli N-Ameríku og Evrópu fyrir gagna­flutn­ing.

Þar með öðl­ast Ísland algjöra sér­stöðu varð­andi stað­setn­ingu fyrir gagna­ver og ekki síst vegna þeirrar grænu orku og fram­boði hennar sem er í boði hér­lendis.

Stór­fyr­ir­tæki í tölvu- og tækni­geir­anum eru að horfa hingað til lands í auknum mæli í leit að væn­legum kostum fyrir stækk­andi gagna­þörf.

Apple Inc. er annt um að vera fyr­ir­tæki sem setur umhverfið í for­gang og leggur sig fram við að finna umhverf­is­væn­ari leiðir í rekstri. Ísland er því full­komin sam­starfs­að­ili fyrir stofnun á gagna­verum með umhverf­is­væna orku­gjafa.

Um nokk­urt skeið höfum við verið að benda for­svars­mönnum Apple á kosti þess að skoða ísland sem væn­legan kost fyrir gagna­ver en einn helsti ókostu­inn hefur alltaf verið skortur á sæstreng til N-Ameríku. Nú er orðið ljóst að sú hindrun verður ekki til staðar mikið lengur og höfum við því kom­ist lengra með þessar við­ræður.

Okkur langar að leita til for­sæt­is­ráð­herra eftir aðstoð við að koma á fundi við ráða­menn Apple í Banda­ríkj­unum til að vekja áhuga þeirra á að reisa gagna­ver á Íslandi. Við erum í sam­bandi við fólk í höf­uð­stöðvum Apple sem er reiðu­búið til að koma á fundi ef hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra hugn­ast að heim­sækja höf­uð­stöðv­arnar í Cupertino í Kali­forníu.

Það er aug­ljóst að stóru tæknirisarnir munu koma til með að reisa gagna­ver á Íslandi og þar með auka það for­skot sem Ísland hefur nú þegar öðl­ast með fram­úr­skar­andi mannauði og þekk­ingu á þessu sviði.

Hugs­an­lega getur þessi fundur átt sam­leið með öðrum erindum for­sæt­is­ráð­herra til Banda­ríkj­anna. Einnig væri upp­lagt að taka til umræðu á slíkum fundi mik­il­vægi þjóð­tung­unnar í tækni­ver­öld­inni fyrir smá­þjóðir á borð við Ísland, sér­stöðu lands­ins sem til­rauna­mark­aðs sem og gríð­ar­lega grósku í hug­bún­að­ar­þróun.

Með von um góðar við­tökur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár