Starfshópur FIFA leggur til að HM 2022 í Katar verði að vetrarlagi

Eftir sex mán­aða yfir­legu hefur sér­stakur starfs­hópur á vegum Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins (FIFA) nú lagt til að heims­meist­ara­keppnin í knatt­spyrnu karla, sem halda á í Katar árið 2022, verði haldin í lok nóv­em­ber til að forð­ast mikla sum­ar­hita í Mið-Aust­ur­löndum. Frá þessu er greint á vef­síðu FIFA en til­laga starfs­hóps­ins var lögð fram á loka­fundi hans í Doha.

Samkvæmt frétt­inni nýtur til­lagan stuðn­ings allra sex aðild­ar­sam­banda FIFA, en hún verður rædd á næsta stjórn­ar­fundi knatt­spyrnu­sam­bands­ins dag­ana 19. og 20. mars næst­kom­andi.

Þá gerir til­laga starfs­hóps­ins ráð fyrir að heims­meist­ara­mótið verði styttra en venju­lega í dögum talið. Samkvæmt heim­ildum fót­bolta­síð­unnar Teamtalk hefur komið til álita að mótið hefj­ist 26. nóv­em­ber og standi til 23. des­em­ber.

Ljóst er að til­lagan um að færa heims­meist­ara­mótið í fót­bolta mun mæta mik­illi and­stöðu frá evr­ópskum knatt­spyrnu­liðum, en ljóst er að til­færsla móts­ins mun hafa mikil áhrif á Meist­ara­deild EUFA og helstu knatt­spyrnu­deildir álf­unnar.

Verði til­lagan sam­þykkt, sem flest virð­ist benda til, mun leikja­dag­skrá lands­liða á árunum 2018 til 2024 taka breyt­ingum sem og í helstu knatt­spyrnu­deildum heims.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár