„Dauður innflytjandi er besta jólagjöfin“ - nethatur í Svíþjóð

Þegar Svíar vilja fá nán­ari upp­lýs­ingar um lík­ams­árásir og morð­mál en þeir fá í fjöl­miðlum fara þeir á spjall­síð­una Flashback. Þar má gjarnan finna spjall­þræði þar sem fólk er nafn­greint og bak­grunnur árásanna rak­inn í smá­at­riðum. Þeir sem vilja kaupa eit­ur­lyf geta fengið upp­lýs­ingar á síð­unni og þar má einnig finna ein­kunna­gjöf fyrir vænd­is­konur og nudd­stofur. Þetta efni er ekki falið heldur aðgengi­legt frá for­síð­unni innan um umræðu­þræði um sjón­varps­þætti, umhverf­is­mál, sæl­gæti og raunar hvað eina sem fólk vill ræða um. Flashback er stór­merki­legur hluti af sænskri net­sögu sem einnig hefur getið af sér skrá­ar­deil­ing­ar­síð­una Pira­tebay og fyrsta Píra­ta­flokk­inn, stofn­að­ann 1. jan­úar árið 2006.

Síðustu vikur hefur sænska Afton­bla­det fjallað ítar­lega um Flashback og nafn­greint ein­stak­linga sem skrifa undir dul­nefni. Læknir við Karol­inska sjúkra­húsið reynd­ist hafa skrifað um sjúk­linga á síð­unni þar sem hann gerð­ist bæði sekur um gróft kyn­þátta­hatur auk þess sem hann opin­ber­aði trún­að­ar­upp­lýs­ingar. Og það eru ekki bara Sví­þjóð­ar­demókratar sem breiða út hat­urs­boð­skap á net­inu undir dul­nefni. Joakim Anderson sem tók lengi þátt í starfi Jafn­að­ar­manna en nú síð­ast Umhverf­is­flokks­ins hefur ítrekað fagnað því á síð­unni, undir dul­nefni, þegar ráð­ist er á inn­flytj­endur. Þegar fréttir bár­ust af skotárás þar sem inn­flytj­andi lét lífið lýsti hann atburð­inum sem bestu jóla­gjöf­inni. Opin­ber­lega talar hann hins vegar um nauð­syn þess að fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagið fái að þríf­ast. Þegar Afton­bla­det gekk á hann sagð­ist hann hafa rétt til að tjá skoð­anir sínar.

[caption id="attachment_20968" align="alignnone" width="840"] Skrá­ar­deil­inga­síðan Pirate Bay, sem ítrekað hefur verið reynt að loka með tak­mörk­uðum árangri, varð til í Svíþjóð.[/caption]

Enn og aftur um tjáningarfrelsið


Stofn­andi síð­unnar heitir Jan Axelsson og frá byrjun hefur hann sagst vilja vernda tján­ing­ar­frelsið. Reyndar byrj­aði hann fer­il­inn með Flashback TV áður en hann gaf út dag­blað með sama nafni árið 1993. Þar var meðal ann­ars fjallað um til­raunir með LSD auk þess sem hann nafn­greindi og birti myndir af dæmdum nauðgurum. Árið 1995 flutti síðan svo á inter­netið þar sem hún hefur verið þótt upp­gangur hennar hafi fyrst byrjað fyrir alvöru eftir alda­mótin þegar henni var breytt í spjall­svæði.

[caption id="attachment_20969" align="align­right" width="257"] Hinn umdeildi Jan Axelsson, eig­andi og stofn­andi Flashback vef­síð­unnar.[/caption]

Fleiri en milljón not­endur eru skráðir á síð­unni sem eru að langstærstum hluta Svíar. Hún veltir millj­ónum og jafn­vel tugum millj­ónum sænskra á hverju ári en erfitt er að fá nákvæmar upp­lýs­ingar þar sem síðan er skráð í útlöndum. Það er meðal ann­ars gert til að kom­ast hjá því að heyra undir sænska lög­sögu.

Stóra spurn­ingin er auð­vitað hvað fólki er heim­ilt að segja á net­inu. Eru allar skoð­anir jafn­gildar í þjóð­fé­lögum sem telja tján­ing­ar­frelsið til grunn­mann­rétt­inda? Þeir sem standa að síð­unni segja að það sé alls ekki þannig að öll ummæli fái að standa óbreytt. Á hverjum degi eru skrifuð milli 15 og 20 þús­und inn­legg og stjórn­endur síð­unnar segja að um það bil 10% þeirra sé breytt eða eytt af stjórn­endum. Miðað við það sem fær að standa óbreytt á síð­unni veltir maður hins vegar fyrir sér hvað þurfi til að skrif séu rit­skoðuð.

Nafn­leysi á net­inu er ekki bara skjól fyrir þá sem vilja breiða út hatur eða leggja aðra í ein­elti. Það er vernd fyrir þá sem í krafti stöðu sinnar geta ekki tjáð sig opin­ber­lega, fólk í ofbeld­is­sam­bandi sem leitar ráða, þá sem glíma við erf­iða sjúk­dóma og börn og ung­linga sem lent hafa í ein­elti. Flashback er alls ekki bara suðu­pottur þess versta sem inter­netið hefur upp á að bjóða heldur má finna þar mann­gæsku, samúð, góð ráð og stuðn­ing við þá sem eiga við erf­ið­leika að etja.

Segja að nethatrið færi þeim völd


Afton­bla­det hafði sam­band við nokkra af þeim sem hafa skrifað gróf ummæli um nafn­greinda ein­stak­linga eða lagt fólk í ein­elti. Í svar­bréfi lýsir einn af net­höt­ur­unum því hvernig hann dróst sífellt lengra inn í þennan heim. „Á ein­hvern hátt sog­ast maður með og því meira sem maður skrifar því dýpra sekkur maður og fer að nota gróf­ari orð sem maður mundi ekki einu sinni hugsa. Að nota orð eins og negri verður eðli­legt. Umhverfið mótar mann“, skrifar hann í bréf­inu.

Hann segir að skömmin hafi komið þegar hann slökkti á tölv­unni en stuttu síðar hafi hann byrjað aftur. Hann lýsir þessu eins og tölvu­leik, hann leiki í raun per­sónu á síð­unni og hugsi ekki út í hvaða áhrif ummælin hafi á fólk. „Til­finn­ingin að geta séð það sem maður skrifar á síðu sem allur heim­ur­inn getur lesið er svaka­leg. Að hugsa sér, segir maður, þetta skrif­aði ég. Ég hef völd.“

[caption id="attachment_20971" align="alignnone" width="786"] Forsíða Flashback vef­síð­unnar.[/caption]

Sál­fræð­ingur sem Afton­bla­det ræddi við segir að þetta lýsi sér á svip­aðan hátt og spilafíkn. Fólk byrji oft sak­leys­is­lega en fest­ist fljótt í víta­hring sem erfitt sé að losna úr. Til að byrja með skrifi fólk kannski að það eigi að drepa alla kett­linga en seinna að það eigi að nauðga öllum sómölskum börnum. Þetta dæmi er ekki gripið úr lausu lofti. Lýsingar á grófu ofbeldi gagn­vart full­orðnum, börnum og dýrum eru nán­ast dag­legt brauð á síð­unni. Eiit gróf­asta dæmið snýst um 27 ára gamla konu sem var myrt af barns­föður sínum í júlí árið 2013, en hann var frá Úganda. Móðir hennar stofn­aði minn­ing­ar­síðu á Facebook sem var lokað tveimur tímum seinna vegna grófra ummæla. Á Flashback má ennþá finna umræðu­þráð um kon­una þar sem hún er kölluð hóra, því er haldið fram að hún hafi svikið kyn­stofn­inn og að börnin hennar séu skrýmsli. Þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir hafa stjórn­endur síð­unnar ekki fjar­lægt þráð­inn.

Mega fjölmiðlar nýta sér allar upplýsingar?


Afton­bla­det fékk upp­lýs­ingar um not­endur frá sjálf­stæðum hópi sem seg­ist hafa kom­ist yfir gögn um not­endur án þess að útskýra það nánar. Í kjöl­farið hefur hins vegar verið rætt um sam­skipti fjöl­miðla við hópa sem af hug­mynda­fræði­legum ástæðum leka gögnum um bæði nafn­greindar og ónafn­greindar per­sónur. Hvenær mega fjöl­miðlar nýta sér upp­lýs­ingar sem eru fengnar með ólög­legum eða að minnsta kosti vafasömum hætti? Þess utan má velta fyrir sér hver sé raun­veru­leg vernd þeirra sem skrifa á netið og telja sig gera það nafn­laust. Hópurinn sem situr nú á lista yfir not­endur Flashback segir að þeir sem eru sak­lausir þurfi ekk­ert að ótt­ast. En hver ákveður hver sé sak­laus? Er lær­dóm­ur­inn kannski sá að við þurfum alltaf að gera ráð fyrir því að það sem við skrifum geti komið í haus­inn á okkur síðar og hvað þýðir það fyrir hina kúg­uðu sem hingað til hafa getað tjáð sig í skjóli nafn­leys­is­ins?

Fæstir vilja láta loka Flashback og reyndar hefur þeirri skoðun verið haldið fram að síð­una ætti að vernda á sama hátt og sögu­frægar bygg­ingar eða önnur menn­ing­ar­verð­mæti. Gagn­rýnin nú snýr að því að stjórn­endur síð­unnar þurfi að ganga mun harðar fram í rit­skoðun. Í raun má segja að þetta mál snú­ist um grund­vall­ar­spurn­ingar um við­horf okkar til nets­ins, hvort þar gildi sömu reglur og í sam­fé­lag­inu utan þess, eða hvort þetta sé frí­ríki utan laga og reglna þar sem venju­bundin sið­ferð­is­lög­mál gildi ekki. Við erum ennþá á gráa svæð­inu þar sem mörk milli hat­urs, hót­ana og skoð­ana eru ennþá hreif­an­leg. Hvar við svo drögum lín­una er verk­efni næstu ára og ára­tuga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár