Blekkingum beitt til að koma Hagavatnsvirkjun yfir í nýtingarflokk

Tvær umsagnir sem félagið Íslensk Vatns­orka (ÍV) hefur sent atvinnu­vega­nefnd Alþingis, til að knýja á um að virkj­un­ar­kostur við Hagavatn sunnan Lang­jök­uls verði færður úr bið­flokki yfir í nýt­inga­flokk við end­ur­skoðun Ramma­á­ætl­unar, stang­ast á við skýrslu sem verk­fræði­stofan Mannvit vann fyrir félagið um til­högun virkj­un­ar­innar.

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar vill að Haga­vatns­virkjun, sem áætlað er að verði um 20 mega­vött að stærð, verði færð úr bið­flokki yfir í nýt­ing­ar­flokk og hefur unnið til­lögu til þings­á­lykt­unar þess efnis, þrátt fyrir að verk­efn­is­stjórn um ramma­á­ætlun hafi ekki fjallað um virkj­un­ina. Fjöl­margar umsagnir hafa borist nefnd­inni, sem mun taka afstöðu til umsagn­anna áður en hún ákveður hvort leggja skuli þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una fram á þingi til sam­þykktar.

Sandfok mikið vandamál á svæðinu


Í umsögnum ÍV til atvinnu­vega­nefndar er full­yrt að Haga­vatns­virkjun verði svokölluð rennsl­is­virkjun með stöð­ugu vatns­borði sem muni sporna gegn sand­foki, sem er ríkj­andi vanda­mál á svæð­inu. Hagavatn er um fimm fer­kíló­metrar að flat­ar­máli í dag, en gert er ráð fyrir að það muni stækka upp í 23 fer­kíló­metra ef af virkjun verður, sem er álíka stærð og Hagavatn eitt sinn var. Þurrum botni Haga­vatns er ekki hvað síst um að kenna áður­nefnt sand­fok á svæð­inu.

Samkvæmt Ólafi Arnalds, pró­fess­ors í jarð­vegs­fræði, er Haga­vatns­svæðið á meðal virk­ustu upp­foks­svæða lands­ins. Í sam­tali við frétta­stofu RÚV árið 2012 sagði Ólafur að mjög mik­il­vægt væri að yfir­borð Haga­vatns héld­ist stöðugt. Með lækkun vatns­yf­ir­borðs­ins myndi jök­ul­burður, sem gjarnan inni­haldi mikið af fokefnum, fjúka mjög mikið á svæð­inu og skapa „mjög alvar­legar aðstæður.“ Ein ástæða þess að verk­efn­is­stjórn um ramma­á­ætlun hefur ekki lokið umfjöllun sinni um Haga­vatns­virkjun eru upp­lýs­ingar sem komu seint fram um sand­fok sem verk­efn­is­stjórnin vill skoða betur.

Ósamræmi í málatilbúnaði Íslenskrar vatnsorku


Íslensk Vatns­orka, sem sækir fast að fá að byggja 20 mega­vatta virkjun við Hagavatn, sendi inn umsögn til atvinnu­vega­nefndar Alþingis þann 4. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar segir: „Virkj­unin hefur nú verið útfærð á mun umhverf­is­vænni hátt, m.a. með stöð­ugu vatns­borði án dæg­ur­sveiflna.“ Þá er vísað til umsagnar Land­græðslu rík­is­ins í umsögn ÍV þar sem segir: „...en ef fyr­ir­hugað lón fyrir rennsl­is­virkjun yrði myndað, myndi það tví­mæla­laust draga úr sand­foki á aust­ur­hluta svæð­is­ins sunnan Lang­jök­uls.“

Í annarri umsögn ÍV sem félagið sendi atvinnu­vega­nefnd Alþingis þann 12. febr­úar síð­ast­lið­inn segir enn­fremur: „Rann­sóknir á virkj­un­ar­val­kost­inum hafa leitt í Ijós að auka má veru­lega hin jákvæðu áhrif virkj­un­ar­innar á sand­fok með því að útfæra virkj­un­ina sem rennsl­is­virkjun með stöð­ugu vatns­borði, en áður var hún útfærð sem toppafls­virkjun.“

Full­yrð­ingar ÍV í umsögnum félags­ins til atvinnu­vega­nefndar Alþingis, að um svo­kall­aða rennsl­is­virkjun sé að ræða, stang­ast á við skýrslu sem verk­fræði­stofan Mannvit vann fyrir ÍV og send var verk­efna­stjórn 3. áfanga ramma­á­ætl­unar í jan­úar, eða á milli umsagn­anna.

Þar er gert ráð fyrir árlegri vatns­borðs­sveiflu upp á fimm metra í Haga­vatni, það er að fimm metrum muni muna á vatns­yf­ir­borði vatns­ins í hæstu og lægstu stöðu. Þá segir í skýrsl­unni að flat­ar­mál vatns­ins verði 23 fer­kíló­metrar í hæstu stöðu, en það muni fara niður í tæpa 17 fer­kíló­metra í lægstu stöðu. Það þýðir að um sex fer­kíló­metrar koma á þurrt þegar vatns­staða lóns­ins er lág, sem munu vænt­an­lega auka á upp­fok á svæð­inu.

Miklar efasemdir uppi um að virkjunin geti orðið rennslisvirkjun


Í sam­tali við Kjarnann segir Guð­mundur Stef­áns­son, sviðs­stjóri Land­vernd­ar­sviðs hjá Land­græðslu rík­is­ins, að mjög brýnt sé að lón Haga­vatns­virkj­unar verði með stöð­ugu yfir­borði. Ef svo verði ekki raunin muni Land­græðslan fara yfir málið að nýju.

Heim­ilda­menn Kjarnans sem til þekkja segja að uppi séu miklar efa­semdir um að hægt verði að byggja Haga­vatns­virkjun sem rennsl­is­virkjun, til þess sé ekki nægi­legt rennsli á vatna­svæði virkj­un­ar­innar. Það skýri ef til vill ósam­ræmi í ann­ars vegar umsögnum Íslenskrar Vatns­orku til atvinnu­vega­nefndar Alþingis og skýrslu verk­fræði­stof­unnar Mannvits sem unnin var fyrir fyr­ir­tækið og send var verk­efn­is­stjórn um Ramma­á­ætlun.

Hvorki náð­ist í Eyþór Arnalds, stjórn­ar­for­mann Íslenskrar vatns­orku, né Eirík Bragason, fram­kvæmda­stjóra félags­ins, við vinnslu þess­arar fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár