Það er fáránlega dýrt að fljúga „Air Force One“

Banda­rískir skatt­greið­endur þurfa að punga út hátt í 207 þús­und Banda­ríkja­dölum (ríf­lega 27 millj­ónum íslenskra króna) fyrir hverja klukku­stund á meðan fræg­asta flug­vél heims er á flugi. Hér er að sjálf­sögðu átt við hina heims­frægu Air Force One, eða far­þega­þotu for­seta Banda­ríkj­anna. Frétta­mið­ill­inn Business Insider segir frá mál­inu.

Inni í upp­hæð­inni er kostn­aður við elds­neytis­kaup, aðföng og við­hald sam­kvæmt skrif­legu svari frá banda­ríska flug­hernum við fyr­ir­spurn Judicial Watch.

Barack Obama hefur ferð­ast meira út fyrir landa­mæri Banda­ríkj­anna en nokkur annar for­seti í sögu þjóð­ar­innar, og það með dýr­ustu for­seta­flug­vél sem ríkið hefur nokkurn tím­ann rekið.

[caption id="attachment_20757" align="alignnone" width="1024"] Þegar Banda­ríkja­for­seti ferð­ast með Air Force One er sjaldn­ast rauði dreg­ill­inn langt undan.[/caption]

Í umfjöllun Business Insider eru til­tekin nokkur dæmi um ferða­lög for­set­ans og hvað þau kost­uðu banda­ríska skatt­greið­endur. Þar kemur fram að ferða­lög Obama til Westchester í New York ríki, og til Providence á Rhode Island á síð­asta ári hafi kostað skatt­greið­endur ríf­lega 527 þús­und Banda­ríkja­dali, eða tæpar 70 millj­ónir íslenskra króna.

Þá er greint frá því að ferða­lag Obama til Belfast og Dublin dag­ana 17. til 19. júní árið 2013 hafi kostað banda­ríska skatt­greið­endur tæpar átta millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða röskan millj­arð íslenskra króna.

Samkvæmt umfjöllun Business Insider hefur Obama heim­sótt öll nema þrjú ríki Banda­ríkj­anna á meðan hann hefur setið á for­seta­stóli. Samkvæmt umfjöllun dag­blaðs­ins The Washington Post, eru Bill Clinton og George H.W. Bush einu for­set­arnir til að heim­sækja öll 50 ríki Banda­ríkj­anna á síð­ustu 38 árum. Obama hefur hins vegar uppi áform um að verða ekki eft­ir­bátur þeirra.

For­seta­flug­vélin, sem er á þremur hæðum, er meðal ann­ars útbúin fund­ar­her­bergi, borð­stofu, íbúð fyrir for­set­ann, skrif­stofum fyrir starfs­fólk, lækna­stofu (læknir flýgur alltaf með flug­vél­inni), aðstöðu fyrir blaða­menn og eld­húsi sem getur reitt fram mat fyrir hund­rað manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár