Viðvörunarljósin blikka á Norðurlöndunum

Því verður seint haldið fram að árið hefj­ist á sér­stak­lega jákvæðum nótum þegar litið er á efna­hags­kerfi Norð­ur­landa. Það er ótíma­bært að segja að kreppa sé yfir­vof­andi en fréttir vik­unnar benda hins vegar til þess að næstu mán­uðir skipti sköpum varð­andi þróun efna­hags­mála á Norð­ur­löndum næstu árin. Stóra vanda­málið sem stjórn­mála­menn og for­svars­menn seðla­banka standa frammi fyrir er að þeir hafa lítil áhrif á tvo þætti sem skipta gríð­ar­lega miklu máli; orku­verð og efna­hags­þróun á evru­svæð­inu.

Lækkandi olíuverð hefur margvísleg áhrif


Olíuverð hefur lækkað um tæpan helm­ing frá síð­ast sumri og því hefur verið spáð að næstu tvö ár muni það ekki fara mikið upp fyrir 60 doll­ara á tunnu. Til sam­an­burðar kost­aði tunnan yfir 100 doll­ara síð­asta sumar. Áhrifin af lækk­un­inni eru mest í Noregi en sam­kvæmt útreikn­ingum gætu tekjur norska rík­is­ins lækkað um 84 millj­arða norskra króna árið 2015 sem eru um 6,5 pró­sent af tekjum norska rík­is­ins. Til sam­an­burðar voru beinar áætl­aðar tekjur rík­is­ins af olíu­iðn­að­inum 344 millj­arðar norskra króna árið 2014. Þetta er hins vegar aðeins hluti áhrif­anna því sam­dráttur í fjár­fest­ingum skiptir gríð­ar­legu máli. Samkvæmt fréttum frá því í des­em­ber höfðu um 7000 manns misst vinn­una og tekjur Statoil á fjórða árs­fjórð­ungi lækk­uðu um 80 pró­sent frá sama tíma­bili 2013.

[caption id="attachment_20235" align="aligncenter" width="640"] Eldar Saetre, for­stjóri Statoil, ávarpar blaða­menn þungur á brún á blaða­manna­fundi 6. febr­úar síð­ast­lið­inn.[/caption]

Á föstu­dags­morgun til­kynntu for­svars­menn Statoil hins vegar að fram­kvæmdir við nýjan bor­p­all myndu hefj­ast fljót­lega og að hann muni fram­leiða olíu í hálfa öld frá árinu 2019. Johan Sverdrup bor­p­all­ur­inn mun skila um það bil 1350 millj­örðum norskra króna í tekjur og þar af gæti um helm­ing­ur­inn runnið beint til norska rík­is­ins. Það sem skiptir hins vegar sköpum er að bor­p­all­ur­inn skilar arði þar til að olíu­verð lækkar niður fyrir 38 doll­ara á tunn­una og gert er ráð fyrir að um fimm­tíu þús­und störf geti skap­ast. Norska hag­stofan gerir engu að síður ráð fyrir því að Noregur sé á leið inn í skamm­lífa efna­hagslægð þar sem minnk­andi fjár­fest­ing og einka­neysla hafi mest áhrif. Hins vegar hefur verið bent á að veik­ing norsku krón­unnar gæti hjálpað til skemmri tíma því það hjálpi öðrum útflutn­ings­greinum sem lengi hafi staðið í skugg­anum af olíu­iðn­að­inum. Fjár­mála­ráð­herr­ann Siv Jensen segir að rík­is­stjórnin hafi þegar brugð­ist við stöð­unni með því að leggja aukið fé í rann­sóknir og þróun með það að marki að bæta nýsköpun í land­inu.

Þeir ríkustu þurfa að borga fyrir að geyma peninga í banka


Danska hag­kerfið er í nið­ur­sveiflu en í jan­úar mæld­ist verð­hjöðnun í fyrsta sinn í rúm 60 ár. Vísitala neyslu­verð lækk­aði um 0,1% frá því í jan­úar í fyrra sem að miklu leyti má rekja til lækk­andi olí­verðs. Ef olíu­verð er tekið úr vísi­töl­unni er því enn vægur vöxtur í Danmörku og reyndar á evru­svæð­inu öllu. Sér­fræð­ingar benda á að ef ástandið vari áfram megi gera ráð fyrir að neyt­endur haldi að sér höndum og bíði með útgjöld í þeirri von um að hlutir lækki í verði. Hins vegar geti það allt eins gerst að fólk auki neysl­una þar sem að tals­verðar upp­hæðir sparist með lægra olíu­verði. Verð­hjöðnun til skemmri tíma geti því einmitt verið jákvæð fyrir danskt efna­hags­líf.

Sam­drátt­ur­inn hefur meðal ann­ars haft þau áhrif að stýri­vextir í Danmörku eru -0,75%. Danski Seðla­bank­inn til­kynnti á föstu­dag að hann hyggð­ist ekki lækka þá meira eins og flestir bjugg­ust við en vext­irnir hafa mikil áhrif á banka­starf­semi í land­inu. Danske Bank til­kynnti í síð­ustu viku að rík­ustu kúnn­arnir þurfi nú að greiða bank­anum fyrir að geyma pen­inga fyrir þá. Ákvörð­unin gildir reyndar ekki um reikn­inga ein­stak­linga.

Nú velta lík­lega margir fyrir sér hvers vegna bank­arnir taki þessa ákvörðun. Hún snýst ein­fald­lega um það að græða pen­inga en í núver­andi vaxtaum­hverfi er ekki sjálf­gefið að bank­arnir græði á útlánum. Sem dæmi má nefna að í síð­ustu viku til­kynnti Real­kredit að vextir á nýjum hús­næð­is­lánum væru -0,4% sem þýðir ein­fald­lega að við­skipta­vinir fá borgað fyrir að fá lán­aða pen­inga. Þessar fréttir koma í kjöl­farið á því að Dönum stóð til boða að taka hús­næð­is­lán til 30 ára með föstum 2% vöxtum.

[caption id="attachment_16343" align="aligncenter" width="1024"] Mynd tekin á versl­un­ar­göt­unni Strikinu í Kaup­manna­höfn. Blikur eru á lofti í efna­hags­málum Dana.[/caption]

Skandinavísku krónurnar viðkvæmar


Þeir sem fylgj­ast með gjald­eyr­is­mörk­uðum hafa vænt­an­lega tekið eftir tölu­verðum lækk­unum á skand­in­av­ísku gjald­miðl­unum und­an­farnar vikur. Skýr­ing­arnar eru marg­vís­legar en miðað við hversu lágir vext­irnir þykir mörgum und­ar­legt að erlendir fjár­festar haldi áfram að kaupa þessar krónur. Í Danmörku nema þessi við­skipti hátt í 200 millj­örðum danskra króna það sem af er ári og svo virð­ist vera sem stöðu­taka gegn dönsku krón­unni þyki ekki hafa mikla áhættu í för með sér. Talið er að banda­rískir vog­un­ar­sjóðir eigi nú meira en 10 þús­und millj­arða danskra króna.

Svíar hafa einnig áhyggjur af þró­un­inni og í síð­ustu viku lækk­aði sænski Seðla­bank­inn stýri­vexti niður í -0,1%. Þeir hafa aldrei áður verið nei­kvæðir í Svíþjóð. Ástæðan er að flestu leyti sú sama og í Danmörku, Seðla­bank­inn vill fá einka­neyslu í gang og ná verð­bólg­unni upp í 2%. Kannanir sýna hins vegar að á mark­aði hafa mjög fáir trú á því að þetta mark­mið náist næstu fimm árin.

Almenn­ingur í Svíþjóð finnur mjög ræki­lega fyrir ástand­inu á hús­næð­is­mark­að­inum því bæði er mjög ódýrt að fá lán en á sama tíma hefur hús­næð­is­verð hækkað óheyri­lega. Síðustu 12 mán­uði hefur hús­næð­is­verð hækkað um 9% í land­inu öllu en breyt­ingin er mjög mis­jöfn eftir svæðum. Sem dæmi má nefna að í jan­úar nam með­al­tals fer­metra verð á íbúð 500 þús­und íslenskum krónum í Svíþjóð en á sama tíma var með­al­tals­verð tæpar 1,2 millj­ónir íslenskra í Stokk­hólmi. Í mið­borg­inni er verðið enn hærra og sem dæmi má nefna þessa 42 fer­metra íbúð sem er sett á 55 millj­ónir en má gera ráð fyrir að selj­ist á nokkuð hærra verði.

[caption id="attachment_20266" align="aligncenter" width="648"] Stokk­hólmur. Gríð­ar­lega hátt fer­metra­verð í höf­uð­borg­inni veldur áhyggjum.[/caption]

Óvissa framundan


Mjög erfitt er að spá fyrir um þróun efna­hags­mála á Norð­ur­löndum því óvissu­þætt­irnir eru margir. Fari olíu­verð hækk­andi og taki evru­svæðið við sér er nokkuð bjart framundan. Útflutn­ingur fer að lang mestu leyti til ESB-land­anna og því mik­il­vægt að mark­aðir þar taki við sér. Þá skiptir gríð­ar­legu máli að inn­viðir á Norð­ur­löndum eru sterkir og þau því ágæt­lega í stakk búin til að mæta tíma­bundnum kreppum. Framundan eru áhuga­verðir tímar og ljóst að þeir sem fara með stjórn efna­hags­mála þurfa að halda vel á spöð­unum. Sporin sem mörkuð eru nú geta haft langvar­andi áhrif á Norð­ur­löndin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár