Þegar þjóðhöfðingjar eru valdir með kynlífi

Árið 1995 voru tæp 70 pró­sent Svía and­víg því að leggja niður kon­ungs­veldið en árið 2012 var hlut­fallið komið niður fyrir 60 pró­sent. Stuðn­ingur við kóng­inn hefur hrapað í kjöl­far hneyksl­is­mála og nýjar upp­lýs­ingar um tengsl fjöl­skyld­unnar við nas­ista hafa svo sann­ar­lega ekki hjálpað. Viktoría krón­prinsessa nýtur enn mik­ils stuðn­ings en yngri syst­kyni hennar hafa hins vegar mátt þola mikla gagn­rýni fyrir hegðun og ekki hvað síst maka­val. Enginn býst við því að kon­ungs­veldið verði lagt niður á næst­unni en það stytt­ist í að fram­tíð þess verði rædd alvar­lega á póli­tískum vett­vangi.

Í frétt Afton­bla­det frá því síð­asta haust kemur fram að hjá þing­mönnum undir fer­tugu vilja 39 pró­sent leggja kon­ungs­veldið niður en hlut­fallið er 29 pró­sent hjá þeim sem eru eldri en fer­tugir. Einn þing­manna Vinstri flokks­ins orð­aði það svo að æðsti stjórn­andi lands­ins ætti að vera val­inn í kosn­ingum en ekki með kyn­lífi. Mestur stuðn­ingur við lýð­veldi er hjá Vinstri flokknum og Umhverf­is­flokknum en hægra megin er það hinn frjáls­lyndi Þjóð­ar­flokkur sem helst er fylgj­andi hug­mynd­inni. Það merki­lega við þessar tölur er að síð­ustu ár hefur stuðn­ing­ur­inn minnkað jafnt og þétt hjá þing­mönnum og þjóð­inni allri. Sú kyn­slóð sem nú vex úr grasi er því lík­legri til að líta á kon­ungs­fjöl­skyld­una sem und­ar­lega tíma­skekkju sem á ekk­ert erindi í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lögum 21. aldar.

[caption id="attachment_19441" align="aligncenter" width="643"] Viktoría krón­prinsessa ásamt for­eldrum sínum.[/caption]

Sænska kon­ungs­fjöl­skyldan á að vera sam­ein­ing­ar­tákn þjóð­ar­innar og þannig hafin yfir dæg­ur­þras stjórn­mál­anna. Mörgum þykir fjöl­skyldan þó hafa gengið heldur langt því það þykir sæta tíð­indum ef þau gera meira en að brosa og bjóða góðan dag­inn. Í síð­ustu viku gagn­rýndi einn af yfir­mönnum sænka útvarps­ins Madel­eine prinsessu harð­lega fyrir að mæta aldrei í við­tal. Leif Eriksson stýrir svæðis­út­varpi SR í Gäv­le­borg en Madel­eine er her­toga­ynja hér­aðs­ins. Í harð­orðu bréfi til hirð­ar­innar segir hann að stöðin eigi ekki eina sek­úndu af efni með prinsess­unni og að frétta­menn telj­ist heppnir ef þeir geti kallað til hennar spurn­ingar þar sem hún gengur bros­andi fram­hjá þeim. Það hljóti að telj­ast und­ar­legt að á sama tíma og kon­ungs­fjöl­skyldan reyni að verða nútíma­legri forð­ist hún fjöl­miðla eins og heitan eld­inn. Orðrétt segir hann, „að veifa og brosa dugir ekki og að líta svo á að þau séu hafin yfir lýð­ræðið og opin­bera umræðu er óskilj­an­legt og gam­al­dags.“

Lesblindan hefur áhrif


Ekki verður litið fram­hjá þeirri stað­reynd að margir í kon­ungs­fjöl­skyld­unni þjást af bæði les- og skrif­blindu sem svo sann­ar­lega hjálpar ekki til í dag­legum störfum. Kon­ung­ur­inn, sem á sænsku er skrifað Kungen, er oft kall­aður Knugen með til­vísun í les­blind­una og bæði Viktoría og Karl Philipp hafa lýst því í við­tölum hversu erfitt það var að drag­ast aftur úr í skóla. Árið 2013 afhenti prins­inn verð­laun fyrir íþrótta­mann árs­ins í Svíþjóð þar sem hann rugl­að­ist á tölum þegar hann las upp úrslitin. Tæp 391 þús­und atkvæði urðu að 3995 atkvæðum og lengi á eftir var gert grín að honum fyrir ræð­una. Ári síðar snéri hann hins vegar aftur og hélt frá­bæra ræðu þar sem hann sagð­ist þekkja hvernig það væri að mis­takast, halda áfram og gera betur næst þegar tæki­færi gæf­ist. Prinsinn hafði verið í strangri þjálfun og í raun má segja að árið hjá honum hafi minnt á sögu­þráð­inn í kvik­mynd­inni The Kings’ Speech.

Klámklúbbar og nasismi


Árið 2010 kom út bók um Karl Gústaf kon­ung þar sem birtar voru frá­sagnir af ferðum hans í vænd­is­hús og strípi­klúbba og fram­hjá­haldi með þekktri söng­konu. Þessum sögum var mómælt harð­lega af hirð­inni en ljóst er að orð­spor hans hefur beðið hnekki. Í könn­unum segir um helm­ingur þjóð­ar­innar að hann eigi að segja af sér og afhenda Viktoríu krún­una. Hún yrði þar með fyrsta konan til að gegna þjóð­höfð­ingja­emb­ætt­inu í Svíþjóð frá árinu 1720.

[caption id="attachment_19444" align="aligncenter" width="640"] Karl Gústaf Svía­kon­ungur er umdeildur, enda þykir hann mjög breyskur maður svo ekki sé fastar að orði kveðið.[/caption]

Annað sem hefur skaðað kon­ungs­fjöl­skyld­una eru upp­lýs­ingar um tengsl hennar við nas­isma. Faðir Silviu drottn­ingar var með­limur í nas­ista­flokknum og á stríðs­ár­unum rak hann stál­verk­smiðju í Þýska­landi sem hafði verið stolið frá gyð­ingum. Hirðin hefur gert lítið úr þessum tengslum hans og sagt að bæði hafi hann ekki stutt nas­ista og auk þess hjálpað gyð­ingum að flýja frá Þýska­landi. Illa gengur þó að sanna þessar stað­hæf­ingar fjöl­skyld­unnar.

[quote font="0" align="right"]Eitt af því sem ein­kennir sænsku hirð­ina er hversu illa hún bregst við allri gagn­rýni. Líklega spilar þar inn í að kast­ljós fjöl­miðl­anna er skær­ara en nokkru sinni fyrr og athyglin þess vegna meiri.[/quote]

Nýlega hafa sagn­fræð­ingar og blaða­menn svo reynt að varpa ljósi á afstöðu sænsku hirð­ar­innar til nas­ista í Seinni heim­styrj­öld­inni. Kon­ung­ur­inn Gústaf V á til dæmis að hafa skrifað bréf til Hitlers árið 1941 og þakkað honum fyrir að ráð­ast gegn bol­sé­visku pest­inni. Bréfið var víst stoppað af sænsku rík­is­stjórn­inni en öll þessi saga er hulin leynd­ar­hjúpi. Þá er enn deilt um tengsl föður núver­andi kon­ungs við nas­ista­flokk­inn en hann lést í flug­slysi árið 1947. Þó er hægt að full­yrða að sterk tengsl voru á milli aðals­ins í Svíþjóð og í Þýska­landi enda langvar­andi sögu­leg tengsl sem náðu aftur til Han­sa­kaup­manna og við­skipta á mið­öldum.

Geta afsalað sér titlinum ef þau vilja


Eitt af því sem ein­kennir sænsku hirð­ina er hversu illa hún bregst við allri gagn­rýni. Líklega spilar þar inn í að kast­ljós fjöl­miðl­anna er skær­ara en nokkru sinni fyrr og athyglin þess vegna meiri. Hvert ein­asta smá­at­riði er skoðað og greint og skiptir þá engu hvort kon­ungs­fjöl­skyldan er í opin­berum erinda­gjörðum eða ekki. Madel­eine prinsessa flúði til dæmis frá Svíþjóð og hefur búið í New York und­an­farin ár þótt hún seg­ist ætla að flytja til baka fljót­lega. Hún þolir sviðs­ljósið illa, en hefur hins vegar nýtt sér kon­ungs­tign­ina til hins ítrasta á erlendri grundu með þátt­töku í skemmt­ana­lífi ríka og fræga fólks­ins. Einn dálka­höf­unda Afton­bla­det benti rétti­lega á í vik­unni að fólk þurfi ekki að vera prins eða prinsessa ef það vilji það ekki. Finnist Madel­eine svona erfitt að upp­fylla opin­berar skyldur eigi hún ein­fald­lega að afsala sér titl­inum. Það hafi verið gert áður og í raun ekk­ert því til fyr­ir­stöðu sjái fólk ekki fram á að geta sinnt hlut­verk­inu.

[caption id="attachment_19445" align="aligncenter" width="644"] Madelaine prinsessa ásamt eig­in­manni sínum og dóttur.[/caption]

Sænskir kon­ungar af Berna­dotte ætt­inni hafa setið langt fram á æviár og því væri Karl Gústaf kon­ungur að brjóta hefð ef hann segði af sér á næst­unni. Það gæti hins vegar verið eina leiðin til að bjarga kon­ungs­veld­inu sem á svo sann­ar­lega undir högg að sækja. Haldi sama þróun áfram mun stuðn­ingur við hana minnka jafnt og þétt og þá er þess ekki lengi að bíða að kyn­líf fjöl­skyld­unnar verði aðeins til skemmt­unar, en ekki til að skapa þjóð­höfð­ingja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár