Fíkniefnapeningar stofnanda Silk Road fóru í gegnum Ísland

Banda­ríkja­mað­ur­inn Ross William Ulbricht var sak­felldur fyrir dóm­stóli í New York ríki í gær, meðal ann­ars fyrir fíkni­efna­sölu og pen­inga­þvætti í gegnum vef­síð­una Silk Road. Ákæran á hendur Ulbricht var í sjö liðum, og var hann sak­felldur í þeim öllum. Hundruð millj­ónir króna voru vistaðar á vef­þjónum vef­síð­unnar á Íslandi. Frétta­mið­ill­inn Wired greinir frá mál­inu.

Vefsíðan Silk Road var tekin niður í októ­ber árið 2013, en hún var nokk­urs konar mark­aðs­torg fyrir fíkni­efni og annan ólög­legan varn­ing. Banda­ríska alrík­is­lög­reglan (FBI) hefur sagt að vef­síðan hafi reynst þró­að­asta og umfangs­mesta mark­aðs­torg glæpa­manna á net­inu, en henni hefur verið líkt við eBay fyrir við­skipti með fíkni­efni þar sem þús­undir fíkni­efna­sala hafi selt mörg hund­ruð kíló af fíkni­efnum.

Þá greindu fjöl­miðlar frá því að þar hafi verið að finna til sölu leið­bein­ingar um hvernig skuli brjót­ast inn í hrað­banka, listar yfir tengiliði á svarta mark­aðnum og skjala­fals­ara og þá hafi verið hægt að kom­ast í sam­band við leigu­morð­ingja í tíu löndum í gegnum vef­síð­una.

Lögregluyfirvöld á Íslandi aðstoðuðu FBI


Þar sem síðan var vistuð hér á landi, aðstoð­aði rann­sókn­ar­lög­reglu­deild lög­reglu höf­uð­borga­svæð­is­ins banda­rísku alrík­is­lög­regl­una (FBI) við rann­sókn á starf­semi vef­síð­unnar. Aðstoðin var veitt á grund­velli rétt­ar­beiðni og fólst í öflun raf­rænna gagna um vef­síð­una.

Í frétta­til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Íslandi, sem send var fjöl­miðlum í kjöl­far aðgerð­anna segir: „Lauk þess­ari rann­sókn­ar­að­stoð með aðgerðum hér á landi í síð­ustu viku þar sem Silkroad vef­síðan var tekin niður og hald­lagður raf­rænn gjald­mið­ill, Bitcoin, að jafn­virði yfir 3 millj­ónir banda­ríkja­dala. Ekki eru önnur tengsl við Ísland en þau að vef­síðan var hýst hér á landi, engar hand­tökur voru fram­kvæmdar vegna þessa hér á landi og engir inn­lendir aðilar tengj­ast að öðru leyti rekstri hennar.“

Áður­nefndur stofn­andi Silk Road á yfir höfði sér að minnsta kosti þrjá­tíu ára fang­els­is­dóm, en lög­menn hans segja að dómnum verði áfrýjað.

FBI fann fúlgu fjár í gegnum vefþjón á Íslandi


Ulbricht var hand­tek­inn í San Francisco í októ­ber 2013, og þá lagði lög­regla jafn­framt hald á far­tölv­una hans. Við aðal­með­ferð máls­ins kom fram hvernig full­trúar FBI röktu 13,4 millj­ónir Banda­ríkja­dala, sem sam­svarar tæp­lega 1,8 millj­örðum króna, í formi Bitcoin raf­myntar í gegnum vef­þjóna vef­síð­unnar á Íslandi og Penn­syl­vaníu í Banda­ríkj­unum yfir í „raf­veski“ Ulbricht sem var aðgengi­legt í gegnum far­tölvu hans. Veskið var það sönn­un­aragn sem vó þyngst í sak­fell­ingu stofn­anda Silk Road, en raf­myntin var milli­færð inn í það frá vef­þjón­unum á Íslandi og í Banda­ríkj­unum.

Samkvæmt frétt Vísis frá 9. októ­ber voru gögn Silk Road hér á landi vistuð í gagn­va­veri Thor sem rekið er af Advania.

Við fyr­ir­töku máls­ins krafð­ist verj­andi Albricht þess að sönn­un­ar­gögn sak­sókn­ara yrðu úti­lokuð frá rétt­ar­höld­unum þar sem FBI hefði kom­ist yfir þau með ólög­legri og til­hæfu­lausri leit á vef­þjónum Silk Road á Íslandi til að stað­setja tölvu höf­uð­paurs­ins.

Albricht not­að­ist við for­ritið Tor til að fela slóð sína, en for­ritið hefur verið bendlað við hið svo­kall­aða „myrkra­net“ eða „Dark Web,“ þar sem not­endur for­rit­is­ins geta athafnað sig á inter­net­inu eft­ir­lits­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár