RÚV braut lög með því að sýna James Bond of snemma um kvöld

RÚV braut gegn fjöl­miðla­lögum með því að sýna James Bond kvik­mynd­ina Gold­enEye klukkan föstu­dags­kvöldið 9. jan­úar síð­ast­lið­inn. Sýning mynd­ar­innar hófst klukkan 20:55, en hún sam­kvæmt flokkun er myndin bönnuð börnum innan tólf ára. Samkvæmt fjöl­miðla­lögum má ekki sýna efni sem er bannað börnum í línu­legri dag­skrá í sjón­varpi fyrir klukkan 22:00 á kvöldin.

RÚV harm­aði mis­tökin en nið­ur­staða fjöl­miðla­nefndar er afdrátt­ar­laus: RÚV braut gegn fjöl­miðla­lögum. Hins vegar var fallið frá sekt­ar­á­kvörðun í mál­inu.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu fjöl­miðla­nefndar sem var birt í dag.

Handboltaleik um að kenna


Þann 13. jan­úar síð­ast­lið­inn barst fjöl­miðla­nefnd bréf þar sem vakin var athygli á þessu mögu­lega broti. Í kjöl­farið óskaði nefndin eftir upp­lýs­ingum frá RÚV „um hvaða sjón­ar­mið hefðu legið því til grund­vallar að myndin var talin hæf til sýn­ingar í sjón­varpi hjá RÚV fyrir kl. 22:00 föstu­dags­kvöldið 9. jan­úar 2015“.

Í svari RÚV, sem barst 23. jan­úar, kom fram að þessa „óheppi­legu dag­skrár­setn­ingu hjá RÚV væri að rekja til þess að umrætt kvöld hafi verið bein útsend­ing frá lands­leik í hand­bolta karla sem hafi varað nokkru skemur en gert hafi verið ráð fyrir í dag­skrár­setn­ingu. Auk þess hafi verið tekin ákvörðun með of skömmum fyr­ir­vara um að falla frá dag­skrár­liðnum Útsvari, sem hafi átt að vera í sýn­ingu milli lands­leiks­ins og Gold­enEye, þar sem dag­skrár­lið­ur­inn skar­að­ist við íþrótta­út­send­ing­una. Þetta hafi leitt til þess að Gold­enEye hafi farið í loftið klukku­tíma fyrr en upp­haf­lega hafi verið gert ráð fyrir í dag­skrár­setn­ingu umrætt kvöld. Fram kom í bréfi Rík­is­út­varps­ins að dag­skrár­deild sjón­varps harmi þessi mis­tök“.

Fyrsta brot RÚV


Fjöl­miðla­nefnd komst síðan að þeirri nið­ur­stöðu síð­ast­lið­inn mánu­dag að RÚV hefði brotið geng fjöl­miðla­lögum með því að sýna Gold­enEye á þeim tíma sem hún fór línu­lega í loftið. Það var hins vegar ákveðið að falla frá því að sekta RÚV, þótt heim­ild hafi verið til þess, þar sem um óveru­legt brot var að ræða og þetta er í fyrsta sinn sem RÚV fremur brot af þessu tagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár