Standard og Poor's greiðir 1,4 milljarða dala sekt vegna kreppunnar

Mats­fyr­ir­tækið Standard og Poor's (S&P) hefur sam­þykkt að greiða 1,38 millj­arða banda­ríkja­dala sátt­ar­greiðslu til stjórn­valda sem kærðu fyr­ir­tækið fyrir að hafa gefið út upp­blásið verð­mat á hús­næð­is­lána­verð­bréfum (mortage-backed securities) og öðrum eignum í hús­næð­is­bólunni, og með því stuðlað að fjár­málakrepp­unni. Frétta­mið­ill­inn USA Today greinir frá mál­inu.

Samkvæmt sam­komu­lag­inu greiðir S&P hátt í 688 millj­ónir banda­ríkja­dala til banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, og sömu upp­hæð til nítján fylkja og Washington D.C. Aldrei fyrr hefur mats­fyr­ir­tæki greitt jafn háa upp­hæð í formi sekt­ar­greiðslu.

Mat Standard & Poor's litað af hagsmunaárekstrum


Á árunum 2004 til 2007, full­yrti S&P rang­lega að mat fyr­ir­tæk­is­ins á hús­næð­is­lána­verð­bréfum og afleiðum væri hlut­laust og sjálf­stætt. Í raun var mat fyr­ir­tæk­is­ins litað af hags­muna­á­rekstrum, sér í lagi vilja S&P til að auka tekjur sínar með því að gefa út heil­brigð­is­vott­orð á skuld­irnar sem bank­arnir voru að selja, að því er fram kemur í mál­flutn­ingi banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Eric Holder, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, segir að yfir­stjórn S&P hafi ítrekað hunsað áhyggjur helstu sér­fræð­inga fyr­ir­tæk­is­ins um að það hefði gefið út topp­ein­kunnir á fjár­mála­af­urðir sem stæðu ekki undir þeim. Á meðan þessi stjórnun hafi hjálpað S&P að halda við­skipa­vinum sínum ánægðum, það er fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum, hafi athæfið stór­skaðað hag­kerfi Banda­ríkj­anna og stuðlað að verstu fjár­málakreppu í land­inu síðan í krepp­unni miklu.

Sátt­ar­greiðslu­sam­komu­lagið, sem til­kynnt var um í dag, leit dags­ins ljós eftir margra mán­aða samn­inga­fundi. Nú þegar eru uppi gagn­rýn­is­raddir um að í sam­komu­lag­inu sé ekki að finna klausu þar sem S&P við­ur­kennir að hafa brotið lög.

Lítið og lélegt


Við­skipta­lög­fræð­ing­ur­inn Andrew Stolt­mann gagn­rýnir þetta mjög, í umfjöllun USA Today, og segir S&P sleppa allt of auð­veld­lega frá borði. Sektin hafi ekki verið nægi­lega há til að draga úr hættu á sams­konar hegðun í fram­tíð­inni.

Í þess­ari viku verða liðin tvö ár frá því að banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið kærði S&P fyrir svik, og sak­aði fyr­ir­tækið um að hafa látið undir höfuð leggj­ast að vara fjár­festa við yfir­vof­andi hruni hús­næð­is­mark­að­ar­ins, til að skaða ekki afkomu sína.

Dóms­mála­ráðu­neytið krafð­ist þess upp­haf­lega að S&P yrði dæmt til að greiða fimm millj­arða Banda­ríkja­dala í sekt fyrir athæfi sitt, en sátt­ar­greiðslu­fjár­hæðin nú upp á tæpa 1,4 millj­arða dala er lægri en sem nemur tekjum S&P á árinu 2013. Þá námu tekjur Standard og Poor's tæpum 2,3 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Fleiri málshöfðanir í undirbúningi?


Sér­fræð­ingar segja að mála­ferli banda­rískra yfir­valda gegn S&P gefi for­smekk­inn að frek­ari máls­höfð­unum gegn hinum stóru mats­fyr­ir­tækj­unum, Fitch og Moody's. Mats­fyr­ir­tækin þrjú hafa nefni­lega öll verið sökuð um að kynda undir fjár­málakrepp­una með því að gefa út heil­brigð­is­vott­orð á eitruð hús­næð­is­lán sem bank­arnir seldu svo líf­eyr­is­sjóðum og öðrum fjár­festum. Sömu mats­fyr­ir­tækin gáfu ítrekað út heil­brigð­is­vott­orð á íslensku bank­ana, og því má velta fyrir sér rétt­ar­stöðu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna og ann­arra hlut­hafa í bönk­unum í þessu sam­bandi.

Þegar málið hófst vís­aði S&P öllum ásök­unum um ámæl­is­verð vinnu­brögð á bug, og sagði þær inni­stæðu­lausar og „ein­fald­lega ósannar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár