Hatur og fordómar í skjóli tjáningarfrelsis

Það tekur ekki langan tíma að finna sænskar síður sem inni­halda við­bjóðs­legan hat­urs­boð­skap. Margar þeirra bein­ast gegn inn­flytj­endum og reyndar öllu því sem síðu­hald­arar telja ógna hvíta kyn­stofn­inum. Í þessum kreðsum telja margir að Sví­þjóð­ar­demókratar gangi alls ekki nógu langt í mál­flutn­ingi sínum og því hefur nýr flokkur verið stofn­aður, Flokkur Svía. Þarna fær ómeng­aður hat­urs­boð­skapur útrás og allri gagn­rýni á flokk­inn er svarað með því að hún sé til­raun til að brjóta mann­rétt­indi þeirra og hefta tján­ing­ar­frelsi. Þessi spurn­ing er orðin lyk­ill­inn að því að drepa alla umræðu um for­dóma í Svíþjóð: Er ekki tján­ing­ar­frelsi í land­inu?

Síðustu tvær vikur hefur frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn Uppdrag Granskning í sænska sjón­varp­inu fjallað um gyð­inga- og múslima­hatur í Svíþjóð. Þætt­irnir varpa ljósi á alvar­lega stöðu því hat­urs­glæpum fer fjölg­andi á sama tíma og umburð­ar­lyndi eykst hjá þjóð­inni í heild. Það er til­finn­ing bæði þeirra sem verða fyrir slíkum glæpum og þeirra sem starfa að þessum málum, að lít­ill hópur sé orð­inn hávær­ari og gangi sífellt lengra. Gyðingar verða fyrir marg­vís­legu aðkasti sem birt­ist síð­ast í mót­mælum gegn því að fjöl­miðlar minnt­ust þess að 70 ár væru liðin frá frelsun fanga í Auschwitz. Þótt aðgerðir nýnas­ista gegn gyð­ingum séu þekktar kom þó á óvart hvaða hópur það er sem ógnar þeim mest í Malmö.

[caption id="attachment_18793" align="aligncenter" width="646"] „Okkar götur. Okkar torg.“ Í lok ágúst kom saman fjöldi fólks á götum Stokk­hólms til að mót­mæla fjölda­fundi á vegum Flokks Svía.[/caption]

Gyðingahatrið tengist deilunum um Palestínu


Í fyrr­greindum þætti SVT reyna þátt­ar­gerð­ar­menn að átta sig á því hverjir það eru sem hæð­ast að eða ógna gyð­ingum í Malmö. Í árlegri skýrslu sænskrar stofn­unnar sem heldur utan um afbrota­töl­fræði kemur fram að það séu ekki nýnas­istar sem standi fyrir flestum brotum gegn gyð­ingum. Algeng­ara er að það séu þeir sem flust hafi til Sví­þjóðar frá Mið­aust­ur­löndum og þá einkum ungir karl­menn. Til­vik­unum fjölgar um leið og fréttir ber­ast af átökum í Ísrael og Palest­ínu og í frétt SVT segj­ast gyð­ingar í Malmö ítrekað þurfa að svara fyrir aðgerðir ísra­elska hers­ins. Árin 2013 og 2014 bár­ust lög­regl­unni á Skáni 137 kærur vegna gyð­inga­hat­urs. Þar gat verið um að ræða haka­krossa sem höfðu verið teikn­aðir á hús, hót­anir út á götu, árásir þar sem flöskum var kastað og sprengju­hótun sem beind­ist gegn bæna­húsi gyð­inga. Af þessum 137 kærum leiddi engin til ákæru, ekki einu sinni þar sem lög­reglan taldi sig geta rakið 13 kærur til sama brota­manns.

[quote font="0" align="right"]Hann segir að umburð­ar­lyndi hafa auk­ist hjá þjóð­inni en að öfga­menn séu jafn­framt meira áber­andi en áður.[/quote]

Þegar frétta­menn SVT setja upp trú­ar­tákn gyð­inga og ganga um Malmö í þætt­inum taka lang­flestir þeim vel, líka í þeim hverfum þar sem inn­flytj­endur frá Mið­aust­ur­löndum eru fjöl­menn­astir. Einstaka maður horfir und­ar­lega á þau en það er ekki fyrr en um kvöldið sem þeim finnst þeim ógnað. Þá kemur hópur ungra manna að þeim og vill ræða við þau um Ísrael. Á leið­inni burt er eggi kastað að þeim úr húsa­glugga. Nokkrum dögum seinna koma þau aftur sem frétta­menn og ræða við nokkra af ungu mönn­unum í þessum hópi. Þeir segja að eina ástæðan fyrir því að þeir hati gyð­inga sé hvernig Ísrael komi fram við Palest­ínu.

Ætli það sé ekki ágætt að hnykkja á því hér að það er jafn fárán­legt að láta alla gyð­inga svara fyrir aðgerðir Ísra­els­hers eins og að láta alla múslima svara fyrir gjörðir nokk­urra ein­stak­linga úr þeirra röðum.

Múslimahatur er sýnilegra en áður


Hat­urs­brotum gegn múslimum fjölgar í Svíþjóð og reyndar tóku þeir kipp árið 2014 þegar á þriðja tug árása á moskur og bæna­hús áttu sér stað. Þrjár árásir hafa svo verið kærðar það sem af er ári. Árið 2013 voru 327 kærur vegna hat­urs­brota sem beindust gegn múslimum, 69 pró­sent fleiri en árið 2009. Lög­reglan finnur ger­and­ann í þremur pró­sentum til­vika og sam­kvæmt rann­sókn Uppdrag Granskning hafa aðeins tveir dómar fallið und­an­farin tíu ár vegna árásar á sam­komu­staði múslima. Í þætt­inum er rætt við félags­fræð­ing­inn Klas Borell sem er einn helsti sér­fræð­ingur Svía á þessu sviði. Hann segir að umburð­ar­lyndi hafa auk­ist hjá þjóð­inni en að öfga­menn séu jafn­framt meira áber­andi en áður. Það kemur ber­lega í ljós þegar rætt er við nokkra þeirra.

[quote font="0" align="right"]Ungar konur verða fyrir sér­stak­lega miklu aðkasti á götum úti og lenda oft í grófu ein­elti ef þær ákveða að ganga með slæðu.[/quote]

Frétta­menn­irnir hringdu í nokkra sem eru virkir í hópum á Facebook sem berj­ast gegn moskum og múslimum í Svíþjóð. Ónafn­greind kona seg­ist vera hrædd um líf sitt og tengir það við múslima og reyndar alla inn­flytj­endur. Hún hefur verið virk í starfi kirkj­unnar en þegar hún er spurð hvers vegna múslimar megi ekki iðka sína trú segir hún að þeir séu öðru­vísi. Hún útskýrir það ekk­ert frekar en bætir við að hún sé á eft­ir­launum sem séu allt of lág. Hún hafi ekki efni á því að búa í eigin landi og tengir það inn­flytj­endum. Karl­maður sem berst gegn nýrri mosku í Troll­hättan segir í við­tali að ef hún verði byggð muni þeir sprengja hana í loft upp. Hann segir að fólk hafi vissu­lega rétt á að iðka sína trú „en ekki hel­vítis múslima­hel­vítin.“ Hann bætir við að þetta sé eig­in­lega ekki trú, heldur bara eitt­hvað pakk.

Árásir gegn múslimum eru margs konar. Hróp og köll úti á götu, hót­anir, bar­smíðar og íkveikjur. Ungar konur verða fyrir sér­stak­lega miklu aðkasti á götum úti og lenda oft í grófu ein­elti ef þær ákveða að ganga með slæðu. Eins og með gyð­ing­ana í Malmö má einnig finna teng­ingar við deilur í Mið­aust­ur­löndum þegar kemur að múslima­hatri í Svíþjóð. Í Södertälje fyrir sunnan Stokk­hólm er til að mynda stór hópur krist­inna inn­flytj­enda frá Sýrlandi og Írak. Flest brot gegn múslimum á svæð­inu eru rakin til þessa hóps og í við­tali vísa nokkrir ger­endur til árása gegn kristnu fólki í heima­land­inu.

[caption id="attachment_18795" align="aligncenter" width="646"] Þögul mót­mæli á fjölda­fundi Sænskra demókrata í Södertälje í sept­em­ber.[/caption]

Þrátt fyrir til­raunir til að fá stjórn­mála­menn til að beita sér í mál­inu hefur fátt gerst. Árið 2010 var mynd­aður hópur með full­trúum ólíkra trú­ar­hópa til að berj­ast gegn múslima­hatri í Södertälje. Það tók þrjú ár að ná sátt um yfir­lýs­ingu en í henni er ekki minnst á múslima heldur er aðeins talað um nauð­syn þess að minnka átök milli ólíkra hópa. Vanda­málið blasir við því þegar á að taka á málum sem tengj­ast ákveðnum hópi rísa margir upp á aft­ur­lapp­irnar og telja að þar sé sjón­ar­hornið of þröngt. Þar af leið­andi hverfa brot gegn minni­hluta­hópum í rétt­inda­bar­áttu heild­ar­innar.

Hatur leiðir af sér hatur


Eftir þætt­ina tvo hafa áhuga­verðar umræður átt sér stað á heima­síðu Uppdrag Granskning og á sam­fé­lags­miðlum. Skoðanir eru skiptar og gagn­rýnin kemur úr mörgum áttum. Sumir túlka stöð­una þannig að inn­flytj­endur taki sjálfir með sér vanda­málin til Sví­þjóðar, en öðrum finnst þætt­irnir draga upp nei­kvæða mynd af bæði múslimum í Malmö og kristnum Sýr­lend­ingum í Södertälje. Í Afton­bla­det bendir leið­ara­höf­undur á að í þátt­unum sé ekki nefnt að gyð­inga- og múslima­hatur eigi sér langar rætur í Svíþjóð og hafi verið vanda­mál löngu áður en inn­flytj­endum fjölg­aði. Þetta er ekki alveg sann­gjarnt því frétta­menn­irnir vís­uðu vissu­lega í ummæli á Facebooksíðum og tóku við­töl við fólk sem svo sann­ar­lega eru ekki inn­flytj­endur. Framkoma Svía gegn minni­hluta­hópum er reyndar skelfi­legur hluti af sögu þjóð­ar­innar sem margir vilja gleyma. Í síð­ustu viku kom þetta ber­lega í ljós þegar frétta­maður SVT fékk yfir sig hol­skeflu af gagn­rýni þegar hann spurði Viktoríu krón­prinsessu út í móð­urafa hennar sem var með­limur í nas­ista­flokknum.

Önnur spurn­ing sem hefur verið áber­andi síð­ustu daga og vikur í Svíþjóð er hvort gagn­rýna megi Islam án þess að það sé túlkað sem hatur gegn múslimum. Hvar eru mörk gagn­rýni og hat­urs og hvernig á að ræða um kven­rétt­indi og rétt­indi hinsegin fólks án þess að alhæft sé um bæði trú­ar­hópa og ein­stak­linga? Ætli svarið sé ekki ein­fald­lega – á nákvæm­lega sama hátt og gert er almennt. Við verðum að þora að gagn­rýna á mál­efna­legan hátt á sama tíma og við erum á varð­bergi gagn­vart þeim sem fela hat­rið á bak við grímu tján­ing­ar­frelsis. Lær­dóm­ur­inn sem draga má af frétta­skýr­ingum sænska sjón­varps­ins er í raun furðu ein­faldur, að hatur leiðir af sér meira hatur. Svo ein­falt er það – en um leið svo afskap­lega flókið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár