Ný heimildamynd um Vísindakirkjuna hlaðin hneykslismálum

Heim­ilda­myndin „Going Clear: Scientology and the Prison of Belief“ sem fjallar um Vís­inda­kirkj­una var frum­sýnd á Sundance kvik­mynda­há­tíð­inni á sunnu­dag­inn. Myndin verður tekin til sýn­inga á HBO sjón­varps­stöð­inni í mars, en í henni er rætt við marga fyrr­ver­andi hátt­setta með­limi Vís­inda­kirkj­unnar.

Margir hafa beðið spenntir eftir að berja mynd­ina augum, og ekki minnk­aði eft­ir­vænt­ingin þegar frétt­ist af því að HBO hefði ráðið um 160 lög­fræð­inga til að rýna í mynd­ina fyrir frum­sýn­ingu hennar, til að forð­ast lög­sóknir. Svo ugg­andi er Vís­inda­kirkjan yfir við­brögðum almenn­ings við mynd­inni að hún keypti heil­síðu­aug­lýs­ingu í dag­blað­inu New York Times á dög­unum, þar sem trú­verð­ug­leiki mynd­ar­innar er dreg­inn í efa og leik­stjór­inn gagn­rýndur fyrir að gefa kirkj­unni ekki nægi­legt tæki­færi til að svara fyrir sig.

Heim­ilda­myndin er byggð á sam­nefndri bók eftir Pulitzer-verð­launa­hafann Lawrence Wright, en bókin olli miklu fjaðrafoki þegar hún kom út árið 2013. Leik­stjóri mynd­ar­innar er Alex Gibney sem er gríð­ar­lega afkasta­mik­ill kvik­mynda­gerð­ar­maður á sviði heim­ilda­mynda. Gibney skrif­aði og leik­stýrði meðal ann­ars heim­ilda­mynd­inni um Enron, og hlaut ósk­arsverð­launin árið 2009 sem fram­leið­andi að heim­ilda­mynd­inni „Taxi to the Dark Side“ sem hann leik­stýrði einnig en myndin fjallar um pynt­ingar Banda­ríkja­hers á föngum í Afganistan, Írak og Gúant­anamó fanga­búð­unum.

Hvert hneykslismálið á fætur öðru


Gestir á frum­sýn­ingu mynd­ar­innar á Sundance kvik­mynda­há­tíð­inni á sunnu­dag­inn, risu upp úr sætum og hylltu leik­stjóra mynd­ar­innar með dynj­andi lófa­klappi eftir að henni lauk. Nú ber­ast fréttir af þeim hneyksl­is­málum sem myndin ku vera nokkuð rík af. Frétta­mið­ill­inn Business Insider greinir frá nokkrum þeirra.

Samkvæmt blaða­manni The Daily Beast, sem var við­staddur frum­sýn­ingu heim­ilda­mynd­ar­innar á sunnu­dag­inn, kemur fram í mynd­inni hvernig Vís­inda­kirkjan neyddi kvik­mynda­stjörn­una Tom Cruise til að skilja við þáver­andi eig­in­kon­una sína, kvik­mynda­stjörn­una Nicole Kidman. Í mynd­inni segir Marty Rathbun, sem var um tíma næst hátt­sett­asti maður Vís­inda­kirkj­unnar, hvernig honum var falið af kirkj­unni að stuðla að skiln­aði kvik­mynda­stjarn­anna.

Vís­inda­kirkj­unni fannst stafa ógn af Kidman og hafði áhyggjur af því að hún hefði óæski­leg áhrif á Cruise sem var og hefur verið einn áhrifa­mesti tals­maður kirkj­unnar út á við. Þá hafði kirkjan áhyggjur af áhrifum Kidman á Cruise, þar sem faðir hennar starfar sem sál­fræð­ingur en Vís­inda­kirkjan er mik­ill and­stæð­ingur sál­fræði og geð­lækn­inga. Í mynd­inni er greint frá þeim fjöl­mörgu aðferðum sem kirkjan beitti til að skilja að Cruise og Kidman, sem leiddi til þess að parið skildi árið 2001. Þá er greint frá því í mynd­inni hvernig ætt­leidd börn hjón­anna voru heila­þvegin af Vís­inda­kirkj­unni til að snúa þeim gegn Kidman og tryggja Cruise for­ræðið yfir þeim.

John Travolta kúgaður til fylgni


Vís­inda­kirkjan hefur frá stofnun lagt mikið upp úr því að fá stór­stjörnur til liðs við sig. Í heim­ilda­mynd­inni kemur fram til hvaða aðferða kirkjan grípur til að halda stjörn­unum innan sinna vébanda.

[caption id="attachment_18211" align="aligncenter" width="638"] Vís­inda­kirkjan hefur víst vit­neskju um svæsn­ustu leynd­ar­mál John Travolta og hefur hótað honum að opin­bera þau gangi hann úr söfn­uð­inum.[/caption]

Samkvæmt umfjöllun frétta­mið­ils­ins The Vulture er tölu­vert fjallað um tengsl Vís­inda­kirkj­unnar við kvik­mynda­stjörn­una John Travolta, sem er annað krúnu­djásn kirkj­unnar ásamt áður­nefndum Tom Cruise. Í heim­ilda­mynd­inni er sagt frá því hvernig Vís­inda­kirkjan kúgar John Travolta til fylgni við sig með því að hóta honum að gera ella opin­ber fjöl­mörg leynd­ar­mál sem Travolta hefur trúað kirkj­unni fyrir.

Vís­inda­kirkjan komst yfir leynd­ar­mál Travolta með svo­kall­aðri „and­legri end­ur­skoðun“ þar sem sókn­ar­börn segja frá öllum sínum dýpstu leynd­ar­málum sem kirkjan skrá­setur og notar svo til að veita við­kom­andi „hvatn­ingu.“

Samkvæmt fleiri heim­ildum er sömu­leiðis fjallað um það marg­vís­lega lík­am­lega og and­lega ofbeldi sem Vís­inda­kirkjan beitir með­limi sína í mynd­inni, og hvernig kirkjan hefur sankað að sér hátt í millj­arð Banda­ríkja­dala á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár