Auglýsingaherferðin sem breytti Svíþjóð

Í des­em­ber árið 2001 birt­ist sjón­varps­aug­lýs­ing frá versl­un­ar­keðj­unni ICA sem hefur heldur betur reynst sögu­leg. ICA-keðjan er ráð­andi á mat­vöru­mark­að­inum í Svíþjóð með um helm­ings mark­aðs­hlut­deild og hátt í 1400 búðir í land­inu öllu. Reyndar hefur versl­unin alltaf verið fram­ar­lega á aug­lýs­inga­mark­að­inum. Eftir vegg­spjalda­gerð fyrir tíma sjón­varps­ins tóku við svo kall­aðar hús­mæðra­myndir á sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Þar var um að ræða stuttar aug­lýs­inga­myndir sem voru sýndar í kvik­mynda­húsum og oft voru vöru­kynn­ingar sam­hliða sýn­ing­unum. Fyrsta myndin, sem var einmitt fram­leidd fyrir ICA, var Fru Plotter och fru Planér þar sem segir frá tveimur mis­skipu­lögðum hús­mæðrum. Hún var sýnd ríf­lega 500 sinnum og talið er að yfir 200.000 konur hafi séð hana.

Það var ekki fyrr en 1987 sem sýna mátti aug­lýs­ingar í sjón­varpi í Svíþjóð og eftir mis­góða spretti hitti ICA í mark í des­em­ber 2001. Aug­lýs­ingin var í nokk­urs konar sápu­óp­erustíl og fjall­aði um yfir­mann­inn Stig og þrjá aðra starfs­menn í ótil­greindri ICA-verslun. Til að byrja með var ný aug­lýs­ing frum­sýnd viku­lega en síðar á tveggja vikna fresti. Sögu­þráð­ur­inn er sjaldn­ast mjög flók­inn og byggir á sam­skiptum starfs­mann­anna sem stíga sjaldn­ast í vitið. Í fyrstu aug­lýs­ing­unni byggðu und­ir­menn­irnir pýramída úr mat­vörum sem yfir­mað­ur­inn Stig var ekki ánægður með.

Langlífasta auglýsingaherferð sögunnar


Í gegnum tíð­ina hafa ýmsir leik­arar komið og farið og tekið að sér hlut­verk í þess­ari merki­legu aug­lýs­inga­sápu. Tveir leik­arar hafa reyndar verið með frá upp­hafi en í síð­ustu viku til­kynnti ICA-Stig eins og hann er kall­aður að nú væri komið að leikslokum. Frá því að hann klædd­ist hvíta jakk­anum í fyrsta sinn fyrir rúmum þrettán árum hefur Hans Mosesson leikið í 512 aug­lýs­ingum og er fyrir löngu orð­inn heim­il­is­vinur í Svíþjóð. Hann segir sjálfur að þetta komi á óvart því upp­runa­lega hafi hann sam­þykkt að leika í fimm aug­lýs­ingum. Það sé nefni­lega hættu­legt fyrir leik­ara að taka að sér svona hlut­verk því auð­velt sé að fest­ast í því. Það stóð ekki á kveðjum eftir til­kynn­ing­una frá Stig. „ICA ætti að fram­leiða bíó­mynd með Stig áður en hann hættir“; „nei, nei, nei og aftur nei“ og svo auð­vitað „hann má ekki hætta, hann er ICA“.

Í maí árið 2007 til­kynnti Heims­meta­bók Guinnes að ICA-sápan væri þá þegar orðin lang­lífasta leikna aug­lýs­inga­her­ferð sög­unnar og síðan þá hafa rúm­lega 300 aug­lýs­ingar bæst við. Fjöldinn allur af frægu fólki hefur komið fram í aug­lýs­ing­unum, meðal ann­ars for­maður femínista­flokks­ins Gudrun Schyman, sjón­varps­kokk­ur­inn Jamie Oliver og sjálfur lands­liðs­þjálf­ar­inn Lars Lagerbäck.

Lærlingurinn sem breytti Svíþjóð


En lík­lega vöktu fáar per­sónur jafn mikla athygli og Jerry sem leik­inn var af Mats Melin. Mats, sem hefur einnig leikið í kvik­myndum og leik­sýn­ingum, er með downs heil­kenni. Í aug­lýs­ing­unum var hann yfir­leitt rödd skyn­sem­innar og sá snjall­asti af starfs­fólk­inu. Þegar Jerry hóf störf sem lær­lingur árið 2009 tók sænska þjóðin honum opnum örmum og í dag hafa ríf­lega 430 þús­und líkað við aðdá­enda síðu hans á Facebook. Ferða­lagið hefur þó ekki verið ein­falt. Þegar hann fædd­ist var for­eldr­unum rétt skjal sem þau áttu að skrifa undir og senda hann þar með á stofnun. Árið 1969 datt engum í hug að þau ætl­uðu sér að ala upp fatlað barn. Í skól­anum var honum strítt og for­eldr­unum var til­kynnt reglu­lega að Mats myndi aldrei spjara sig sem sjálf­stæður ein­stak­lingur.

Annað átti heldur betur eftir að koma á dag­inn. Reyndar gekk ekki þrauta­laust fyrir sig að taka upp fyrstu aug­lýs­ing­una þar sem Jerry kom fyrir því hann mætti ekki fyrsta töku­dag­inn. Mats átti nefni­lega tíma í þvotta­hús­inu og þegar hann hefur verið pant­aður þarf allt annað að víkja. Þetta hefur reyndar ekk­ert með downs heil­kennið að gera heldur er þetta hið alþekkta sænska heil­kenni, sem getur farið stór­kost­lega í taug­arnar á Íslend­ingum í Svíþjóð. ICA-aug­lýs­ing­arnar með Jerry þykja hafa breytt afstöðu margra til ein­stak­linga með downs heil­kenni og hafa fengið marg­vís­legar við­ur­kenn­ingar í gegnum árin. Árið 2012 fékk Mats til dæmis Titan-eggið sem eru aug­lýs­inga­verð­laun sem veitt eru þeim sem hafa á ein­hvern hátt hvatt aðra til dáða. Í dag er hann alltaf með nokkrar eig­in­hand­ar­á­rit­anir í buxna­vas­anum, svona ef ske kynni að aðdá­andi bæði um eina.

Þann fyrsta febr­úar verður síð­asta aug­lýs­ingin með ICA-Stig sýnd í Svíþjóð. Fram­leið­end­urnir hafa til­kynnt að nýr Stig verði kynntur til sög­unnar en óvíst er hvort hann hljóti sama sess hjá þjóð­inni og sá sem nú kveður. Sænska þjóðin mun þó lík­lega fylgj­ast með fjórum starfs­mönnum ICA um ókomin ár því engin áform eru uppi um að hætta fram­leiðsl­unni. Í skipu­lögðu landi eins og Svíþjóð þar sem hálf þjóðin borðar Tacos á föstu­dögum þykja þetta vænt­an­lega góð tíð­indi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár