Rómantíkin í kringum...Swansea City FC?

Ég verð að við­ur­kenna að ég er afar veikur fyrir róm­an­tík­inni í kringum íþróttir og þekki af fyrstu hendi að til­einka óeðli­legum tíma og vinnu í að reyna að koma íþrótta­fé­lagi í lag án þess að fá mikið til baka nema vesen. Vesen og ánægj­una þegar stritið leiðir af sér litla sigra á borð við það að skila rekstr­inum réttu megin við eða þegar fárán­lega óvin­sæli Serbinn sem þið réðuð um mitt sumar heldur lið­inu uppi á loka­metrum deild­ar­keppn­innar.

Í nútíma knatt­spyrnu vinna liðin sem eiga mestu pen­ing­anna. Það er því miður stað­reynd. Ef þú getur keypt bestu leik­menn­ina og bestu þjálf­ar­anna þá vinnur þú. Það breytir því ekki að enn er hægt að finna róm­an­tík í knatt­spyrn­unni. Þar er að finna ótrú­legar sögur af fólki vopnað vilja og nán­ast for­heimsku­legum til­finn­ingum gagn­vart íþróttaliði sem upp­sker árangur á ævin­týra­legan hátt. Ein slík saga, saga Swansea City, var nýverið fest á filmu.

Hótun um líkamsmeiðingar og grasrót


Íslend­ingar tengja Swansea City eðli­lega við Gylfa Þór Sig­urðs­son, íslenska lands­liðs­mann­inn sem í dag er besti leik­maður liðs­ins í ensku úrvals­deild­inni. Fæstir átta sig hins vegar á þeirri umbreyt­ingu sem félagið hefur gengið í gegnum frá síð­ustu ald­ar­mótum. Sú umbreyt­ing, og hvernig henni var hrundið af stað, er skjal­fest í heim­ild­ar­mynd­inni „Jack to a King“, sem var frum­sýnd í sept­em­ber í fyrra.

Árið 2001 var Swansea í neðstu deild í Englandi. Félagið var í gríð­ar­legum fjár­hags­vanda og var á end­anum selt fyrir eitt pund til enska athafna­manns­ins Tony Petty. Fyrir utan að vera Eng­lend­ingur, sem fór ekki vel í walesku stuðn­ings­menn­ina, gerði Petty þá brjál­aða með því að leysa flesta bestu leik­menn liðs­ins undan samn­ingi til að draga úr kostn­aði.

[caption id="attachment_17337" align="alignnone" width="1023"] James Thomas var efni­legur knatt­spyrnu­maður sem lék um tíma með Blackburn í úrvals­deild­inni. Hann snéri svo aftur til Swansea, þegar liðið var í neðstu deild, og er í dag goð­sögn hjá félag­inu. Thomas starfar í dag sem sjúkra­flutn­inga­maður.[/caption]

Í kringum andúð­ina á Petty mynd­að­ist gras­rót­ar­hreyf­ing stuðn­ings­manna sem fór að safna pen­ingum til að reyna að hjálpa félag­inu sínu. Á meðal þeirra var hópur sem ekki er hægt að lýsa öðru­vísi en bullum. Menn, sem eru til við­tals í heim­ild­ar­mynd­inni (þeir eru með lambús­hettur í við­tal­inu), við­ur­kenna þar fús­lega að hafa ítrekað hótað Petty lík­ams­meið­ingum og að hafa framið skemmd­ar­verk á velli liðs­ins til að koma í veg fyrir að Petty gæti grætt pen­ing á lið­inu.

Eftir slæmt tap gegn Macclesfield í enska bik­arnum árið 2002 þorði Petty ekki aftur til Swansea og ákvað að selja félagið fyrir 20 þús­und pund til nokk­urra áhan­genda, sem voru studdir að gras­rót­ar­sam­tök­unum „Swansea supp­orters Trust“. Einn þess­arra manna var gerður að stjórn­ar­for­manni. Hann heitir Huw Jenkins og í mynd­inni segir að hann hafi verið settur í starfið vegna þess að hann var leið­in­leg­astur þeirra sem að kaup­unum komu. Hann er enn þann dag í dag stjórn­ar­for­maður.

Heimamaður setur þrennu


Á þessum tíma gat Swansea-liðið ekk­ert og þegar liðið var á tíma­bilið 2002/2003 var það í bull­andi hættu á að falla úr ensku deild­ar­keppn­inni og niður í utandeild­ina. Þá var Brian Flynn ráð­inn sem stjóri og hann fékk ýmsa leik­menn til liðs­ins sem breyttu því algjör­lega. Leikmenn á borð við Leon Britton (sem enn spilar með Swansea) og Roberto Martinez.

Þótt lið­inu gengi betur var staðan samt þannig að það þurfti að vinna síð­asta leik tíma­bils­ins til að halda sér uppi í neðstu deild enskrar knatt­spyrnu. Líkt og í öllum epískum íþrótta­sögum er það heima­maður, sem snéri aftur til baka frá úrvalds­deild­ar­liði í liðið sem hann ólst upp hjá, sem bjargar deg­inum. Sá heitir James Thomas og starfar í dag sem sjúkra­flutn­inga­maður, en það er önnur saga.

[caption id="attachment_17336" align="alignnone" width="615"] Roberto Martinez breytti Swansea sem knatt­spyrnu­fé­lagi. Hann var fyr­ir­liði liðs­ins sem komst upp úr neðstu deild enskrar knatt­spyrnu og þjálf­ari þess þegar það komst upp í næst efstu deild. Undir hans stjórn fór liðið úr því að gefa 120 send­ingar í leik í um 650 send­ingar í leik.[/caption]

Frá þessum tíma­punkti hefst ótrú­legt upp­bygg­ing­ar­skeið. Swansea liðið þrykk­ist upp um deildir, byggði nýjan völl, Roberto Martinez tók við sem þjálf­ari og fjölg­aði send­ingum liðs­ins í hverjum leik úr 120 í 650 (sem var afar óvenju­legt í neðri deild­unum í Englandi) og tíu árum eftir að James Thomas tryggði deild­ar­til­ver­una var Brendan Rodgers (sem hafði tekið við kefl­inu af Martinez) kom­inn með liðið í úrslita­leik á Wembley um sæti í úrvals­deild.

Hvernig sá leikur fór er auð­vitað ekk­ert leynd­ar­mál. Hann fór 4-2 fyrir Swansea, sem eru nákvæm­lega sömu úrslit og urðu í leiknum mik­il­væga tíu árum áður. Þá skor­aði James Thomas þrennu, þar af tvö úr vítum. Á Wembley skor­aði Scott Sinclair þrennu, þar af tvö úr vítum. Myndinni lýkur á þessum miklu tíma­mótum. Á sigri í umspils­leik á Wembley, sem er lík­lega dýr­asti knatt­spyrnu­leikur sem spil­aður er. Liðið sem vinnur fer upp í úrvaldseild­ina og fær yfir 100 millj­ónir punda. Liðið sem tapar situr eftir í Championship deild­inni og fær ekk­ert.

Litla liði sem gat, í heimi peninganna


Síðan þá hefur ævin­týrið í raun haldið áfram. Swansea liðið hefur unnið deild­ar­bik­ar­keppn­ina, keppt í Evr­ópu­keppni, seldi nýverið leik­mann, Wilfred Bony, fyrir 28 millj­ónir punda og tveir mik­il­væg­ustu þjálf­ar­arnir í þess­ari síð­ari tíma sögu Swansea, Roberto Martinez og Brendan Rodgers, þjálfa nú tvö af sögu­fræg­ustu, og sig­ur­sæl­ustu, lið enskrar knatt­spyrnu, Everton og Liverpool.

[caption id="attachment_17334" align="alignnone" width="618"] Garry Monk er þjálf­ari Swansea í dag. Hann var áður fyr­ir­liði liðs­ins á eftir Martinez og bjarg­aði eft­ir­minni­lega á línu á ögur­stundu í umspils­leiknum fræga sem tryggði Swansea sæti í úrvalds­deild.[/caption]

Ef Swansea yrði selt í dag færi félagið aldrei á undir 100 millj­ónir punda. Það er aðeins meira en þau 20 þús­und pund sem hóp­ur­inn sem stýrir félag­inu í dag borg­aði fyrir það árið2002. Stuðn­ings­manna­sam­tökin sem stóðu að baki þeim kaupum eiga enn 20 pró­sent hlut í félag­inu.

Þótt það megi vissu­lega setja stórt spurn­inga­merki við þann hetju­stimpil sem bull­urnar með lambús­hett­urnar fá í mynd­inni, svona í ljósi þess að þær voru ítrekað að hóta að meiða og jafn­vel drepa fyrrum eig­and­ann, þá er „Jack to a King“ ákaf­lega hressandi saga um litla félagið sem gat, sér­stak­lega á tímum þar sem olíu­pen­ingar, gos-Rússar og þurrir Amer­ík­anar hafa tekið yfir þessa fal­legu íþrótt í krafti pen­inga sinna. Fyrir þá sem finnst nútímaknatt­spyrna vera að missa sjar­mann vegna þessa, eða þá sem hafa kannski misst trúnna eftir að hafa harkað of lengi í eigin knatt­spyrnu­legri sjálf­boð­ar­vinnu, er gott að horfa á vel gerðar myndir sem fanga sögu litlu lest­ar­innar, eða í þessu til­felli knatt­spyrnu­liðs­ins, sem gat. Fyrir hina sem hafa engan áhuga á knatt­spyrnu, og skilja ekki hvað það er sem dregur fólk að íþrótt­inni, er áhorf á mynd­ina hins vegar örugg­lega eins og að horfa á máln­ingu þorna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár