Og hvað má barnið heita? Mannanafnanefnd linast í afstöðu sinni

Á síð­ustu tveimur árum hefur Manna­nafna­nefnd sam­þykkt fleiri eigin- og mill­i­nöfn en hún gerði að jafn­aði á tíma­bil­inu 2001 til 2012. Í fyrra var 16 nöfnum hafnað, eða tæp­lega 20% allra eigin- og milli­nafna sem bár­ust nefnd­inni, og árið 2013 var aðeins 13 nöfnum hafnað. Það eru mun færri nöfn en nefndin hafn­aði á árunum 2001 til 2012, þegar tæp­lega 30 nöfnum var hafnað að með­al­tali ár hvert, eða þriðj­ungi allra beiðna sem bár­ust nefnd­inni. Dæmi eru um að nöfn sem áður feng­ust ekki sam­þykkt hafi síðar hlotið náð fyrir augum nefnd­ar­innar, eftir að óskað var eftir end­ur­skoðun á fyrri ákvörðun þriggja manna nefnd­ar­innar.

Frá árs­byrjun 2001 til árs­loka 2014 bár­ust nefnd­inni sam­tals um 1.200 mál sem vörð­uðu ný eigin- eða mill­i­nöfn, það eru nöfn sem ekki eru skráð á svo­kalla manna­nafna­skrá Þjóð­skrár. Það gera að jafn­aði 90 nöfn á ári sem bár­ust nefnd­inni. Að með­al­tali hefur nefndin sam­þykkt sjö af hverjum tíu nöfnum sem ber­ast.

Færri nöfnum hafnað

|Create infographics

Fjöldi nafna sem manna­nafna­nefnd hafn­aði 2001 til 2014 |Create infographics

Mynd­irnar hér að ofan sýna hversu mörgum nöfnun manna­nafna­nefnd hafn­aði á ári hverju frá 2001 til 2014. Efri myndin sýnir hafn­anir sem hlut­fall af öllum beiðnum en sú neðri sýnir fjölda hafn­ana hvert ár. Bæði gröfin sýna glögg­lega hvernig nefndin hafn­aði um þriðj­ungi allra beiðna frá 2005 til 2010, en sam­þykkti mun fleiri frá 2011.

Ef tíma­bilið frá 2005-2010 er borið saman við tíma­bilið 2011-2014 sést mun­ur­inn vel. Á fyrra tíma­bil­inu er 36,5% umsókna hafnað af nefnd­inni. Á því seinna er tæp­lega 21% umsókna hafnað. Ef litið er til fjölda hafn­anna, þá var 35 umsóknum hafnað að með­al­tali á árunum 2005-2010 en ein­ungis 18 á síð­ustu 4 árum.

Hvorki breyt­ingar á lögum um manna­nöfn né á reglum nefnd­ar­innar skýra lin­ari afstöðu nefnd­ar­innar. Lögin hafa ein­ungis tekið lít­ils­háttar breyt­ingum frá þvi þau tóku gildi þann 1. jan­úar 1997, flestar breyt­ing­arnar varða ein­göngu breyt­ingar á mál­efna­sviðum ráðu­neyta og hafa ekki tekið til inn­taks lag­anna.

Christa og Cesar unnu

Dæmi eru um að nöfnum sem eitt sinn var hafnað af nefnd­inni hafi feng­ist sam­þykkt síðar. Sem dæmi taldi nefndin árið 2006 að kven­manns­nafnið Christa og karl­manns­nafnið Cesar upp­fylltu ekki skil­yrði um íslensk manna­nöfn. Í til­viki Cesars var bent á að bók­staf­ur­inn „C“ sé ekki í íslensku staf­rófi og í til­viki Christu sagði nefndin að sam­stafan „ch“ telj­ist ekki í sam­ræmi við almennar rit­reglur íslensks máls. Þrátt fyrir að tvær íslenskar konur hafi á þeim tíma borið nafnið, þá sé það ekki nóg til að upp­fylla skil­yrði nefnd­ar­innar sem eru meðal ann­ars:

a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslend­ingum (með Íslend­ingum er átt við þá íslensku rík­is­borg­ara sem eiga eða hafa átt lög­heim­ili hér á landi);
b. Það er nú borið af 10–14 Íslend­ingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslend­ingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslend­ingum og kemur þegar fyrir í mann­tal­inu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslend­ingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur mann­tölum frá 1703–1910.

En viti menn, á síð­asta ári tók manna­nafna­nefnd fyrir beiðnir um end­ur­skoðun á nið­ur­stöðu sinni um að hafna nöfn­unum tveimur, og feng­ust þau bæði sam­þykkt. Cesar má heita Cesar og Christa má heita Christa. Fleiri svipuð dæmi er að finna í úrskurðum manna­nafna­nefndar frá 2001, til dæmis karl­manns­nafnið Hávarr sem var þrí­vegis hafnað, fyrst árið 2005, þar til það var loks sam­þykkt árið 2010.

Ætlað að koma í veg fyrir „ama“

Tilvist manna­nafna­nefndar er umdeild og lögðu þing­menn Bjartar fram­tíðar, auk þriggja þing­manna Pírata, tveggja fram­sókn­ar­manna og þriggja sjálf­stæð­is­manna, fram

frum­varp á síð­asta þingi þar sem lagt er til að manna­nafna­nefnd verði lögð niður

og öll ákvæði um hana verði felld brott. Nokkrar vikur eru síðan frum­varpið var lagt fram og er það nú í nefnd.

Þeir sem talað hafa fyrir aflagn­ingu manna­nafna­nefndar hafa einkum bent á það ójafn­rétti sem felst í ákvarð­ana­valdi hennar, þ.e. að ein­stak­lingur sé bund­inn rík­is­valdi um hvað hann megi heita. Óttarr Proppé, þing­maður og flutn­ings­maður frum­varps­ins um aflagn­ingu nefnd­ar­innar, sagði í við­tali við Mbl.is í nóv­em­ber að málið snérist um mann­rétt­indi og jafn­ræði. „Að við treystum ein­stak­ling­unum sjálfum fyrir því að ákveða hvað þeir heita og göngum út frá því að ein­stak­lingar taki þá ákvörðun, fyrir sína hönd og barn­anna sinna, ekki af léttúð. Og það sé ekki rétt að stjórn­völd stjórni því hvernig fólk kennir sig,“ sagði hann. Benda má á að Óttarr heitir einmitt nafni líku mörgum þeim sem manna­nafna­nefnd hefur ítrekað hafnað, það eru karl­mannsnöfn sem enda á tveimur R.

Fylgj­endur nefnd­ar­innar telja hana gegna hlut­verki sem varðar verndun móð­ur­máls­ins, auk þess sem það er bein­línis kveðið á um í lög­unum um manna­nöfn að eig­in­nafn megi ekki geta orðið nafn­bera til ama. Túlkun á því hvaða manna­nafn getur verið ein­stak­lingi til ama er lögð í hendur manna­nafna­nefndar.

„Erlendum“ nöfnum hafnað

Þegar þau eigin- og mill­i­nöfn sem nefndin hefur tekið fyrir frá árinu 2001 eru skoðuð, sam­tals um 1.200 tals­ins, sjást fá dæmi þar sem hægt er að ímynda sér að til­tekið nafn geti valdið ama. Nefndin hafn­aði nafn­inu Eldflaug árið 2013, en hafa ber í huga að sú bón var lögð fram af lög­ráða ein­stak­lingi, og eru fjölda­mörg dæmi þess að full­orðnir vilji fá að breyta eigin nafni.

Stór hluti þeirra nafna sem nefndin hafnar eru raunar góð og gild nöfn víða erlendis. Í fyrra var nöfn­unum Michael, Clinton, Diamond, Lady, Karma, Hector, Duane og Fletcher öllum hafnað þar sem þau þóttu ekki nægi­lega íslensk. Þessi erlendu nöfn, átta tals­ins, eru helm­ingur allra nafna sem nefndin hafn­aði í fyrra. Hin nöfnin voru mill­i­nöfnin Dalberg og Vilberg, og eig­innöfnin Íshak, Míriel (Míríel var sam­þykkt), Sveinnóli, Kaia, Haugeland og Huxland.

Þessi afstaða manna­nafna­nefndar, að sam­þykkja ekki „erlend“ manna­nöfn hefur valdið nafn­berum vand­ræðum, eins og bæði inn­lendir og erlendir fjöl­miðlar greindu frá á liðnu ári. Duncan og Harriet Cardew, sem eru 10 og 11 ára, heita Drengur og Stúlka í Þjóðskrá vegna þess að manna­nafna­nefnd sam­þykkti ekki nöfnin þeirra árið 2010, og olli því að þau fengu ekki útgefið íslenskt vega­bréf.

Og hvað má barnið þá heita, eða sá sem vill af ein­hverri ástæðu breyta nafn­inu sínu? Í það minnsta ekki þetta:

Nöfnum sem var hafnað 2009 til 2014 |Create infographics

Nöfnum sem var hafnað 2003 til 2008 |Create infographics

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár