„Fór um mig hrollur þegar ég frétti að þeir væru í nágrenninu“

Gríð­ar­lega fjöl­mennt lið lög­reglu- og her­manna hefur nú umkringt prent­smiðju í smá­bænum Dammartin-en-Goele, þar sem Kouachi bræð­urnir, sem grun­aðir eru um fjöldamorðin á og við skrif­stofu skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo, haf­ast við og hafa tekið einn ein­stak­ling í gísl­ingu. Bærinn, þar sem umsátrið ríkir, er í um nítján kíló­metra fjar­lægð frá alþjóða­flug­vell­inum Charles De Gaulle, sem liggur 23 kíló­metra norð­austur af París.

Fréttir herma nú að far­síma­sam­band náist ekki lengur í bænum Dammartin-en-Goele. Fólki hefur verið sagt að halda kyrru fyrir þar sem það er en að slökkva ljós og halda sig frá gluggum.

Á blaða­manna­fundi í franska inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu í morgun við­ur­kenndi Francois Hollande Frakk­lands­for­seti að yfir­völd hefðu vitað að hætta væri á hryðju­verka­árásum. Dæmi væru um áform um hryðju­verk sem hefði verið komið í veg fyrir.

Einn þeirra sem lifði af árás­ina á Charlie Hebdo tal­aði við fjöl­miðla í París í morgun. Hann seg­ist hafa falið sig undir skrif­borði og jafn­framt seg­ist hann hafa heyrt hryðju­verka­menn­ina ræða saman eftir að hafa myrt tíu manns. Þeir hafi sagst telja að þeir hafi “náð öllum” og að talað um að þeir myrtu ekki konur.

Greint hefur verið frá því að lög­regla sé nú að ræða við hryðju­verka­menn­ina tvo um að sleppa gísl­inum sem þeir eru með. Talið er að gísl­inn í prent­smiðj­unni sé kona og því eru nú taldar vonir á því að hægt verði að semja um að henni verði sleppt. Yves Albarello, þing­maður UMP, hefur þó sagt í frönskum fjöl­miðlum að menn­irnir tveir hafi lýst því yfir að þeir vilji deyja sem písl­ar­vottar.

Nýjustu upp­lýs­ingar frá Charles de Gaulle flug­velli eru þær að allar flug­brautir séu opnar. Hins vegar hefur flug­tökum og lend­ingum verið hagað þannig að ekki sé flogið yfir umsát­urs­svæðið.

Hélt dætrum sínum heima til öryggis


Bræðr­anna hefur verið ákaft leitað eftir að hryðju­verkin í París. Sigrún Halla Árna­dóttir Tarafa, sem starfar sem flug­freyja hjá Air France, býr í smá­bænum Crépy-en-Valois. Talið er að Kouachi bræð­urnir hafi haldið til í skógi við bæinn, sem er í um þrjá­tíu kíló­metra fjar­lægð frá Dammartin-en-Goele.

[caption id="attachment_16410" align="align­right" width="240"] Sigrún Halla Árna­dóttir Tarafa.[/caption]

„Ég fór í vinn­una klukkan fimm í gær­morgun, og hafði þá ekki hug­mynd um að bræð­urnir væru í nágrenn­inu. Dóttir mín lét mig síðar vita að hún hefði séð lög­reglu­menn í her­klæðum á leið­inni í skól­ann í skóla­bílnum. Þá fór um mig hrollur,“ segir Sigrún Halla í sam­tali við Kjarnann.

„Þegar ég heyrði svo að þeir héldu sig í skóg­inum hér í kring, ákvað ég að halda dætrum mínum heima í dag til öryggis. Ég finn ekki fyrir hræðslu hjá þeim samt, en eldri dóttir mín var alls ekki sátt við að kom­ast ekki í skól­ann í morgun. Hún sagði að girð­ingin í kringum skól­ann sé það sterk og það sé ekk­ert að ótt­ast. Svo læsi kenn­ar­inn líka alltaf úti­dyra­hurð­inni!“

Samkvæmt nýj­ustu fréttum verður börnum í skólum í nágrenni Dammartin haldið inn­an­dyra í dag, og hefur for­eldrum þeirra verið gert við­vart. Sigrún Halla segir Frakka í áfalli eftir hryðju­verkin í París, og þau hafi haft víð­tæk áhrif og þá líka á börnin. „Þau fylgj­ast með þessu og tala um þetta í skól­unum. Í gær þögðu þau í eina mín­útu eins og alls staðar í Frakk­landi, en hér ríkir mikil sorg og fólk er bara ekki alveg að ná þessu. Í vinn­unni límdum við „Je suis CHARLIE“ á einn skáp­inn í flug­vél­inni þar sem far­þeg­arnir tóku vel eftir, og sumir þeirra lýstu yfir hrifn­ingu með upp­á­tækið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár