Sjö starfsmenn SpKef kvörtuðu undan Kjarnanum til Persónuverndar

Sjö fyrr­ver­andi starfs­menn Spari­sjóðs­ins í Keflavík sendu Per­sónu­vernd form­lega kvörtun vegna umfjöll­unar Kjarnans um spari­sjóð­inn þann 22. ágúst 2013. Á meðal starfs­mann­anna eru fyrr­ver­andi innri end­ur­skoð­andi og for­stöðu­maður áhættu­stýr­ingar og útlána­hættu Spari­sjóðs­ins í Keflavík.

Þrjú erind­anna bár­ust Per­sónu­vernd 23. ágúst 2013, eða dag­inn eftir umfjöllun Kjarnans, og þrjár kvart­anir til við­bótar bár­ust stofn­unni næstu dag­ana á eftir. Þá var síð­asta kvörtunin vegna máls­ins send Per­sónu­vernd 25. mars síð­ast­lið­inn.

Birting leyniskýrslu olli fjaðrafoki


Umfjöllun Kjarnans um Spari­sjóð­inn í Keflavík byggði á kol­svartri leyni­skýrslu end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins PwC um sjóð­inn, sem unnin var að beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Samhliða umfjöll­un­inni birti Kjarninn skýrslu PwC um spari­sjóð­inn í heild sinni, en hún er hátt í fimm hund­ruð blað­síður að lengd. Í skýrsl­unni var að finna fjár­hags­upp­lýs­ingar um helstu lán­tak­endur og við­skipta­vini sjóðs­ins sem og upp­lýs­ingar um útlána­stöðu starfs­manna hans.

Eftir birt­ingu leyni­skýrsl­unnar fór Fjár­mála­eft­ir­litið fram á að hún yrði fjar­lægð af vef­síðu Kjarnans, vegna fjár­hags­upp­lýs­inga sem þar væri að finna um nafn­greinda við­skipta­vini og starfs­menn sjóðs­ins. Kjarninn hafn­aði beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um að fjar­lægja skýrsl­una, þar sem hún ætti erindi við almenn­ing enda hafi gjald­þrot Spari­sjóðs­ins í Keflavík kostað almenn­ing tugi millj­arða króna. Eins og kunn­ugt er eru mál er varða sjóð­inn til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara.

Töldu að Kjarninn hefði brotið gegn friðhelgi þeirra


Starfs­menn Spari­sjóðs­ins í Keflavík, sem sendu form­legar kvart­anir til Per­sónu­verndar vegna umfjöll­unar Kjarnans, töldu að með birt­ingu skýrsl­unnar hefði verið brotið gegn stjórn­ar­skrár­varðri frið­helgi þeirra. Per­sónu­vernd sendi starfs­mönn­unum sam­hljóða bréf þann 30. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem gerð var grein fyrir afstöðu stofn­un­ar­innar. Kjarninn hefur bréf Per­sónu­verndar undir höndum.

Í bréf­unum segir: „Þrátt fyrir að í umræddri skýrslu sé að finna per­sónu­upp­lýs­ingar lýtur kjarni úrlausn­ar­efnis þess að því hvort Kjarninn ehf. hafi með tján­ingu sinni í orði og verki, þegar fjöl­mið­ill­inn birti fyrr­nefnda trún­að­ar­skýrslu á vef­síðu sinni, sem inni­hélt m.a. fjár­hags­upp­lýs­ingar um yður, farið út fyrir ramma 73. gr. stjórn­ar­skrár­innar sem fjallar um tján­ing­ar­frelsi og brotið gegn frið­helgi einka­lífs yðar, sbr. 71. gr. stjórn­ar­skrár­innar. Er það mat Per­sónu­verndar að umrædd skýrsla hafi ein­vörð­ungu verið birt í þágu frétta­mennsku, og fellur því atvikið undir ákvæði 2. málsl. 5. gr. laga nr. 77/2000 (Lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga).“

Í fimmtu grein laga um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga segir: „Að því marki sem það er nauð­syn­legt til að sam­ræma sjón­ar­mið um rétt til einka­lífs ann­ars vegar og tján­ing­ar­frelsis hins vegar má víkja frá ákvæðum lag­anna í þágu fjöl­miðl­unar, lista eða bók­mennta.“

Valdheimildir Persónuverndar ná ekki yfir fréttamennsku


Sökum þess að vinnsla upp­lýs­inga sem ein­göngu fer fram í þágu frétta­mennsku fellur utan ramma flestra ákvæða laga um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga, meðal ann­ars þeirra sem veita Per­sónu­vernd heim­ild til að stöðva vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga og beita dag­sektum, telur stofn­unin að hana skorti vald til að taka bind­andi ákvörðun um hvort ein­hver hafi skapað sér ábyrgð að lögum með mis­notkun á stjórn­ar­skrár­bundnum rétti til tján­ing­ar­frelsis og frið­helgi einka­lífs. Per­sónu­vernd tók því ekki afstöðu til kvart­anna starfs­manna Spari­sjóðs­ins í Keflavík á hendur Kjarn­anum og vís­aði þeim frá.

Í bréf­unum til sjömenn­ing­anna biðst Per­sónu­vernd vel­virð­ingar á töf­unum sem urðu á með­ferð máls­ins, og beinir þeim til­mælum til þeirra að þeir snúi sér fram­vegis til Fjöl­miðla­nefndar hafi þeir athuga­semdir við störf fjöl­miðla, enda falli þær athuga­semdir undir vald­svið nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár