Bláa lónið blómstrar sem blómi í eggi við bestu mögulegu aðstæður

Bláa lónið hagn­að­ist um 1.352 millj­ónir króna árið 2013, ef miðað er við með­al­gengi árs­ins. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins jókst um fimm­tíu pró­sent á milli ára, en vöxtur þess á und­an­förnum árum hefur verið ævin­týri lík­astur. Árið 2013 var metár í tutt­ugu ára sögu fyr­ir­tæk­is­ins hvað varðar rekstr­ar­tekjur, rekstr­ar­ár­angur og gesta­fjölda, en það ár heim­sóttu um 647 þús­und gestir Bláa lónið. Árið 2013 störf­uðu um 330 manns hjá félag­inu.

Tekjur Bláa lóns­ins af sölu aðgangs­eyris ofan í lónið eru und­an­þegnar virð­is­auka­skatti, en sam­kvæmt lögum um virð­is­auka­skatt er íþrótta­starf­semi, svo og leiga á aðstöðu til íþrótta­starf­semi, aðgangs­eyrir að sund­stöðum, skíða­lyftum, íþrótta­mótum, íþrótta­sýn­ingum og heilsu­rækt­ar­stofum, und­an­þegin virð­is­auka­skatti. Þess ber þó að geta að Bláa lónið greiðir virð­is­auka­skatt af annarri starf­semi sinni, svo sem veit­inga- og versl­un­ar­rekstri, gisti­þjón­ustu og spa með­ferðum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans þarf hins vegar að greiða aðgangs­eyr­inn að lón­inu til að kom­ast í spa með­ferðir Bláa lóns­ins.

Rekstr­ar­tekjur Bláa lóns­ins vegna aðgangs­eyris í lónið námu ríf­lega átján millj­ónum evra árið 2013, eða tæp­lega þremur millj­örðum króna. Til sam­an­burðar má nefna að rekstr­ar­tekjur lóns­ins vegna aðgangs­eyris árið 2012 námu ríf­lega 13,5 millj­ónum evra, eða tæp­lega 2,2 millj­arðar króna. Ódýrasti aðgöngu­mið­inn að Bláa lón­inu kostar 5.400 yfir vetr­ar­tím­ann og 6.900 krónur yfir háanna­tím­ann á sumrin, sam­kvæmt verð­skrá sem finna má á heima­síðu félags­ins.

Vilja að undanþágum verði fækkað - en ekkert gerist


For­svars­menn Bláa lóns­ins hafa ítrekað sagst vera fylgj­andi því að und­an­þágum verði fækkað í virð­is­auka­skatts­kerf­inu. Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins og for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, hefur sagt að ein­földun muni gera kerfið skil­virkara og stemma stigu við svartri atvinnu­starf­semi. Þrátt fyrir þetta, og umræðu um hvort ekki eigi að hækka álögur á ferða­þjón­ust­una, er und­an­þágan sem aðgangs­eyrir að Bláa lón­inu fellur undir, enn við lýði. Á sama tíma hækka stjórn­völd mat­ar­skatt­inn, afleggja auð­legð­ar­skatt og lækka veiði­gjöldin.

Á aðal­fundi félags­ins, sem haldin var 4. apríl síð­ast­lið­inn var sam­þykkt að greiða hlut­höfum félags­ins 931,3 millj­ónir króna í arð vegna árs­ins 2013. Við árs­lok 2013 var eig­in­fjár­hlut­fall Bláa lóns­ins 30 pró­sent, hand­bært fé frá rekstri nam ríf­lega 1.800 millj­ónum króna og eignir félags­ins hljóð­uðu upp á tæpar 7.300 millj­ónir króna.


Lífeyrissjóðir áberandi á meðal hluthafa


Stærstu hlut­hafar Bláa lóns­ins eru Hvatning slhf. með 43 pró­senta hlut, HS Orka hf. sem á 33 pró­senta hlut, Hof­garðar ehf. á 6,7 pró­sent, M4 ehf. á 3,6 pró­sent, Saffron Holding ehf. er skráð með sama eigna­hlut og Bog­mað­ur­inn ehf. á 3,2 pró­sent.

Hvatning slhf. er í ríf­lega 70 pró­senta eigu einka­hluta­fé­lags­ins Kólfs og tæp­lega 30 pró­senta eigu Horns II slhf. Kólfur ehf. er í 68,5 pró­senta eigu Gríms Sæmund­sens og 31,5 pró­senta eigu Eðvards Júl­í­us­sonar. Eðvard er fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Grinda­vík og átti sæti í stjórn Hita­veitu Suð­ur­nesju (fyr­ir­renn­ara HS Orku) á árunum 1990 til 1992. Horn II slhf. er fram­taks­sjóður sofn­aður af Lands­bréfum. Hlut­hafar sjóðs­ins eru þrjá­tíu tals­ins og sam­an­standa af líf­eyr­is­sjóðum, fjár­mála­fyr­ir­tækjum og fag­fjár­festum.

HS Orka, sem er næst stærsti hlut­haf­inn í Bláa lón­inu, er í 66,6 pró­senta eigu Magma Energy Sweden og 33,4 pró­sent orku­fyr­ir­tæk­is­ins eru í eigu Jarð­varma slhf., sem er sam­lags­hluta­fé­lag í eigu 14 líf­eyr­is­sjóða.

Þriðji stærsti hlut­haf­inn í Bláa lón­inu, Hof­garðar með 6,7 pró­senta hlut, er í eigu Helga Magn­ús­sonar fjár­festis, sem er vara­for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna og stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins.

Tæpar sjö milljónir króna á mánuði fyrir lónsvökvann, hita og rafmagn


Bláa lónið hefur einka­leyfi til árs­loka 2044 frá HS Orku til notk­unar á jarð­hita­vökva, hinn svo­kall­aða Bláa lóns vökva, í Svarts­engi til afþrey­ingar, heilsu­baða, lækn­inga og einnig til fram­leiðslu hvers konar húð og heilsu­vara þar sem notuð eru stein­efni og líf­ræn efni jarð­hita­vökvans. Greiðslur félags­ins til HS Orku vegna samn­ings­ins námu 224 þús­und evrum árið 2013, eða sem sam­svarar ríf­lega 36 millj­ónum króna, eða um þremur millj­ónum á mán­uði.

Þá keypti Bláa lónið heitt og kalt vatn og raf­magn af HS Veitum fyrir 270 þús­und evrur árið 2013, eða sem sam­svarar um 43,7 millj­ónum króna. Það gera um 3,6 millj­ónir króna á mán­uði. Kostn­aður félags­ins vegna jarð­hita­vökvans, hita og raf­magns nemur því tæpum sjö millj­ónum króna á mán­uði.

Bláa lónið hyggur á mikla upp­bygg­ingu á næstu árum. TIl stendur að reisa lúx­us­hótel og stækka lónið sjálft, áætlað er að fram­kvæmd­irnar taki tvö ár og kosti um sex millj­arða króna. Mann­virki stað­ar­ins munu tvö­fald­ast í stærð á fram­kvæmda­tím­anum.

Uppfært 8. jan­úar klukkan 14:21.

Í sam­ræmi við breyt­ingar sem gerðar voru á lögum um virð­is­auka­skatt í des­em­ber­mán­uði síð­ast­liðnum, mun Bláa lónið greiða virð­is­auka­skatt í lægra þrepi af bað­gjöldum lóns­ins frá og með 1. jan­úar 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár