Umræðan þarf að byrja og enda í Kína - viðtal við Ola Wong

Nú er lofts­lags­ráð­stefnu nýlokið í Lima. Í des­em­ber 2015 hitt­ast full­trúar þjóða heims í París til að kom­ast að sam­komu­lagi um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.Tak­mark­anir á losun innan Kyoto-bók­un­ar­innar gilda fram til 2020 en hún tekur aðeins á um 15% heimslos­unar frá Evrópu og Ástralíu.

„Umræða um lofts­lags­breyt­ingar þarf að byrja og enda á Kína,“ segir Ola Wong sænskur rit­höf­undur og blaða­maður. Hann hefur búið og unnið í Kína und­an­farin tíu ár. Wong hefur skrifað bækur, hlotið verð­laun fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku og kos­inn umhverf­is­blaða­maður Sví­þjóðar.

Af hverju heim núna?


„Loftið í Peking varð bók­staf­lega orðið of þungt til að anda. Ég fékk lungna­sjúk­dóm og konan mín varð veik. Þetta er ekki nýtt vanda­mál en þó eru ekki nema þrjú ár síðan kín­versk stjórn­völd og fjöl­miðlar fóru að minn­ast opin­ber­lega á mengun. Áður var talað um þoku. Mæl­inga­tæki á erlendum sendi­ráðum birta upp­lýs­ingar um magn eit­ur­efna í loft­inu. Kínversk yfir­völd segja nú frá mengun en tölur þeirra eru alltaf mun lægri.“


Nýlega sendi Ola Wong frá sér bók­ina Pek­ingsyndromet, Pek­ing­heil­kennið.Tit­ill­inn vísar til ráða­manna Kína í dag sem upp­lifðu áföll á tímum Maos. Ola Wong segir þá hafa stöð­ug­leika­þrá­hyggju, þörf til að end­ur­rita sög­una og fela hörm­unga­verk for­vera sinna á toppnum. Í bók­inni rekur hann arf­leifð Maos í kapita­listíska komm­ún­isti­ska Kína í dag þar sem pen­ingar, spill­ing og völd ráða ríkjum.”

„Kína er stór­kost­legt land, skemmti­legt, for­vitið og gest­risið. Maturinn oft frá­bær og maður heill­ast stöðugt af ríkum menn­ing­ar­arfi og orku. Ég á eftir að halda áfram að ferð­ast þar og skrifa um landið. En bókin mín fjallar um póli­tík­ina og það er allt annar hand­leggur.“

Skiptir þetta okkur í alvöru máli?

„Ef héruð Kína væru lönd, þá væru 15 af þeim meðal 50 stærstu hag­kerfa heims. Umhverf­is­mál í Kína snerta okkur öll og því mik­il­vægt að við vitum meira um landið og stjórn­völd þar. Kína mengar meira en öll önnur lönd sam­an­lagt. 85% af orku­notkun Kína kemur frá jarð­efna­elds­neyti, meiri­hlut­inn kola­bruni. Í hverri viku opnar ný kola­hit­un­ar­stöð.”


„Jafnvel þó losun Banda­ríkj­anna og Evrópu færi niður í núll þá myndi lækk­unin verða étin upp af hækk­un­inni í Kína. Opinber kín­verskur áróður segir stöðugt að öll lönd hafi mengað fyrst og síðan lagað það. En að ætla sér að auka mengun til árs­ins 2030 og síðan fara að huga að minnkun mun hafa hræði­leg áhrif á líf okkar allra hér á jörð­inni. Sænskir umhverf­is­flokkar tala ekk­ert um umfang kola­notk­unar í Kína og alvar­legar afleið­ingar hennar. Og við erum að flytja inn umhverf­is­stefnu Kína með því að kaupa ódýrar kín­verskar vörur. Því þarf öll umræða um lofts­lags­breyt­ingar að byrja og enda á Kína.


Landið sem hefur orðið ríkt með því að setja hag­vöxt framar sið­ferði, nátt­úru eða lögum.”


Við lestur bók­ar­innar fær maður á til­finn­ing­una að Kína sé blindur risi að leika sér, byggja brjál­æð­is­legar borgir og færa ár og fjöll.


„Fyrir nokkrum árum skiss­aði verk­fræð­ingur á veit­inga­stað í Shanghai fyrir mig á serví­ettu nýja borg í Shandong. Lands­hluti með 96 millj­ónir íbúa. Hann útskýrði hvernig gamli bær­inn lægi við fjöll og ekk­ert pláss til að vaxa.“


„Svo við sögum bara af fjöll­unum og skellum í hafið og málið er leyst!“


Nú er búið að teikna allt verk­efnið. Níu hag­svæði verða byggð með efna­verk­smiðjum og golf­völlum í Shandong. 420 Fer­kíló­metrar af hafi eiga að verða land fyrir árið 2020 sam­kvæmt áætlun stjórn­ar­innar í Peking. Tvisvar sinnum Stokk­hólmur. Þetta er aðeins eitt af ótal­mörgum mega-verk­efnum sem eru í gangi.”


„Já gíf­ur­legir fólks­flut­ingar eiga sér stað í Kína. Á milli 2007 og 2012 voru 737 000 hirð­ingjar í Tíbet fluttir í nýbyggð blokka- og múr­steina­hverfi. Opinber ástæða sögð vera að vernda nátt­úr­una frá ofbeit. En sam­kvæmt útlegð­ar­stjórn­inni í Dhara­m­sala fjalla fólks­flutn­ing­arnir í raun um flutn­ing á tæp­lega tveimur milljón hirð­ingjum til að hleypa kín­verskum námu­fyr­ir­tækjum að ósnertri nátt­úru sem þeir eru nú að rústa. Auk þess er auð­veld­ara fyrir kín­versk stjórn­völd að fylgj­ast með tíbetum ef þeir lifa á sama stað. Þannig tap­ast bæði menn­ing og tungu­mál þeirra.“

Hvernig er að starfa sem erlendur blaðamaður í Kína?

„Af því ég tala kín­versku á ég auð­velt með að nálg­ast fólk. Áður var auð­velt fyrir mig að ferð­ast til vestur Kína og hitta Uguira en nú er það ómögu­legt vegna opin­bers eft­ir­lits. Sumir sem ég tala vilja ekki geta nafns síns . Eins og til dæmis faðir í hinni afar meng­uðu Shing­feng. Hann segir frá veik­indum sonar síns og eitr­uðu vatni en vill ekki að ég skrifi nafnið hans. Komm­ún­ista­flokk­ur­inn gerir allt til að koma í veg fyrir óró­leika og áhyggjur almenn­ings og stöðvar því umhverf­is­vernd­ar­sinna og aðra sem reyna að vara við. Vanda­málin eru eins og í Shinfeng bók­staf­lega grafin í jörðu og koma svo upp sem krabba­mein í gegnum krana­vatnið.

Hvað með fólk sem mótmælir?

„Það er þaggað niður í þeim sem mót­mæla jarða­missi vegna bygg­ing­ar­á­ætl­ana.“


Til dæmis ungi akti­vist­inn Wang Bingru sem ég segi frá í bók­inni. Hún tap­aði húsi sínu vegna þess að spilltir emb­ætt­is­menn seldu landið hennar. Vinur hennar lög­fræð­ingur sagði við mig: Þegar yfir­völd sjá höfuð bregð­ast þau við á tvennan hátt: Annað hvort höggva þau það af eða loka munn­inum með pen­ingum. Þess vegna gáfu þeir henni milljón. En hún heldur samt áfram að mót­mæla. Ég heyrði nýlega frá Wang Bingru og þó hún sé undir eft­ir­liti er hún frjáls og heldur áfram bar­áttu sinni fyrir rétt­læti fyrir aðra í sömu stöðu og hún.”

En er vilji til umbóta?

„Já og það hefur líka sumt lag­ast í Kína. Til dæmis hefur nokkrum meng­andi verk­smiðjum verið lokað. Vandinn er að nýjar eru opn­aðar. Og þó opin­ber­lega sé yfir­lýstur vilji til að byggja á umhverf­is­væn­ari hátt. Þá eru þannig lausnum fyrst er hent út þegar spara á pen­inga eða auka flæðið í vasa spilltra emb­ætt­is­manna.“


Í bók­inni segir þú að Kína hafi aldrei gert upp sögu sína og komm­ún­ista­flokks­ins.

„Menn­ing­ar­bylt­ingin hefur verið rædd og for­dæmd á ákveð­inn hátt af komm­ún­ista­flokknum.En hung­ursneyð­ina miklu árið 1958-1962 er bannað að tala um.

Ég segi frá rit­höf­und­inum Yang Jisheng í bók­inni.

Hann starf­aði við áróð­urs­deild Komm­únsta­flokks­ins en eftir mót­mælin í Peking árið 1989 fór hann með leynd að safna efni í lífs­verkið sitt Leg­stein­inn. Bók um hung­ursneyð­ina sem kost­aði líf 36 milljón manns, þar á meðal föður hans.Anne App­el­baum höf­undur bók­ar­innar Gulag a History, ber verk Jishengs saman við bók Solsjenitsyns Dagur í lífi Ivan Den­isovitsj, um grimmd Stalín­tím­ans. Munurinn er að bók Solsjenitzins mátti koma út eftir dauða Stalíns því hún nýtt­ist í áróðri flokks­ins í end­ur­bóta­starfi. Bókin Leg­steinn­inn er bönnuð í Kína. Komm­ún­ista­flokk­ur­inn hefur ekk­ert á þessum sagn­fræði­legu upp­lýs­ingum að græða. Að 36 millj­ónir kín­verja misstu lífið í hung­ursneið sem Mao og flokk­ur­inn skipu­lögðu. Ungt fólk hefur ekki hug­mynd um þetta. Höf­und­ur­inn Yang Jisheng telur sig þó hafa mikil áhrif, hann sagði: Bókin hefur verði prentuð níu sinnum í Hong Kong. 200 000 þús­und ein­tök og er 80% af þeim er smyglað yfir landa­mærin. Hún er einnig seld í sjó­ræn­ingja­út­gáfum í Kína. Vinir mínir hringja þegar þeir rekast á ein­tak á mörk­uðum úti á lands­byggð­inni.“ Jisheng seg­ist vera stoltur og að fyrr­ver­andi kollegar hans hjá flokknum öfundi hann. „Því hver vill ekki skrifa eitt­hvað sem er satt og skiptir máli?“

Er ekki sagt frá hung­ursneyð­inni á stóra safn­inu í Peking ?


„Nei og aðeins á einum stað er minnst á menn­ing­ar­bylt­ing­una, í texta undir ljós­mynd frá flokks­fundi. Ég segi frá því í bók­inni þegar núver­andi for­seti Kína Xi Jinping tók við for­ystu komm­ún­ista­flokks­ins þá skoð­aði hann hið nýupp­gerða stærsta safn heims við Torg hins Himneska Friðar í Peking.“


En það hafa orðið miklar fram­farir í Kína


„Komm­ún­ista­flokk­ur­inn hefur margt til að vera stoltur yfir. Til dæmis það að nær allar konur eru læsar og það að síðan 2009 hefur verið komið á sjúkra­trygg­inga­kerfi. Sem er afrek þegar litið er til mis­heppn­aðra til­rauna í Banda­ríkj­unum. En í þessu er skautað fram­hjá á sýn­ing­unni í Peking. Þar er áhersla lögð á Kína sem stór­veldi í geimnum og á heims­höf­unum. Bara ef allir sitja kjurrir í bátnum þá mun draum­ur­inn ræt­ast.”

Hver er hinn opinberi draumur?

„Nú er talað um að örlög kín­verja séu að leggja undir sig heims­höfin. Það er því stöð­ugur áróður um það að Kína ætli út á höfin, byggja flug­móð­ur­skip og nýta auð­lindir hafs­ins. Risa­bygg­ingar og skýja­kljúfar í Kína eru núna furðu­lega oft skreytt með hafs- og öldu­myndum. Í sjón­varps­þætt­inum Vor­há­tíðin sem hund­ruðir millj­óna fylgj­ast með koma her­söngv­arar fram og syngja ...Ég er stoltur sjóliði sem siglir yfir blá­ann akur á meðan ball­et­flokkur sjó­hers­ins skoppar fram og aftur skips­sviðið á þröngum hvítum sjóliða­bún­ingum.“

Hvernig er drykkjarvatnið í Peking?

„Rannsókn á drykkj­ar­vatni í 118 borgum Kína í fyrra leiddi í ljós að 97% vatns­ins var mengað og ódrykkj­ar­hæft. Það ótrú­lega er í raun að Peking virki eins vel og hún gerir: Það kemur vatn úr krönum og það er hægt að aka (hægt) í vinn­una. Stundum er meira að segja blár him­inn. Peking stendur á svæði þar sem í raun er ekki hægt að vera með risa­borg. Með fjöll í bakið. Ef vind­ur­inn blæs ekki úr réttri átt eða það rignir þá þykknar meng­unin. Það er stöð­ugur þurrkur.

Allt norð­ur­kína á við vatns­skort að etja. En í stað þess að flytja höf­uð­borg­ina til suður Kína þar sem nóg er af vatni er gert ráð fyrir vexti Peking og íbúar verði 60 millj­ónir árið 2050. Stærsta vatns­verk­efni heims: Suður- Norður vatns­leiðslan er byggð til að leiða vatn í höf­uð­borg­ina. Sem er ein af ástæðum þess að bændur í suður Shaanxi neydd­ust til að flytja búferlum. Kostn­að­ur­inn er stjarn­fræði­lega hár. En þessi mann­gerðu fljót munu ekki duga til. Því eru afsölt­un­ar­stöðvar byggðar með­fram aust­ur­strönd­inni. Sjór mun renna úr krönum Pek­ing­búa eftir fimm ár. Þetta er dýrt ferli og krefst mik­illrar orku frá kola­verum. Sem á móti valda enn meiri þurrki. En það er síðan leyst með efna­blöndum og gervi­regni. Gagn­rýnendur í Kína segja einnig að verk­efnið muni breyta Bohaiflóa í dautt haf. “


Þú segir frá lista- og andófsmanninum Ai Weiwei


„Ég er ekki virkur í lýð­ræð­is­hreyf­ing­unni. Ég tek ekki þátt í stjórn­málum,“ segir lista­mað­ur­inn Ai Weiwei.


En bætti síðan við: „Vanda­málið er að í þessu landi er svo margt póli­tík. Eftir nokkur ár mun komm­ún­ista­flokk­ur­inn líða undir lok, hann hlýtur að gera það. Hann er gegn grund­vallar mann­rétt­indum. “


Svona orð nægja til ákæru fyrir glæpi gegn rík­inu. Sem oft­ast leiðir til margra ára fang­elsi.


Hjá Ai Weiwei er andóf í fjöl­skyld­unni. Faðir hans Ai Qing, þekkt nútíma­skáld, var bann­færður árið 1959 og sendur í útlegð til afskekkta Xinjiang. Þar var hann lát­inn vinna í 21 ár við að þrífa kamra. Ai Weiwei bjó þar í fimm ár.


Hann sagði mér að það verk sem hann er stolt­astur yfir er vinnan eftir Sichuan jarð­skjálft­ann 2008. Áður hafði hann byggt feril sinn á pop-háðsku við­horfi í jafn­vægi milli þess sem flokk­ur­inn vildi og það sem vest­ur­lönd bjugg­ust við af kín­verkum upp­reisn­ars­egg. Á sama tíma safn­aði hann tals­verðum auð. Það var andi þess tíma.


Mörg fórn­ar­lamba jarð­skjálft­ans í Sichuan voru börn sem lét­ust í bygg­ingum þar sem fé sem átti að nota í járn­benta stein­steypu end­aði í vösum spilltra emb­ætt­is­manna.


Yfirvöld þögg­uðu niður ásak­anir og bönn­uðu birt­ingar á nöfnum fórn­ar­lambanna.


For­eldrum og öðrum sem sem kröfð­ust rétt­lætis var hótað, þeir lamdir og sumir settir í fang­elsi. Ai Weiwei hóf að safna saman nöfnum barn­anna og leggja þau út á Twitter.


Nöfn 5.200 barna alls. Þannig hófst ferða­lag Ai Weiwei frá hirð­fífli til and­ófs­manns.”


Ai Weiwei var bar­inn þegar lög­reglan braust inn á hótel hans í Sichuan árið 2009. Hann fékk stöðugan höf­uð­verk. Mánuði seinna fékk hann heila­blóð­fall og var skor­inn upp.


“Nokkrum tímum seinna hefði ég dáið” Segir Ai Weiwei. Hann var einnig hand­tek­inn árið 2011. Árið sem hann var kos­inn áhrifa­mesti lista­maður í heimi. Eftir 81 dag í glugga­lausum klefa var honum sleppt.


Hvernig hefur Ai Weiwei það í dag?


„Í dag býr hann við hálf-frelsi er bannað að yfir­gefa landið, rit­skoð­aður og bannað að halda sýn­ingar í Kína. Þetta er sá sami og hann­aði ólymp­íu­leik­vang­inn í Peking 2008. Þess ber að geta að flestir kín­verjar vita ekki hver hann er. En hann er fyr­ir­mynd and­ófs­manna.“


Í bók­inni talar Ola Wong um lista­menn eins og Damien Hirst og firr­ingu og háð sem fylgdi þeim tíma fyrir efna­hags­hrunið.


„Það sem gerð­ist eftir Olymp­íu­leik­ana í Peking og fjár­mála­hrunið var að Pussy Riot og Ai Weiwei bundu enda á háðið. Það er engin til­viljun að einn lista­mann­anna sé í Kína en hinar í gamla KGB njósn­ar­ans Rúss­landi. Þau snú­ast gegn háði og lygi sem stefnu.“


Það sem nær­ist í sam­fé­lögum þar sem ýtt er undir tor­tryggni með opin­berum áróðri og lygum.Fjöldi kín­verja hefur unnið til nóbels­verð­launa en aðeins tveir þeirra búa í Kína. Annar þeirra Mo Yan er rit­höf­undur í þágu rík­is­ins og býr handan múrs í einu af fínni hverfum hers­ins. Hinn situr í fang­elsi. Allir aðrir hafa flutt úr landi.


Komm­ún­ista­flokk­ur­inn hefur á 90 ára sögu sinni aftur og aftur drepið hæn­urnar sem leggja gul­leggin. Ai Weiwei aðeins eitt af nýj­ustu dæm­unum.”

[caption id="attachment_15729" align="aligncenter" width="1024"] Ola Wong og Ai Weiwei.[/caption]

Þegar Ai Weiwei var yfir­heyrður spurði einn af lög­reglu­mönn­unum hvers vegna hann ein­beitti sér ekki bara að því að græða pen­inga eins og allir aðrir.


„Já hann sagði lög­reglu­mann­inn hafa verið virki­lega undr­andi. Sama við­horfið veldur því að margir sem kvarta eða mót­mæla eiga á hættu að vera stimpl­aðir geð­veikir og lok­aðir inni á stofn­unum. Það er ekki aðeins þægi­leg leið til að þagga niður mót­mæli. Í augum yfir­valda eru aðgerðir and­ófs­manna sjúkar.


Í ræðu sinni við rétt­ar­höld í Moskvu vitn­aði með­limur Pussy Riot í sov­éska and­ófs­mann­inn Vladimir Bukovsky: Hversu óham­ingju­samt er ekki land þar sem litið er á sann­leik­ann í besta lagi sem hug­rekki og í versta falli sem geð­veiki.


Bukovsky hefði getað bætt því við; að í landi þar sem þeir sem segja sann­leik­ann eiga á hættu að vera stimpl­aðir geð­veikir er raun­veru­leik­inn oft sjúkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár