Afríka: Bless Vesturlönd, halló Kína

Í októ­ber síð­ast­liðnum tók Kína fram úr Banda­ríkj­unum sem stærsta hag­kerfi heims. Það finnst varla sá blettur í heim­inum þar sem áhrif upp­gangs Kína finn­ast ekki og er Afríka engin und­an­tekn­ing - þvert á móti. Vest­ur­lönd og gömlu nýlendu­herr­arnir eru ekki lengur stóru strák­arnir, heldur Kín­verjar. Í flestum löndum Afríku, eru áhrif Kínverja á við­skipti og fjár­fest­ingar gríð­ar­leg og hafa vaxið marg­falt frá alda­mótum.

Þróun verslunar milli Kína og Afríku


[caption id="attachment_15692" align="alignnone" width="734"] Úr skýrslu Standard Chartered: On the ground, síðan 6. nóv­em­ber 2014.[/caption]

Kína hefur verið stærsta ein­staka við­skipta­land Afríku síðan 2009 og nam verð­mæti inn- og útflutn­ings þar á milli nálægt 210 millj­örðum doll­ara árið 2013, sem er um 10 pró­sent af lands­fram­leiðslu allra landa Afríku sam­an­lagt og 17-föld lands­fram­leiðsla Íslands. Í byrjun 21. ald­ar­innar voru við­skiptin ein­ungis um 10 millj­arðar doll­ara, svo þau hafa ríf­lega 20-fald­ast, sam­hliða almennt miklum upp­gangi í Afríku. Nú kaupa Kín­verjar málma, olíu, gas og aðra hrá­vöru á meðan kín­verskur varn­ingur, sem er oft fram­leiddur úr hrá­vörum frá Afríku, flæðir um afríska mark­aði. Einnig hafa fjár­fest­ingar vaxið og útgjöld til þró­un­ar­verk­efna verið mikil. Mörkin milli þró­un­ar­að­stoðar og lána eru oft óljós, en nefndar hafa verið tölur eins in 75 millj­arðar doll­ara í þró­un­ar­verk­efni síð­ast­liðin ára­tug, eða 9.500 millj­arðar íslenskra króna. Flest bendir til að þessar upp­hæðir muni hækka enn frekar á næstu árum.

Þúsundir milljarða í innviði og nýtingu náttúruauðlinda


Áhrifin eru vel áþreif­an­leg, t.d. í Austur-Afríku. Frasinn „It's the Chinese“ kemur ítrekað upp í sam­ræðum þegar rætt er um hina og þessa vegi, flug­velli, verk­smiðjur, virkj­anir, námur og nán­ast hvaða fjár­fest­ingar sem er. Í Úganda sést vel að áhrifin hafa auk­ist á aðeins örfáum árum. Þar er t.d. í bygg­ingu hin 600 mega­vatta Karuma-virkjun (Kára­hnjúkar eru 690 MW) og 60 millj­arða króna hrað­braut við höf­uð­borg­ina Kampala, hvort tveggja fjár­magnað af kín­verska rík­is­bank­anum Exim Bank. Nágrann­arnir í Tansaníu fá líka sinn skerf af fjár­fest­ingum Kínverja. Þar eru Kín­verjar í þann mund að hefja bygg­ingu á um 1,300 millj­arða króna höfn og nýlega sömdu kín­versk og tansanísk stjórn­völd um 215 millj­arða króna upp­bygg­ingu nýs fjár­mála­hverfis og byggðar í úti­jaðri Dar es Salaam.

Nærvera Kínverja finnst ekki síður ann­ars­staðar í álf­unni, sér­stak­lega í löndum sem eru rík af málmum, olíu og gasi, eins og t.d. Ghana, Suður-Afríka, Nígería og Sambía. Bara í þessum mán­uði má sjá fréttir af tveggja millj­arða doll­ara láni kín­verska þró­un­ar­bank­ans til angólska olíu­fyr­ir­tæk­is­ins Sonangol í miðri olíu­krísu og 875 millj­óna doll­ara höfn á Fíla­beins­strönd­inni. Þó að fjár­fest­ing í innviðum sé mikil, eru þó um 55 pró­sent fjár­fest­inga Kínverja í olíu, gasi, málmum og nýt­ingu nátt­úru­auð­linda.

Það eru þó ekki bara fjár­magn og ýmis­konar varn­ingur sem flæðir yfir Ind­lands­hafið til Afríku. Í fram­kvæmdum sem eru fjár­magn­aðar frá Kína eru flestir yfir­menn, auk margra verka­manna, kín­verskir. Margir þeirra verða svo eftir til að setj­ast að og vinna eða stofna lítil fyr­ir­tæki. Erfitt er að festa tölu á hversu margir þeir eru en heyrst hefur að þeir séu a.m.k. um milljón. Heima­menn eru mis­hrifnir af þessum nýju gestum og í Tansaníu hefur rík­is­stjórnin sagt að Kín­verjar sem fjár­festar séu vel­komnir en ekki götu­salar eða skópúss­arar.

Ný nýlendustefna?


Það er erfitt að horfa fram hjá því að margt í stefnu og gjörðum Kínverja minnir á nýlendu­tím­ann, þegar Frakk­land, Þýska­land, Bretland, Belgía og Portúgal réðu yfir og bein­línis arð­rændu nán­ast alla 30 milljón fer­kíló­metra næst­stærstu heims­álfu heims. Þá var til­gang­ur­inn ein­ungis að græða á nátt­úru­auð­lindum nýlend­anna og vilja margir meina að Kín­verjar séu í svip­uðum hug­leið­ingum nú. Afr­íku­ríki eru vissu­lega sjálf­stæð og sam­an­burð­ur­inn því ekki sann­gjarn, en sívax­andi ítök Kína yfir nátt­úrauð­lindum Afríku kveikja samt óneit­an­lega við­vör­un­ar­ljós.

[quote font="0" align="right"]Á meðan er áherslan í þró­un­ar­stefnu Kína fyrst og fremst á stórar fjár­fest­ingar og inn­viði, hvort tveggja eitt­hvað sem Vest­ur­lönd forð­ast yfir­leitt eins og heitan eld.[/quote]

Vest­ur­lönd dæla þús­undum millj­arða króna í þró­un­ar­að­stoð í Afríku, þar sem áherslan er á heilsu­gæslu, bar­áttu gegn smit­sjúk­dómum, menntun, mann­rétt­indi, og bar­áttu gegn spill­ingu. Á meðan er áherslan í þró­un­ar­stefnu Kína fyrst og fremst á stórar fjár­fest­ingar og inn­viði, hvort tveggja eitt­hvað sem Vest­ur­lönd forð­ast yfir­leitt eins og heitan eld. Vest­ur­lönd setja einnig ýmis skil­yrði fyrir aðstoð og nýlega stöðv­uðu Vest­rænar þró­un­ar­stofnunir fjár­laga­stuðn­ing til Tansaníu vegna millj­arða króna sem hurfu af reikn­ingi í seðla­banka lands­ins. Þessu er þver­öf­ugt farið hjá Kín­verjum sem setja að öllu jöfnu engin slík skil­yrði. Þeir líta ekki á það sem sitt hlut­verk að skipta sér af sjálf­stæðum rík­is­stjórnum enda eru kín­versk stjórn­völd ekki bein­línis þekkt fyrir lýð­ræð­is­hefð, verndun mann­rétt­inda eða skort á spill­ingu.

[caption id="attachment_15696" align="alignnone" width="1024"] Kín­verjar hafa ein­beitt sér að því að setja fjár­magn í afrískt efna­hags­líf með iðn­að­ar­fram­kvæmdum á meðan Vest­ur­lönd halda áfram að veita þró­un­ar­að­stoð í „hinu hefð­bundna formi“.[/caption]

Kínverskt fjármagn það sem Afríka þarf?


Þó Vestræna mód­elið hljómi vel og að þró­un­ar­að­stoð sé án nokk­urs vafa betur fram­kvæmd í dag en áður fyrr, er stað­reyndin er sú að nið­ur­stöð­urnar hafa verið tals­verð von­brigði. Flestum löndum Afríku sár­vantar fjár­fest­ingar í sam­göngum og raf­magni. Til dæmis fram­leiða Íslend­ingar rúm­lega þrisvar sinnum meira raf­magn heldur en Eþíópía, þrátt fyrir að Eþíóp­íu­búar séu nærri því 300 sinnum fleiri en við. Það er því, vægt til orða tekið, kær­komið að Kín­verjar séu að fjár­magna nýja, en þó mjög umdeilda, virkjun sem tvö­faldar raf­magns­fram­leiðslu í Eþíópíu.

Þess vegna er mjög skilj­an­legt að óskil­yrt fjár­magn frá Kína sé aðlað­andi fyrir afríska ráða­menn. Þró­un­ar­lönd öðl­ast með því betri samn­ings­stöðu gagn­vart Vest­ur­löndum, meira val og annað þró­un­ar­módel, því það sem Vest­ur­lönd hafa lagt til hefur oft virkað hægt og seint. Við und­ir­ritun á fyrsta áfanga á nýju neti járn­brauta­teina í Austur-Afríku sagð­ist Yoweri Museveni, for­seti Úganda, vera glaður að sjá Kína ein­beita sér að því sem raun­veru­lega stendur þróun fyrir þrifum. Og hann er ekki einn, margir leið­togar í Afríku sjá Kína og önnur austur-asísk lönd sem fyr­ir­mynd. Skilj­an­lega. Kín­verjar hafa sýnt hvernig hægt er að brjót­ast hratt út úr mik­illi fátækt enda eru fáeinir ára­tugir síðan lands­fram­leiðsla á mann í Kína og í Afríku sunnan Sahara var svipuð.

Réttmæt gagnrýni - en málið er flókið


Margir hafa ákveðnar áhyggjur af því hvað inn­reið Kínverja þýðir í raun. The Ecomomist fjall­aði nýverið um að Kín­verjar í Afríku bland­ist illa við heima­menn og að spennan á milli hópanna sé stíg­vax­andi. Sér­stak­lega gremst fólki að verka­menn séu fluttir frá Kína í stórum stíl, á meðan atvinnu­leysi er víða stórt vanda­mál. Einnig eru vís­bend­ingar á lofti uppi um að kín­verskt fjár­magn við­haldi spill­ingu eða arðráni afrískra valda­stétta. Vissu­lega er fjár­magnið sem slíkt ekki til þess fallið, heldur er það algjör blinda á spill­ingu og sam­fé­lags­leg áhrif sem veldur áhyggjum. Hagstæð lán til spilltra stjórn­valda í Angóla, sem greið­ast til baka með olíu, og vopna­sala til Súdan í Darfur-stríð­inu bera vitni um það. Vest­ur­lönd hafa þó einnig oft og mörgu sinnum mulið undir spillta afríska leið­toga, t.d. Mobuto í Austur-Kongó (gamla Zaír) og Moi í Kenýa.

Algengt við­horf er að áhugi Kína á Afríku sé ein­göngu til­kom­inn vegna nátt­úru­auð­linda og við­skipta. Þó eru ekki séu allir sann­færðir og margt er enn óljóst. Í sjálfu sér er það alls ekki vanda­mál því við­skipti geta frekar en flest annað rifið lönd upp úr fátækt. Þó er mörgum spurn­ingum ósvarað, t.d. varð­andi gagn­sæi, mann­rétt­indi, áhrif á afríska atvinnu­vegi, auð­linda­bölvun­ina (e. resource curse) og hvort almennur afrískur borg­ari fái að njóta kín­verskra fjár­fest­inga til lengri tíma. Enda er eðli­legt að slík svör liggi ekki á reiðum höndum. Kína virð­ist vera rétt að byrja í Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár