Gallerí: Hörmungar og veisluhöld

Áramótin eru víða und­ir­búin í skugga stór­slysa og hörm­unga í heim­inum. Miklar líkur eru á að allir far­þegar flugs 8501 í vél AirAsia hafi farist með vél­inni við strendur Indónesíu á sunnu­dag. Þá hafa Ítalskir sjúkra­liðar og hjálp­ar­starfs­menn sinnt far­þegum ferj­unnar sem stóð alelda á Jónahafi með 478 manns um borð. Hér að neðan ber að líta fáeinar myndir af erlendum vett­vangi í dag.

[caption id="attachment_15619" align="alignnone" width="1024"] Byrjað er að und­ir­búa hátíð­ar­höld í Berlín, eins og víðar. Við Brand­en­borg­ar­hliðið hefur ljósa­skiltum verið komið fyrir þar sem stendur ein­fald­lega Velkomið 2015. Viða hefur snjóað á meg­in­landi Evrópu und­an­farna daga og hafa sam­göngur sum­staðar farið úr skorðum.[/caption]

[caption id="attachment_15620" align="alignnone" width="1024"] Hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem var í sjálf­boða­starfi hefur verið greindur með ebólu­smit í Skotlandi eftir að hafa flogið heim frá Sierra Leone í vest­an­verðri Afríku þar sem far­sóttin geysar. Er þetta í annað sinn sem ebólu­smit grein­ist í Bret­landi. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn var fluttur með flugi í ein­angrun til London þar sem sér­hæfðir læknar með­höndla vírus­inn.[/caption]

[caption id="attachment_15621" align="alignnone" width="1024"] Ítalskir sjálf­boða­liðar Rauða kross­ins settu upp tjald­skýli og sjúkra­að­stöðu í Man­fredonia á Ítalíu, til að taka á móti far­þegum ferj­unnar sem stendur alelda á Jónahafi. Eldur kom upp í ferj­unni á sunnu­dag. Tíu far­þegar eru látnir, tugir far­þega eru týndir en eng­inn getur gefið nákvæman fjölda far­þega á ferj­unni sem sil­gdi frá Grikk­landi yfir Jóna­hafið. Vont veður er á svæð­inu svo skip með björg­uðum far­þegum hafa sum ekki náð til hafnar. Nú hafa fund­ist vís­bend­ingar um að elds­upp­tökin hafi verið af manna­völdum og ekk­ert óvilja­verk, enda virð­ast engar ein­faldar skýr­ingar liggja fyrir.[/caption]

[caption id="attachment_15622" align="alignnone" width="1024"] Rúss­neski stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn og and­ófs­mað­ur­inn Alexei Navalní var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir fjár­drátt og svik. Bróðir hans Oleg var hins vegar dæmdur í óskil­orðs­bundið þriggja og hálfs árs fang­elsi og hand­járn­aður í dóm­salnum. Dóms­upp­kvaðn­ing­unni hafði fyr­ir­vara­laust verið flýtt þar til í dag.[/caption]

[caption id="attachment_15623" align="alignnone" width="1024"] Indónesíski her­inn hefur fundið brak úr far­þega­þotu AirAsia sem fórst við strendur Indónesíu á sunnu­dag. Talið er að þotan hafi hrapað vegna slæmra veð­ur­skil­yrða. Allir 162 far­þeg­arnir eru taldir af en lang flestir voru frá Indónesíu. Ætt­ingjar far­þeg­anna sem fylgst hafa með leit­inni þurftu sumir lækn­is­að­stoð eftir að hafa séð myndir af líkum far­þega sem ekki var búið að bera kennsl á fljót­andi í haf­inu. Flak þot­unnar er að öllum lík­indum á sjáv­ar­botni, telja yfir­völd í Indónesíu.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár