Félag í eigu Straums komið með meirihluta í Íslenskum verðbréfum

Íslensk eigna­stýr­ing ehf., félag í meiri­hluta­eigu Straums fjár­fest­inga­banka, keypti í dag 27,51 pró­sent hlut í fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Íslenskum verð­bréfum hf. Íslensk eigna­stýr­ing keypti skömmu fyrir jól hlutu Íslands­banka í Íslenskum verð­bréfum og á nú 58,14 pró­sent í félag­inu.

Í til­kynn­ingu vegna máls­ins er haft eftir Jakobi Ásmunds­syni, for­stjóra Straums, að Íslensk Verðbréf sé „spenn­andi félag og tel ég mikil tæki­færi fólgin í þessum ánægju­lega áfanga í starf­semi Straums. Starfs­fólk Íslenskra verð­bréfa hefur unnið gott starf á und­an­förnum árum þrátt fyrir ákveðna óvissu um fram­tíð­ar­eign­ar­hald á félag­inu. Þeirri óvissu hefur nú verið eytt og mun Straumur ein­beita sér að taka þátt í upp­bygg­inu Íslenskra verð­bréfa ásamt starfs­fólki þess og öðrum hlut­höfum.“

[caption id="attachment_11457" align="align­right" width="150"] Jakob Ásmunds­son, for­stjóri Straums.[/caption]

Kjarninn hefur greint ítar­lega frá þeim átökum sem átt hafa sér stað um eign­ar­hald á Íslenskum Verð­bréfum und­an­farna mán­uði. MP banki,Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (LIVE) og félag í eigu Garðars K. Vil­hjálms­sonar gerðu til­boð í 27,5 pró­sent hlut Íslands­banka í Íslenskum Verð­bréfum í októ­ber. Föstu­dag­inn 24. októ­ber var ákveðið að taka til­boð­inu. Þann sama daga bár­ust til­boðs­gjöf­unum upp­lýs­ingar um að Straumur hefði lagt inn til­boð í hlut­inn þegar allt stefndi í að kaupin myndu ganga í gegn. Þær upp­lýs­ingar, sem voru byggðar á orðrómi á fjár­mála­mark­aðnum, reynd­ust ekki réttar. Straumur gerði aldrei til­boð í hlut­inn.

Hins vegar keypti bank­inn 64,3 pró­sent hlut Sævars Helga­sonar og Ásgeirs Ásgeirs­sonar, í gegnum félagið Gunner ehf., í Íslenskri eigna­stýr­ingu ehf., sem átti þá 21,83 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréfum. Straumi bauðst síðan að ganga inn í til­boð í aðra hluti í Íslenskum Verð­bréfum á grund­velli for­kaups­rétt­ar­á­kvæðis. Þar á meðal er 27,5 pró­sent hlutur Íslands­banka sem MP banki (10 pró­sent), LIVE (10 pró­sent) og Garðar Vil­hjálms­son (7,5 pró­sent) til­kynntu um kaup á í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár