Bandaríkjamenn orðnir 320 milljónir, nýr verður til á 16 sekúndna fresti

Banda­ríkja­menn verða orðnir fleiri en 320 millj­ónir um kom­andi ára­mót. Þeim hefur fjölgað um tæp­lega 11,4 millj­ónir, eða 3,67 pró­sent, frá því að síð­asta heild­ar­mann­tal á vegum banda­rísku hag­stof­unnar sem var opin­berað 1. apríl 2010. Þetta kemur fram í frétt sem var birt á heima­síðu banda­rísku hag­stof­unnar í dag.

Ljóst er að lítið hægist á fjölgun Banda­ríkja­manna á næstu miss­erum. Í frétt­inni kemur fram að í jan­úar 2015 sé búist við að það fæð­ist nýr Banda­ríkja­maður á átta sek­úndna fresti á meðan að einn deyr á tólf sek­úndna fresti. Auk þess er ásókn inn­flytj­enda í landið það mikil að einn ein­stak­lingur bæt­ist við heild­ar­fjölda banda­rísku þjóð­ar­innar á 33 sek­úndna fresti. Að öllu þessu sam­an­lögðu vex því mann­fjöldi Banda­ríkj­anna um einn á 16 sek­úndna fresti.

Samkvæmt spá banda­rísku hag­stof­unnar mun heild­ar­fjöldi heims­ins aukst um 1,08 pró­sent á milli ára og verða um 7,2 millj­arðar á nýárs­dag. Talið er að 4,3 ein­stak­lingar muni fæð­ast og 1,8 ein­stak­lingar deyja á hverri ein­ustu sek­úndu í heim­inum öllum á hverri sek­úndu í jan­úar 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár